Vikan


Vikan - 20.06.1995, Side 64

Vikan - 20.06.1995, Side 64
BLOM ÞAÐ LEYNAST HÆTTUR í GARÐINUM TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR MYNDIR: BRIAN PILKINGTON (BIRTAR MEÐ LEYFI SVFÍ) Nú er kominn sá tími þegar garöur og gróður draga okkur tii sín hvenær sem færi gefst. í fljótu bragöi viröist enginn staður öruggari fyrir börnin okkar en einmitt garðurinn ekki síst ef við erum sjálf einhvers staðar á næsta leiti að róta í moldinni og hlú að plöntunum. En meira að segja í garöinum geta leynst hættur eins og kemur glögglega fram í bókinni Slys og varnir sem SVFÍ, Slysavarnaráö ís- lands og Landlæknisembættið hafa gefið út. Þar er listi yfir hátt í fimm- tíu garöplöntur sem geta valdiö eitrun eða ertingu. Trúlega er full- orðnum ekki hætta búin því þeir leggja sér tæpast til munns plöntur eöa plöntuhluta en börn geta gert það. Fullorðna fólkið getur þó látiö sér detta í hug að nýta til dæmis ber sem geta veriö skaðleg eins og fram kom í viðtali okkar við Láru Jónsdóttur hjá Blómavali en hún veitti aðstoö viö gerö kaflans um eitraðar plöntur. Hún sagðist vita til þess aö fólk heföi sultað ber af rauðylli en þau eru eitruð. Séu borðuö fleiri en tíu ber stafar af því hætta og séu fræin í berjunum tuggin eykst eitrunarhættan. Fyrir hefur komiö að börn leggi sér til munns áburðarkorn sem stráð hefur veriö á grasflötina. Einnig það er hættulegt. Menn ættu líka að hafa hugfast aö rétt er aö vera meö hanska á höndum þegar veriö er að dreifa áburði eða hand- fjatla plöntur sem geta valdið ert- ingu eöa eitrunarhætta stafar af. Hér á eftir ætlum viö að nefna ykkur algengar og varhugaverðar plöntur úr göröum og garöskálum en þeir sem vilja kynna sér allar plönturnar, sem i bókinni eru nefndar, geta nálgast hana til dæm- is í verslun Slysavarnafélagsins. DALALILJA ber hvit blóm sem breytast í rauð og girni- leg ber með bláum fræjum. Plantan er eitr- uö og hættu- legt að leggja sér hana, blómin eða fræin til munns. FtlDDARASPORI hefur í VENUSVAGN var algeng- ur í görðum fyrr á árum en sést nú sjaldnar. Öll jurtin er sögð eitruð þó mest blöð og rætur. TÚLIPANAR, PÁSKA- LILJUR OG HÝASINTUR BÓNDARÓS er algeng i görðum. í blómum og fræj- um eru ertandi efni. hafa í sér eitthvað af eitur- efnum og geta valdið ertingu og ofnæmiseinkennum þótt í mismiklum mæli sé. BJARNARKLÓ lítur sak- leysislega út en allir hlutar plöntunnar eru eitraðir. ALPARÓS vex og verður að hávöxnum runna. Plant- an er öll eitruð. ULAFABAUNIR - LUP- ÍNA er til bæði villt og sem garðblóm. Eiturefni eru aðal- aður. er talinn eitr- GULLREGN hefur 1 lengi þótt fallegt en það er samt sem áöur eitraö og fræbelg- irnir geta freistaö barna. Að- eins örfá fræ geta valdið eitr- un. TÖFRATRÉ þroskar rauð ber sem eru eitruð. Sama gildir um plöntuna alla. ÝVIÐUR þorskar ber sem í eru eitruð fræ. KRISTPYRNIR, sem við þekkjum vel af jólamyndum aðallega frá enskumælandi löndum, er farinn að ryöja sér til rúms hér, sérstaklega í garðskálum. Börnum getur stafað hætta af að borða þó ekki sé nema fimm ber. RAUÐYLLIR er eins og fram kom hér aö framan ekki ætlaður til sultugerðar því berin eru eitruð. HEGGUR er algengur í görðum, sérstaklega göml- um görðum. Allir hlutar hans nema aldinkjötið eru eitraðir. LÍFVIÐUR er vel þekktur úr jólaskreytingum. Greinar og nálar eru eitraöar. Sagt hefur verið að hann hafi ver- ið notaður í tengslum til fóst- ureyðingar fyrr á öldum. □ 64 VIKAN 6. TBL. 1995

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.