Vikan - 20.06.1995, Síða 12
BRJOST
HAFA VALDIÐ MÉR ÓMÆLDUM ÁHYGGJUM
SEGIR UNG, ISLENSK KONA I VIÐTALI VIÐ VIKUNA
VIÐTAL: ÞORSTEINN
ERLINGSSON UÓSMYNDIR:
ÞORSTEINN ERLINGSS. OG
SIGURÐUR ÞORVALDSSON
Blaöamaöur Vikunnar
var viöstaddur þegar
ung kona lét stækka
sér brjóstin og ræöir hér viö
hana um hvernig lífið hafi
verið fyrir aðgerðina, hvers
vegna hún hafi ákveðið að
láta gera þetta nú, hvers hún
hafi vænst af aðgerðinni,
hvað henni finnist um árang-
urinn og margt fleira. Það
var Sigurður Þorvaldsson,
sérfræöingur í lýtalækning-
um sem framkvæmdi að-
gerðina.
„Núna er ég að verða tví-
tug," segir þessi unga Reykj-
arvíkurmær, „en þegar var
ég tólf til þrettán ára byrjaði
ég að verða vör við að
brjóstin á mér tóku að þrosk-
ast. Þau byrjuðu aðeins að
stækka en síðan ekki sög-
una meir og mér fannst ég
vera álíka flatbrjósta og
strákur. Ég hef liöið mjög
mikið fyrir þetta og var mikið
strítt í skólanum og þá sér-
staklega af strákunum sem
köllu mig allskyns nöfnum
eins og „veggurinn" og fleira
og var ástandið í þessum
Fyrir og eftir
stækkun
brjósta stúlk-
unnar sem
blaöamaöur
Vikunnar
ræddi viö.
Innleggiö fór
gegnum
skurói á geir-
vörtubaug-
unum. „Ég er
mjög ánægó
meó þessa
ákvöróun
mína og lít
lífiö mun
bjartari
augum,"
segir hún.
efnum hvað verst í áttunda
bekk. Ég er samt viss um að
þetta hafi ekki verið illa
meint og sagt frekar í hugs-
unarleysi heldur en aö ætl-
unin hafi verið að særa mig.
Ég var í ákveðnum vina-
hópi (skólanum og var ég sú
eina af mínum vinkonum
sem var ekki með nein brjóst
en ég er viss um að það hef-
ur haft mikið að segja hvað
viö héldum hópinn vel því ég
vissi um aörar stelpur í skól-
anum, sem svipað var ástatt
fyrir, sem uröu fyrir miklu
meira aðkasti en ég.
Ég hætti algerlega að fara
í sund því ég skammaðist
mín svo mikið fyrir þessi
pínulitlu brjóst - ef brjóst
skyldi kalla.
Ég hef alltaf verið í
brjóstahaldara meö púðum i
og er ég viss um að það tvö-
falda líf hafi bæöi hjálpaö
mér, að vissu marki, og einn-
ig skemmt fyrir mér þar sem
flestir héldu að þetta væru
mín eigin brjóst en þegar
kom að því að aðstæður
urðu þannig aö fækka þurfti
fötum einhvers staðar þá var
erfitt fyrir mig að koma í veg
fyrir að fólk vissi að ég væri í
svona brjóstahaldara og
brjóstin væru engin."
SAMBANDID ENDAÐI
ÚT AF BRJÓSTUNUM
Hefurðu átt kærasta?
„Já þegar ég var sautján
ára byrjaði ég með strák og
vorum við saman ( eitt ár.
Mér fannst hann taka þessu
vandamáli mínu bara vel og
við áttum ágætlega saman.
Auðvitað fannst honum þetta
leiðinlegt en vildi samt alls
ekki að ég færi í brjósta-
stækkun en ég gat mjög vel
hugsað mér það þá því ég
þekkti t.d. tvær stelpur sem
höfðu farið í svona aðgerö
og hafði hún heppnast mjög
vel.
Þegar leið á sambandið
fór að fara ansi mikið í taug-
arnar á mér aö hann vildi
alltaf vera að strjúka á mér
brjóstin en þar sem ég
skammaðist mín svo mikið
fyrir þau þá sprakk sam-
bandið á endanum. Það var
eiginlega alfarið út af þessu
vandamáli mínu því kynlífið
var sama og ekkert þar sem
áhuginn minn á því var mjög
takmarkaður vegna þessarar
minnimáttarkenndar.
Ég er nuddari og þegar ég
var að læra geröi þetta
vandamál mitt mér mjög erf-
itt fyrir þar sem við, nemend-
urnir, þurftum að vera meira
og minna nakin og nudda
hvert annað. Það voru sem
betur fer aðeins þrír strákar í
bekknum þannig að auð-
veldara var fyrir mig að
sætta mig við þetta en ella."
Hvers vegna ákvaðstu að
fara í þessa aðgerð núna?
„Það var aðallega vegna
þess að ég er aö fara til út-
landa í haust og mig langaði
til að láta þennan draum
minn, að fara i þessa að-
gerð, rætast fyrst svo ég
gæti notið þess að gera hinn
síðari að veruleika. Þar sem
ég ætla að dvelja er mun
heitara loftslag en hér þann-
ig að búast má við að maður
verði að vera léttklæddur og
langi einnig til aö vera i
sundfatnaði.
Ég var búin að ala þennan
draum með mér lengi og
ákvað að drífa mig til Sigurð-
ar og var svo heppin að ég
komst að mun fyrr en ég
hafði haldið, því ég veit að
biðlistarnir hjá honum eru oft
langir."
VILDI BARA VENJULEG
BRJÓST
„Þegar ég kom í viðtalið
ræddum við vel saman,
FRH. Á BLS. 66.