Vikan - 20.01.1996, Page 42

Vikan - 20.01.1996, Page 42
LJÓNIÐ 24. júlí - 23. ágúst Febrúar: Nú leggur þú grunn að árangri í núverandi eða væntan- legu sambandi. Vertu viðbúinn að finna fyrir sterkum straumum frá 10. febrúar og dragðu þig ekki í hlé því þú átt rómantískan mánuð fyrir höndum. Þú munt endurmeta stöðu þína í vinnunni aftur og aft- ur þessa dagana. Þú hefur þörf fyrir að brjóta upþ þitt hefðbundna munstur sem veldur þér óróa. En ef þú gerir skothelda áætlun og heldur þig við hana eru meiri líkur á að ná árangri. Samband þitt við aðrar manneskjur er með besta móti ef þú heldur aftur af þeim galla þínum að vilja alltaf ráða. Þú átt möguleika á að koma böndum yfir fjármál þín og launin verða umframfé sem þú áttir síst von á. Mars: Fyrstu vikuna eru ástarenglarnir á ferðinni og þú mátt nú vera meiri klaufinn ef þú verður ekki skotinn. Það sem var bara daður fyr- ir nokkrum dögum getur hugsanlega breyst í alvarlegt samband um þetta leyti. Miklu skiptir að þú aukir víðsýni þína í garð annars fólks,- það gerir þér meira gagn því þú verður þolanlegri. Ný áhugamál verða til þess að þú kynnist nýjum hliðum á þér. Það opnast miklir möguleikar í lok mánaðarins og þú munt tengjast fólki og hugmynd- um sem koma til með að vera þér mikils virði til lengri tíma. Þú finnur fyrir þörf til að vera hreinskilin við nána vini. Skyndileg hugdetta verður til þess að þú ferðast suður á bóginn í kringum 25. mars. Apríl: Það verða snarpar umræður milli þín og samstarfsmanna. Þú ert í góðu jafnvægi og ert drífandi og lítur björtum augum á framtíðina en samstarfsmenn þínir eru heldur á niðurleið. Þú hefur það forskot að komast að innsta kjarna fljótt og örugglega. Frá 8. apríl verður Satúrnus ráðandi í þinu merki og það gefur þér góða 40 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.