Vikan


Vikan - 20.06.1995, Side 23

Vikan - 20.06.1995, Side 23
VIKAN Á TÖKUSTAÐ NÝRRAR BÍÓMYNDAR HASARMYND TEXTI KARL PETUR JONSSON MYNDIR: ARNA BORGÞORSDOTTIR Tökum er nýlokið á nýrri bíómynd sem hefur vinnuheitið Nei er ekk- ert svar. Eftir því sem blaða- maður Vikunnar kemst næst fjallar hún um ungar stúlkur og undirheima Reykjavíkur, en eins og kemur á daginn í þessari grein vill leikstjórinn ekki gefa mikið upp um hvað myndin sé. maður getur sér til að hann sjái um leikmuni við tökur á nýrri kvikmynd Jóns Tryggva- sonar, Nei er ekkert svar. Ekki reyndist fyrir nokkurn mun unnt að toga upp úr leik- stjóranum hver söguþráður myndarinnar sé, en dóp og peningatöskur að ógleymd- um skuggalegum náungum með byssur og hnúajárn gef- Ingibjörg Stefánsdóttir leikur glæfrakvendíó Dídí, sem vílar þaó ekki fyrir sér aó fara í dulargerfi ef sá gállinn er á henni, þrátt fyrir aó þaó stríói gegn lögreglusamþykktum Reykjavíkur. Blaðamaður Vikunnar er ur til kynna að myndin fjalli staddur í hráslagalegu um- um undirheima Reykjavíkur. hverfi Faxamarkaðar sem er ekki eins og hann á að sér að vera. Stór kvikmynda- tökuljós og mikill krani með kvikmyndatökuvél á endan- um stinga undarlega í stúf við raðir af fiskkörum fullum af ísuðum smábátafiski. Við eitt fiskkarið standa fjórir menn, hreint ekki árennilegir náungar. Tveir þeirra, Ari Matthíasson og Skúli Gauta- son, eru flóttalegir til augn- anna, ekki að ástæðulausu, því allt í einu gríþa hinir mennirnir tveir, sem standa á bak við Ara og Skúla, í hnakkadrambið á þeim og dýfa þeim ofan í vatnið, sem er hreint ekkert baðvatn, heldur ógeðfelld blanda af slori og vatni. „Komið með dóptöskuna,“ gellur við og ungur strákur, sýnilega aðstoðamaður, hleypur til og kemur með svarta skjalatösku. „Nei, þetta er peningataskan, dóptaskan er þessi brúna,“ segir sá sem áður hafði kallað og blaða- Aðalleikarar myndarinnar eru þær Ingibjörg Stefáns- dóttir sem leikur Dídí, létt- geggjaða stelpu sem virðist öllum hnútum kunnug í und- irheimum Reykjavíkur, og Heiðrún Anna Björnsdóttir sem leikur systur hennar sem býr í sveit. Ingibjörg fer að verða í hópi reyndari kvikmyndaleikkvenna en Dí- dí er þriðja aðalhlutverk hennar í kvikmynd. Hún hef- ur áður leikið í Veggfóðri og Kjartan’s Tale, víkingamynd sem var tekin hérlendis síð- asta sumar og er væntanleg í bíó innan fárra mánaða. Nei er ekkert svar er hins- vegar fyrsta hlutverk Heið- rúnar Önnu í kvikmynd. í síðustu Viku var forsíðuvið- tal við Heiðrúnu, en er það var tekið hafði hún ekki hugmynd um að hún væri að fara að leika í kvik- mynd: „Ég var að taka upp í Stúdíó Sýrlandi þegar haft var samband við mig og ég beð- in um að koma í prufu. Nonni [Jón Tryggvason, leik- stjórij lét mig hafa nokkrar Ifnur til að æfa mig á og í næstu prufu fékk ég fleiri línur. Þá var mér farið að sýnast ég eiga möguleika á því að fá hlut- verk, en mig grunaði aldrei að um væri að ræða annað af aðalhlutverkunum og brá þegar mér var boðið það!“ Hvert er hlutverk þinnar þersónu?„Ég veit ekki hve mikið ég má segja, en stelp- an, sem ég leik, heitir Sigga og hún er sveitastelpa sem verður leið á sveitinni og fer í bæinn. Þar hittir hún systur sína [sem Ingibjörg Stefáns- Ari Matthíasson og Skúli Gautason leika þessa skuggalegu náunga sem hér eru aó stíga upp úr fiskikari fullu af vatni og slori eftir aó hafa verið nánast drekkt þar af miklum helj- armennum. dóttir leikurj og saman ganga þær í gegnum at- burðarás sem breytir lífum þeirra til frambúðar." Hvaða tilgangi þjóna allir þessir peningar, dóp og byssur? „Ef ég segði þér það, segði ég of mikið um myndina. . .“ Jón Tryggvason er sem áður segir leikstjóri myndar- innar, annar handritshöfunda hennar og framleiðandi að auki. Hann var spurður hve- nær stæði til að frumsýna myndina: „Eftirvinnsla mynd- arinnar er fremur einföld, þar sem hvert atriði er aðeins Jon Tryggva- son segir hér þeim Skúla Gauta- syni og Ara Matthí- assym hvernig þeir eigi aö fara aö því aó leika skúrka. Bofinn lýtur í gras fyrir Ijósku, hver hún er verður aó koma í Ijós í bíó. eitt skot, svo við munum reyna að frumsýna myndina strax í haust." Jón er aftur á móti þögull sem gröfin um söguþráð myndarinnar: „Myndin er um ungt fólk í Reykjavík. Annað á ekki að fréttast um söguþráðinn fyrr en fólk kemur að sjá mynd- ina.“ □ ó. TBL. 1995 VIKAN 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.