Vikan - 10.09.1998, Qupperneq 15
Hér er onnur lávaxin og valdamikil.
Ingibjorg Sólrún Gisladóttir er lávax-
in en mikil manneskja.
Klæddu þig rétt!
Gættu þess hvernig þú klæð-
ir þig. Vertu í síðum jökkum
og stuttu pilsi eða öfugt.
Veldu fatnað með smáu
mynstri og hafðu hann úr
mjúku efni. Belti eiga að vera
samlit efni á pilsi eða kjól.
Ekki hneppa upp í háls - opið
hálsmál lengir þig. Vertu í
skóm og sokkum í sama lit.
Ekki missa móðinn!
Að öllu framansögðu er þó
ekki rétt að draga þá ályktun
að smávöxnum konum gangi
endilega alltaf verr en hinum
hávöxnum að komast til
borgu Lofts, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Verðbréfa-
markaðs Islandsbanka,“ segir
Katrín, sem hefur starfað hjá
Hagvangi í 15 ár og þekkir því
vel til íslenska viðskiptalífsins.
Hún talar líka af reynslu því
hún er nýorðin einn eigenda
að stóru, alþjóðlegu fyrirtæki
- og bendir á sjálfa sig: „Ég er
ekki nema 1.64 sm á hæð!“
Teitur Lárusson, sem hefur
rekið eigin ráðningarþjónustu
síðustu 10 árin, var áður
starfsmannastjóri Sláturfélags
Suðurlands í 17 ár og hefur
því hartnær þriggja áratuga
reynslu af mannaráðningum.
Hann segist aldrei hafa heyrt
neitt um það að hæð og völd
fari saman og aldrei orðið var
við þetta. í sama streng tekur
María Ósk Birgisdóttir hjá
STRA starfsráðningum: „Ég
hef aldrei heyrt á það minnst
að vinnuveitendur vilji ekki
ráða manneskju til starfa
vegna hæðar hennar og þá
skiptir ekki máli hvort hún er
hávaxin eða lágvaxin. Jafnvel
þótt eitthvað slíkt hvarflaði að
vinnuveitanda, held ég að
hann myndi aldrei gefa það
upp. Þetta hlýtur að vera sér
amerískt fyrirbrigði - sem bet-
ur fer!“
Gott er til þess að vita að ís-
lenskir atvinnurekendur skuli
gera sér grein fyrir að meira
þarf til en sentímetra þegar
fela á fólki ábyrgðarstöðu.
Margar íslenskar konur hafa
náð langt án þess að nokkur
hafi velt fyrir sér hvort þær
séu hávaxnar eða lágvaxnar
og er borgarstjórinn í Reykja-
vík kannski nærtækasta dæm-
ið. Og ef við viljum fara út í
heim þá þurfum við ekki ann-
að en að horfa á Madeleine
Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til að sjá að
sentímetrar hafa ekkert með
völd að gera...!
Lækkaðu róminn
Ekki beita röddinni til að
sýna mátt þinn. Finndu lægsta
tóninn og haltu honum. Lág-
vöxnum konum hættir oft til
að beita „barnalegri“ röddu.
Það eru mistök.
Eigðu frumkvæðið
Gættu þess að eiga sem oft-
ast frumkvæðið. Vertu fyrst til
að rétta fram hönd þína, fyrst
til að ná augnsambandi og
fyrst til að hefja samræður.
Gefðu þér nægilegt rými
Konum hættir til að hafa allt
pent í kringum sig. Breiddu úr
blöðunum á skrifborðinu þínu
og færðu stólinn þinn örlítið
frá borðinu. Sýndu að þú
þurfir rými.
Ekki standa hjá hávaxinni
manneskju
Stattu aldrei við hlið þess
sem er hávaxnari en þú, getir
þú komið því við. Þetta á til
dæmis við á fundum þar sem
staðið er...
Sittu
Það besta við sæti er að allir
sem sitja virðast vera jafn
háir. Ef þú þarft að eiga alvar-
legar samræður við viðskipta-
vin, bjóddu honum þá út að
borða eða á kaffihús - á stað
þar sem öruggt er að þið sitjið
bæði.
valda. Að sögn Dale Flanag-
an, framkvæmdastjóra í New
York, er það lágvaxna konan
sem hefur mun meiri áhyggjur
af hæð sinni en aðrir. Og þótt
Flanagan viðurkenni að oft
gangi hávöxnum konum betur
að fá starf þá er það alltaf á
endanum „gáfur, löngun og
metnaður sem bæta upp þá
sentímetra sem á vantar“.
BANDARÍSKUR VERU-
LEIKI?
Hvernig skyldi þessum mál-
um vera háttað hér á landi?
Skiptir hæð kvenna máli þeg-
ar ráðið er í ábyrgðarstöður?
„Nei“, er sameiginlegt mat
fólks sem starfar á ráðningar-
stofum: „Ég hef aldrei heyrt
að hæð skipti máli við ráðn-
ingar,“ segir Katrín Óladóttir,
ráðningarstjóri hjá Hagvangi
og einn eigenda alþjóðafyrir-
tækisins Pricewaterhouse-
Coopers. „Menn gera ekki at-
hugasemdir við hæð og útlit,
nema það hreinlega hamli
fólki í starfi. Það getur hent
þegar leitað er að afgreiðslu-
fólki til verslunarstarfa að
beðið sé um að tekið sé tillit
til hæðar, en aldrei þó þannig
að það sé skilyrði eða verði til
þess að viðkomandi fái ekki
starfið. Það eru margar konur
sem eru ekki hávaxnar í
ábyrgðarstörfum á íslandi og
nægir þar að benda á Vil-
15