Vikan - 10.09.1998, Blaðsíða 50
Helena Eyjólfsdóttir söngkona hefur sungið dægurlög frá 16 ára aldri og hún er enn að. Eftir frá-
fall eiginmanns síns, tónlistarmannsins Finns Eydal, hefur hún stofnað hljómsveit og stendur á
eigin fótum. "Við Finnur vorum sem eitt í tónlistinni en söngurinn gefur mér svo mikið að ég get
ekki sagt skilið við hann," segir söngkonan sem syngur hástöfum með Celine Dion!
Lítið sungið opinber-
lega þar tu nú
“Tónlistin snýr öðruvísi að
mér eftir að Finnur dó. Núna
stend ég á eigin fótum. Fyrsta
eina og hálfa árið sem Finnur
var í nýrnavél í Reykjavík var
hljómsveitin hans starfandi,
en alltaf varð erfiðara fyrir
hann að koma fram þó hugur-
inn væri brennandi. Ég hafði
miklar áhyggjur af honum á
þessum síðustu dansleikjum
og var sífellt að hugsa um
hann en í dag hef ég engar
áhyggjur því ég hef aðeins
sjálfa mig að hugsa um,” segir
Helena og brosir en hún hef-
ur lítið sungið opinberlega
eftir fráfall Finns.
“Eftir að ég fór að annast
Finn í nýrnavélinni hérna
heima, sem var í fjögur ár,
gafst ekki tími fyrir hljóm-
sveitina. Ég gat hreinlega
ekki gert meira þar sem ég
var einnig útivinnandi allan
daginn. Þessi ár eru þó ekki
eini tíminn sem ég hef ekki
sungið opinberlega en ég
söng lítið meðan ég var með
krakkana mína unga. En það
50
V_____________________________
var aldrei langur tími í einu.”
Söngurinn hefur alltaf skip-
að stóran sess í lífi Helenu og
hún talar um að í dag gefi
hann sér rosalega mikið því
nú hafi hún tíma, “tíma sem
ég hafði aldrei áður. Það er
tilbreyting fyrir mig að syngja
og spila í hljómsveitinni
minni, en þar eru með mér
Alfreð Almarsson, samstarfs-
maður minn til margra ára, og
Sigurður Þórarinsson. Við
tökum að okkur að spila mús-
ík fyrir fullorðið fólk eins og
við segjum; gömlu lögin, og
auðvitað gömlu dansana, en
númer eitt músík sem ærir
ekki fólk. Mér finnst gaman
að syngja þessi lög sem við
erum að taka, lögin sem ég
söng með Hljómsveit Ingi-
mars Eydal og eins með Finni.
Ég held að það séu lög sem
fólk vill heyra þegar það fer út
að skemmta sér.”
Allt að koma á gamals
aldri
Tónlistin er aldrei langt und-
an hjá söngkonunni Helenu
og hún segist hlusta miklu
meira á tónlist í dag en hún
hafi nokkurn tíma gert. “Ég
hlusta aðallega á góðar söng-
konur og jass. Ég segi alltaf að
ég sé alin upp við jassinn
vegna þess að jass var spilaður
á þessu heimili í 30 ár.”
Aðspurð um það hvort hún
hafi aldrei sungið jass segist
hún lítið hafa gert af því. “Ég
söng að vísu inn á eina jass-
plötu hérna í gamla daga og í
vor tók ég upp þráðinn að
nýju en þá söng ég á jasstón-
leikum á Akureyri með þrem-
ur öðrum söngkonum. Það
var mjög gaman. Ég þurfti að
leggja heilmikið á mig en ég
valdi mér nú heldur ekki auð-
veld lög til að syngja. Fyrir
utan það þykir mér konsert-
söngur mjög erfiður. Ég er
vön því að fólk veiti mér
mátulega athygli á sviði með
danshljómsveit en þar sem ég
stend uppi á sviði, í dauða-
þögn og allir horfa á mig,
finnst mér mjög erfitt. En ég
held að það sé hægt að venjast
því. Ég kveið þessu kvöldi
mikið en ég hafði gaman af
því eftir á þar sem móttökurn-
ar voru góðar. Ég ögraði líka
sjálfri mér með því að taka
tvö lög sem ég hafði aldrei
sungið áður.”
Helena er töluvert beðin um
að koma fram. “Ég skrapp um
daginn til Reykjavíkur og
söng í brúðkaupsveislu. Þar
reyndi einmitt á þetta sem ég
var að tala um, að halda utan