Vikan - 20.06.1995, Síða 33
róttinga, formfræði, skrift,
listasögu, markaðsfræði og í
notkun lita. Þannig að þetta
er ansi fjölbreytt nám eins
og þessi upptalning gefur til
kynna. Hingað til hefur flest-
um gengið vel að fá vinnu
að námi loknu og hafa stór
fyrirtæki á borð við IKEA
boðið í góða nemendur,"
segir Palla gluggaskreyt-
ingahönnuður.
ÍSLENSKU TÖFRARNIR
HJÁLPA MIKIÐ
En hvaða kosti þarf góður
hönnuður að hafa til að
bera?
„Góður hönnuður þarf
fyrst og fremst að búa yfir
góðu skipulagi og tækni.
Hann þarf einnig að búa yfir
sjálfsaga og vandvirkni,
enda krefst starf af þessu
tagi mikillar þolinmæði.
Hönnuður verður að sýna í
verki hvað hann getur og til
að vinna traust viðskiptavin-
anna verður honum að tak-
ast vel upp. Það tekst ein-
ungis þeim sem býr yfir
þessum hæfileikum og þeim
sem hefur verulega reynslu í
faginu. Það eru allt of margir
sem ekki endast í þessu
starfi einmitt vegna þess að
þeim hefur ekki tekist að
sanna sig sem skyldi.
En íslendingum hefur
gengið mjög vel í þessum
skóla og hafa flestir náð að
sanna sig í faginu. Við Palla
segjum reyndar oft að hjá
okkur sé það hinn sanni ís-
lenski kvensjarmi sem hefur
fleytt okkur áfram,“ segir
Hildur brosandi.
Og Palla bætir við: „Hildur
er menntaður kennari þann-
ig að hún heldur uppi
ákveðnum aga í samstarf-
inu. Ég er aftur á móti þessi
dæmigerða vingjarnlega
sem er blíð við alla og öðlast
þannig traust viðskiptavinar-
ins. Þau eru ófá skiptin sem
Hildur hefur gefið mér spark
í ökklann á fundum, svona
þegar henni finnst nóg kom-
ið af kjaftæðinu í mér. En við
erum góðar saman og sam-
starfið gengur vel.“
Hvaða verkefnum eruð þið
spenntastar fyrir?
„Ég held að ég svari fyrir
okkur báðar þegar ég segi
að jólin séu í uppáhaldi hjá
okkur starfslega séð,“ segir
Hildur. „Þá er náttúrlega
mesta vinnan. Jólastemning-
in er alveg einstök og við er-
um strax farnar að hugsa um
það hvernig skreytingar
næstu jóla verða. Ekki veitir
af góðum undirbúningi því
við byrjum að panta skreyt-
ingarefni í lok sumars."
FÓTSNYRTINGAR
HLUTI AF
VIÐHALDSKOSTNAÐI
Og Palla er fljót að bæta
við: „Síðast þegar við kláruð-
um jólatörnina í lok nóvemb-
er fórum við í nudd og gufu-
bað og létum klippa neglur á
fingrum og tám. Auk þess
fórum við í andlitsbað og
ýmislegt dúllerí sem því
fylgdi. Við lágum eins og
skötur, náttúrlega dauð-
þreyttar og létum dekra við
okkur. Við drukkum nóg af
kampavíni á meðan allar
þessar aðgerðir fóru fram.
Svo fórum við út að borða
með nánasta starfsfólki og
keyþtum fallegar jólagjafir.
Þetta varaði frá morgni til
kvölds. Þegar við sendum
reikningana fyrir þessu öllu
til bókhaldarans okkar lögð-
um við á það áherslu að
þetta væri kostnaður vegna
viðgerða á verkfæruml!"
Fáið þið mikið út úr þessu
starfi?
„Já, mjög mikið,“ segja
Palla og Hildur nánast í kór.
„Þetta er, eins og við höfum
sagt, krefjandi starf og mað-
ur verður að standa sig vel,
annars leita viðskiptavinirnir
eitthvað annað. En þetta er
það sem við kunnum og því
finnst okkur gaman þegar
vel gengur. En auðvitað get-
ur maður orðið þreyttur á
þessu starfi eins og öllum
öðrum störfum. Vonandi eig-
um við þó eftir að endast í
þessu, að því gefnu að við
höfum heilsu og krafta til.
Það reynir oft á líkamann í
vinnunni. Ósjaldan erum við
að klifra í stigum og lyfta
þungum hlutum. En þannig
höldum við okkur bara í
góðri þjálfun, ekki satt,“ segir
Palla og hnyklar vöðvana.
Og Hildur bætir við: „En það
er eitt sem samstarf okkar
Pöllu hefur leitt af sér og
verður náttúrlega að koma
fram. Áhugi Norðmanna á
íslandi hefur stóraukist og
það er að sjálfsögðu vegna
þeirrar íslandskynningar
sem við Palla leggjum
áherslu á. Nú þegar hefur
einn verslunarstjóri farið til
íslands vegna okkar og við
vitum um annan sem er að
fhuga ferð þangað." □
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
Snyrtistofa & snyrtivöruverslun
Engihjalla 8 (hús Kaupgarös)
200 Kópavogi
Sími 554 0744
Alhliða snyrting - Litgreining
Katrín Karlsdóttir fótaaögerba- og snyrtifræðingur
mm- v HfawemuwFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK
Gnoðarvogi 44-46 «104 Reykjavík
sími: 553 9990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari
Inga Gunnarsdóttir
HÁRSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 <0 562 6162
HÁR- \\
tískanW
Dalshrauni 13 - 220 Hafnarfirði - Sími 555 0507
6. TBL. 1995 VIKAN 33