Vikan - 20.06.1995, Side 68
FERÐALOG
SVAVA JONSDOHIR
JÓN MAGNÚSSON
Yfir sumartímann
býöst sól- og menn-
ingarþyrstum íslend-
ingum beint flug til höfuö-
borgar Katalóníu, Barcelona.
Enn tilheyrir Katalónía Spáni
en á dánarbeðinu baö ein-
ræðisherran Franco krón-
prinsinn, Juan Carlos de
Borbón núverandi konung,
aö hann viðhéldi einingu
Spánar. Það hefur hann
gert. Katalóníubúa dreymir
þó um sjálfstæöi og þeir tala
sína eigin tungu, katalónsku.
Þeir eru stoltir af uppruna
sínum og höfuöborginni,
Barcelona. Þótt rúm milljón
manna búi í borginni virkar
hún ekki mjög stór; ef til vill
er það vegna þess aö hún
afmarkast aö stórum hluta af
Miðjarðarhafinu og fjöllunum
í kring, Montjuic og Tibida-
bo.
Einn elsti borgarhlutinn,
sem tilheyrir miöbænum, er
gotneska hverfiö þar sem
dómkirkjan er og torgiö
Placa del Rei en sagt er aö
kaþólsku konungshjónin
Fernando og Isabel hafi tek-
iö þar á móti Cristobal Col-
ón, sem er betur þekktur hér
á landi sem Kristófer Kólum-
bus, 3. apríl 1493 þegar
hann kom úr fyrstu Ameríku-
för sinni. Listagyðjan hefur
haft áhrif á marga syni Kata-
lóníu svo sem Picasso, Dalí
og Gaudí. Picassosafniö er í
gotneska hverfinu. Þaö læt-
ur lítið yfir sér aö utan, er í
gamalli, grárri múrsteins-
byggingu, en inni er aö finna
margar af gersemum meist-
arans.
Ein frægasta gata borgar-
innar er Las Ramblas sem
liggur meöfram gotneska
hverfinu og langleiðina niður
aö höfn. Katalóníubúar tala
jafnvel um aö „ramblejar".
Þaö er alltaf líf og fjör á Las
Ramblas; tónlist-
armenn láta Ijós
sitt skína og páfa-
gaukar, blóm, bækur og
blöð bíða nýrra eigenda. Við
götuna er óperuhúsið Gran
Teatre del Liceu þar sem
frægir óperusöngvarar hafa
komiö fram, svo sem kata-
lóníubúarnir José Carreras
og Montserrat Caballier.
1862 kviknaði I því og það
varð aftur fórnarlamb misk-
unnarlausra eldtungna á síö-
asta ári. Frá Las Ramblas er
gengið inn á torgið Placa
Reial þar sem notalegt er aö
sitja fyrir utan veitingastaöi á
hlýjum sumarkvöldum en á
torginu eru Ijósastaurar sem
er hönnun Gaudís og eru
þeir sannkallað listaverk.
Mercado de la Boquería
stendur sömuleiöis viö Las
Steindir gluggar á skrifstofu Feróamálaráös Katalóníu.
Svaladrykkir teigaöir í skugga sólhlífar.
Torgiö Placa Reial viö „Römbluna". í forgrunni sést í
Ijósastaur sem meistari Gaudí á heiöurinn af.
TEXTI:
UÓSM.: ÞÓRARINN
Þröng stræti,
byggingar frá miööldum,
söfn og listaverk,
byggingar í
módernismastíl,
verslanir meö
tískuvarning og nýjustu
hönnun, strendur. ..
Dómkirkjan í
Barcelona er
í gotneska
hverfinu.
Siguröur Helgason, forstjóri
Flugleiða, og fyrrverandi
samgöngumálaráöherrann,
Halldór Blöndal, sá síóar-
nefndi nýbúinn aö opna
formlega flugleiðina á milli
Keflavíkur og Barcelona.
68 VIKAN 6. TBL. 1995