Vikan


Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 62

Vikan - 23.07.1992, Blaðsíða 62
JÓNA RÚNA Frh. af bls. 59 að ræða ósjálfráð fyrirbæri virðast þau magnast eftir þvi sem hugsanlegur gerandi er nær þeim. Aftur á móti getur hreyfing þeirra minnkaö ef viðkomandi er mjög langt frá þeim. STERKUM TILFINNINGUM FYLGIR OFT ÚRRÆÐALEYSI Eins og hefur komið i Ijós í tengslum við fyrirbæri af þessum toga og breytir oftast gangi mála að þegar dregur úr úrræðaleysi ósjálfráðs geranda er eins og flest breytist. Þegar léttist að mun sú innri sálræna spenna sem sá á í, sem ómeðvitað verður til aö skapa skilyrði á vanda sem þessum, þá geta þau einfaldlega horfið. Það er engu líkara en að þau hreinlega smátt og smátt hverfi úr umhverfi og að- stæðum viðkomandi og bara fjari rólega út. Ekkert skal fullyrt hér um hvað nákvæmlega er í gangi heima hjá ykkur en vissar lýsingar ykkar benda til að um sé að ræða firðhræringar eða ærsl- anda-fyrirbæri sem valda vissulega vandræðum og kviða þeirra sem þau upplifa og verða fyrir. Ekki er ósennileg skýring á ástandi þessu einmitt sálará- stand það hugsanlega sem ein ykkar hefur verið í undanfarna mánuði og komið á huga hennar miklu róti. Ástand sem auðveldlega getur hafa haft ein- hver áhrif á hvað þessi fyrirbæri hafa náð í raun að verða bæði óþægileg og kröftug. Vinkonan hlýtur satt best að segja að vera mjög skapmikil í verunni og með afar sterkar og magnþrungnar tilfinningar. Þessi skýring er sennilega mjög nærri þeim stað- reyndum sem þarna eru og hafa verið að gerast öll- um til ama. Grunur minn fellur sem sagt á þá ykkar sem trú- laus er og er að auki í ákveðnu tilfinningalegu upp- námi og varð auk þessa sú fyrsta ykkar til að upp- götva eða verða hreinlega fyrir óþægindum af fyrir- bærunum. Til að ganga úr skugga um að ég sé að álykta rétt er sniðugt fyrir ykkur stöllur að skrá tíðni þessara fyrirbæra fram að þessu og athuga jafn- framt hver ykkar hefur oftast verið nálæg þegar ó- kyrrðin hefur verið hvað fyrirferðarmest. GÖMUL DÆMI UM ÁLÍKA FYRIRBÆRI Á liðnum öldum víða í heiminum hafa svona fyrir- bæri bæði verið skráð og skilgreind og fáir sem þau hafa upplifað velkst í vafa um að þau voru raun- veruleg. Visindamenn og sérfræðingar einmitt i ærslanda-fyrirbærum og firðhræringum ýmiss kon- ar hafa átt mjög erfitt með að efast um sannleiks- gildi frásagnanna. Jafnvel þó þeim hafi á stundum ofboðið hvað þau hafa verið sérkennilega mögnuð og á annan hátt óþægileg fyrir þá sem fyrir hafa orðið er vart hægt að segja að þau hafi beinlínis verið hættuleg sem betur fer. Að minnsta kosti hef ég aldrei heyrt um slíkt. Hvað þá orðið sjálf áhorf- andi þannig afleiðinga ærslanda-fyrirbæris. HVAÐ ER TIL RÁÐA? Eins og ég segi er ekki ósennilegt að það megi rekja part vandans, sem þið eigið við að striða, til einnar ykkar sérstaklega, þó ekki verði það fullyrt. Með tilliti til þess að enginn kannast við að hafa orðið var við álíka í þessu húsi áður og konan sem leigir ykkur kannast ekki heldur við að svona ástand hafi ríkt í húsinu fyrr væri kannski óvitlaust að sú ykkar sem sá þetta fyrst og líður fremur illa leitaði sér stuðn- ings sérfræðings vegna þeirra viðkvæmu tilfinninga sem hún hefur veriö að ganga í gegnum á liðnum mánuðum og trúlega ekki náð að vinna sig sjálf frá. Hún ætti að fá ráðgjöf vegna höfnunarinnar sem hún varð fyrir hjá hlýlegum og skynsömum sálfræð- ingi eða jafnvel geðlækni. Sennilegt er nefnilega að hennar viðkværna líðan kunni að hafa á ómeðvitað- an máta átt þátt í hvernig komið er og þess vegna mikilvægt að hún leiti sér áðursagðrar hjálpar. Ör- uggt er að ef þetta er rétt skýring á fyrirbærum þess- um að þau munu hverfa fyrr en ykkur grunar og þá náttúrlega í framhaldi að lausnum hennar á sínum sálræna vanda. DULRÆN FYRIRBÆRI ÖÐRUVÍSI Ef um væri að ræða óþægindi sem