Vikan - 20.01.1996, Síða 46

Vikan - 20.01.1996, Síða 46
opna augu þín fyrir nýjum möguleikum. Þér mun reynast ný reynsla holl lexía. Fram að páskum verður fjölskyldulífið gefandi og þú mátt eiga von á stuðningi frá ættingja sem þú hefur haft lítið samband við fram til þessa. Maí: Samskipti og málamiðlanir eru þínar ær og kýr um þessar mundir. Þú átt möguleika á að sigrast á hvaða vanda sem er. Þú átt í vandræðum með að setja þér skorður og þú hefur tilhneigingu til að líta aðeins á yfirborðið. Þú getur haft mikil áhrif á vinnu þína. Eldmóður þinn er mikill og þú átt ekki í neinum vandræðum með að ná þínu fram. [ sambandi við ástina eru gerðar væntingar til þín og þú ættir að hlýða því, jafnvel þótt þér finnist það draga úr orku- brunni þínum. Allan mánuðinn ertu vakandi í peningamálum og þú vilt eyða í fríið sem þú væntir mikils af. Júni: Þú átt í erfiðleikum með að ná til vina þinna og maka í byrjun mánaðarins. Það þarf þó ekki að vera þeim að kenna og þú ættir að líta í eigin barm. Ef þú vilt getur þú svo auðveldlega leyst stærstu vandamálin og á móti kemur að þú ryður mörgum hindrun- um úr vegi. Sumar meyjur vilja gjarnan flytja eða breyta hinu gamla fari. Notaðu fyrstu vikuna til að íhuga framtíðina vel. Júlí: Sumarveðrið léttir skap þitt til muna og gleði þín smitar út frá sér. Þú mátt eiga von á kröfum frá maka þínum. Þér líður það vel að þú sérð lausnir á öllum vandkvæðum. Ef þú ert í vandræðum með gamalt samband og dragnast með „lík í lestinni“ skaltu taka af skarið. Það verður kannski til þess að gömul bönd bresti en á móti kemur að þú ert með hreint borð. Meyjur í fríi eiga fyrir höndum eitt það allra besta sumarleyfi sem þær muna. Það mun gagnast þér að hlusta á þér vitrari mann í peningamálum. I lok mánaðarins áttu möguleika á því að gera góð kaup. Ágúst: Það eru líkur á breytingum í vinnu þinni. Þú færð tilboð sem gefur meira í aðra hönd en þú átt að venjast og ( kjölfarið líta fjármál þín betur út. Áhugamál þin eru í brennidepli nú um stundir. Kannski velur þú að nota fríið þitt til náms sem verður til þess að þú sérð veröldina í nýju Ijósi. Þú kynnist nýju fólki og þitt góða skap laðar til sín ólíklegustu manngerðir. Frá þeim 8. kemur meiri ró yfir þig en jafnframt blómstrar ástin og rómantíkin. Þú hlustar á hjarta maka þíns og átt auðvelt að tjá tilfinningar þínar. September: Bjartsýni þín eykst og þú átt i vændum innihaldsríka 44 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.