kynnu að stafa af til dæmis uppsöfnuðum hugsanagervum ein- hvers konar myndi það lýsa sér allt öðruvísi. Eins er að ef jarðbundin, látin, óþroskuð vera væri þarna á ferðinni myndi örugglega einhver ykkar hafa orðið fyrir einhverjum öðrum og ögn öðruvísi áhrifum sem myndu koma fram án þess að þeim fylgdi svona mikill fyrirgangur. Auðvitað er ég ekki að útiloka neitt en fátt virðist í fljótu bragði benda til að önnur skýring sé eðlilegri en sú sem ég hef þegar bent á' og tengist firðhræringum eða ærslanda-fyrirbærum. Til fróðleiks fyrir ykkur hafa verið gerðar ýmsar rannsóknir á fólki sem talið er að hafi átt þátt í að framkalla fyrirbæri það sem mér hefur orðið tíðrætt um í svarinu fram að þessu og kannski gaman að geta þess svona í lokin hvað sumir þessara rann- sóknaraðila telja sig hafa uppgötvað um eðlisþætti og persónuleika þeirra sem hafa um tíma orðið fyrir óþægindum af þessum ástæðum. Það er nefnilega nokkuð forvitnilegt að pæla í niðurstöðum þessara visu manna vegna þess að þær eru furðu margþættar og á vissan hátt líkar þeim sérstöku tilvikum sem maður sjálfur hefur orðið áskynja um. Það sem hefur til dæmis komið í Ijós við rannsóknir, og má vera að mín eigin niðurstaða liti dáiítið frásögnina, eðlilega, því sjálf sé ég ekki betur, er að viss sálarlegur vandi sé oftast í gangi hjá flestum þeim einstaklingum, ungum oftar en ekki, sem verður ómeðvitað til að skapa skilyrði á firðhræringum. HVERS KONAR MANNGERÐ? Ég hef ekki ástæðu til aö ætla að um tilviljun sé að ræða fremur en aðrir rannsóknaraðilar. Ég get vel viðurkennt að ástæður þessara sérstöku fyrirbæra geta auðveldlega verið eins margar og margbreyti- legar og mannfólkið sjálft er. Til að byrja með vil ég þó einungis halda mig við það sem ég hef skilgreint sjálf og virðist vera i samræmi við þónokkuð margar niðurstöður þeirra sem hafa haft betri rannsóknar- skilyrði en ég og trúlega fleiri tilfelli líka til að takast á við. Viðkomandi ómeðvitaður gerandi er venjulegast ágætlega greindur og með gott hjartalag. Frekar geðríkur og næmur. Tilfinningalíf og bakgrunnur til- finninga tiltölulega óþroskað en allar tilfinninga- sveiflur magnaðar þó innilokaðar hafi verið. Geð- prýði eða stilling heldur takmörkuð, að minnsta kosti við fremur lítið sálrænt áreiti ber á geðofsa. Óþarf- lega stutt í hvers kyns ójafnvægi og jafnvel aflöguð sjálfsímynd. Mikill feluleikur og flótti þegar kemur að öllu því sem flokka mætti undir eðlileg tilfinningatjá- skipti. Eins virðist vera áberandi að óleysta innri spenn- an virðist oftar en ekki fá líf í pirringi, ýmist tengdum dauðum hlutum eða bara í ófullkomnu orðaskaki við þá sem næstir eru viðkomandi. Það virðist líka bóla á hæfileikaleysi til að greiða úr eða leysa minnstu mál og oftar en ekki er um algjört sálrænt þrot að ræða sem vissulega þyrfti að fá sérfræðing í sál- fræði eða geðlækningum til að finna leiðir meö við- komandi út úr. Eins hefur mér fundist þessir einstaklingar þjást af óöryggi og vanmetakennd og sjálfsástin vera fremur bágborin. Rétt er að taka það fram að þau til- vik sem ég persónulega hef orðið vitni að hafa ekki verið það mörg að ástæða sé fyrir mig að líta á þessa ófullkomnu úttekt mína á manngerð viðkom- andi geranda sem eitthvað sem væri óskeikult eða endanlegt mat mitt. INNRI BARÁTTA Kannski má segja að meginorsök vandans sé þrá eftir ylstraumum hvers konar og persónulegri ná- lægð við einhvern sem ekki kysi það atferli í sam- skiptunum að hafna viðkomandi á neinn hátt. Með þessari upptalningu er ekkert verið að fullyrða að þessar skýringar séu þær einu réttu þegar svona nokkuð er í gangi en þær hafa örugglega töluvert til síns máls. Best er þvi þegar við verðum fyrlr ærslanda-fyrir- bærum í kringum okkur að íhuga vel hvað í okkar eigin sálarlífi kunni mögulega að skapa skilyrði fyrir slíkt fyrirbæri. Það er ekki víst að það megi flokka nema brot af vanda þeim sem upp kemur sem teng- ist einmitt svipuðum hræringum til dulrænna fyrir- bæra. Fremur að rekja megi ástandi að miklu leyti til eigin innri baráttu ómeðvitaðs geranda sem er fjötr- uð og falin svo ótæpilega fyrir bæði sjálfum honum og öðrum að af geta hlotist leiðindi sem þessi. Við ykkur, kæru stöllur, vil ég að lokum segja þetta: „Byrjið á að athuga ykkar eigið sálarástand og eflið jákvætt hugarþel til alls sem lifir innra með ykkur. Forðist allan innbyrðis ágreining og látið bæði reglulegar bænir, bæði fyrir ykkur og öðrum, fá tíma í daglegu lífi ykkar og jákvæðar hugsanir ættu að vera aðall ykkar. Umfram allt verið ekki hræddar við þetta því strangt til tekið er þetta á- stand sem betur fer einungis óþægilegt, ekki hættu- legt, að minnsta kosti ekki í ykkartilviki sýnist mér." Óni AFLEIDDUR Eins er aö óæskilegir sálrænir kraftar eflast oft við mikinn innri ótta. Þess vegna er mikilvægt að óttast ekki, fremur reyna að sýna stillingu og ögn af hug- rekki. Vonandi getið þið haft eitthvert gagn af þessu einfalda svari mínu því plássið leyfir ekki ítarlegri umfjöllun, því miður. Þar sem ykkur er tíðrætt um hugsanlegan draugagang og mögulegt áreiti látinna í öllum hamaganginum í kringum ykkur upp á síð- kastið er kannski að lokum rétt að láta þetta koma fram. Sennilegt er að eins og áður sagði að þarna séu á ferðinni uppmagnaðir innri spennuvaldar sem ein ykkar á og sem myndar skilyrði til að kraftur sem þessi nær að magnast og umpólast. Trúlega með þeim hætti að einhver ósýnileg orka bældra og óuppgerðra tilfinninga umbreytist með þessum hætti í mikla og kröftuga andlega orku sem hugsanlegt er, ef ekkert er að gert, að gæti legið í andrúmslofti hússins. Þið verðið bara sjálfar að geta ykkur til um hvað raunverulega er i gangi í kringum ykkur út frá þessum mögulegu skýringum, ef þið eruð ekki of stressaðar til þess, sem ég held ekki að þið séuð þrátt fyrir að þið séuð náttúrlega í augnablikinu dauðhræddar allar og ég lái ykkur það ekki. Málið er bara elskurnar að þetta er ástand sem vissulega með réttu hugarfari og aðgerðum má auðveldlega uppræta. Eða eins og pirraða pían sagði eitt sinn af eðli- lega gefnu tilefni: Elskurnar minar vonandi fær rúmið mitt að vera kyrrt á gólfinu í nótt og ég að sofa fyrir dularfullum dynkjum hér og þar í ibúð- inni. Ef það tekst á loft vona ég að það stoppi við gluggann svo ég sjái þó að minnsta kosti sólina þegar ég vakna í rúminu mínu sem hreyf- ist fram og aftur alla nóttina og stoppar aldrei á réttum stað að morgni." Vonandi ríkri á næstunni meiri friður í kringum ykkur stöllur og Guð gefi að þið náið að uppræta og vinna úr þessu viðkvæma og óþægilega ástandi leyndardómsfulls ófriðar heima fyrir. Með vinsemd, Jóna Rúna. LAUSN SÍÐUSTU GÁTU + + + + + R + + + M + G' E + H + + + + + + + T Æ V T F Æ R I D + R A + + + + + + AJ T P + 1' ó M + G A T + + + + + + o I N n X + 3 L A m K A + + + + + + I N A + N 3 m T G i + L + + + + + + T + + E G L ú + + p ó + F A K A N G U R + 3 V E K + S T F <r> s N A T A N N + Ý 3 A N + B A D A R + D U G + Ý G U P + R I S A R + R E + 1 Ð E K R U R + D A + 0 tt + t> i G + N 1 K F i L + 3 A + 0 T s t E m- i + N + V + N A U T N A m + M A G + R + + S I N N U L A U S + B i L A R + + K K + ó + S L U M A + ó Ð A R A F + E 1 N A T T + L A + M N + R + K A A M P E R + + V I D H A L D + P A K + U + F + V e I G U I N E i T A R A A K T + M E i N A R + G I L i D X R + + ó V Æ N T + N + K A Ð L A + + + ó L M A R + T Y G 1 + R u + + G A T + E L R I m + F A N G + R A 1C E L A + T A G + t T i N + ú t S£i R A F A L V 1 T I + T t R + S j A L + U S s A + + u N D u 3 i + 5 K A L D T Ð T A Ð + A R N 0 R + A L E X T I N A + Ð I s A M s n R 1 S M A D u R 1 + r ó I R 62 VIKAN 15. TBL.1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.