Vikan - 10.09.1998, Blaðsíða 22
Lífsreynslusaga
Með
]grátstafinn í kverkunum
í tvö ár eftir fæðingu fyrsta barnsins
Hún er glæsileg kona um fer-
tugt vel klædd og í góðri
stöðu. Hún er glettin og kát,
ein af þessum ofurkonum sem
virðast hafa alla þræði í hendi
sér og geta allt. Það er erfitt að
ímynda sér að þessi kona hafi
einhvern tímann verið svo lítil
í sér að hún hafi ekki treyst sér
til að taka upp síma og panta
tíma hjá lækninum sínum en
þannig segir hún að sér hafi
liðið. Fyrir rúmum tuttugu
árum var þessi kona illa haldin
af eftirfæðingarþunglyndi og
leið, að eigin sögn, verr en
nokkru sinni fyrr eða síðar á
ævinni. Hún vill ekki koma
Jiö'j/j jjjóöur sjjujEir j' knn'jíiui
hébhí'jíi ijíjjjs. j-Jíin ísijii aij
h'UJXJ VÍÍJ UXjdíJXJ 'Jl) 'JÍiJXJ ÍJ/ -ii-
iuj/öuxxj a/j xxJEJ/yi xjejxí xjúxj ejJJ'J
iíi) yjJj'Jt) /ÍisJíuöiJ I x/áMj/j
sÍ/j/jí.
55
Eg
var 23 ára og hafði
nýlokið háskóla-
prófi með góðum
árangri. Ég taldi mig færa í
flestan sjó og eiga bjarta fram-
tíð fyrir mér. Okkur hjónin
langaði að eignast barn og það
varð úr að við ákváðum að
þessi tímamót hentuðu vel til
að stofna fjölskyldu. Allan
meðgöngutímann var ég fíl-
hraust og blómstraði. Hárið á
mér hafði aldrei vaxið eða
glansað annað eins og negl-
urnar voru eins og á kvik-
myndastjörnu. Allar konurnar
í minni fjölskyldu höfðu átt
auðvelt með að eignast börn
og ég sá ekki nokkuð því til
fyrirstöðu að eins yrði um mig.
Eg kveið því engu og læknar
og hjúkrunarlið virtust gera
ráð fyrir að allt gengi snurðu-
laust fyrir sig. Þegar leið að
lokum meðgöngunnar kom í
ljós að barnið var stórt og ég
því send í grindarmælingu. Að
sögn læknisins sem fór yfir nið-
urstöður mælingarinnar átti ég
að vera fær um að fæða helm-
ingi stærra barn. Ég spurði
hvort ég ætti þá bara að sleppa
ungbarnastiginu og eignast
eitt um fermingu. Hann svar-
aði því þá til að grindarmálsins
vegna gæti ég það sjálfsagt.
Ég gekk með nokkra daga
fram yfir þann tíma sem lækn-
arnir höfðu reiknað út í upp-
hafi meðgöngunnar og þá fór
blóðþrýstingur minn að
hækka. Ég var því lögð inn og
neydd til að liggja alveg kyrr í
rúminu, mátti ekki einu sinni
fara á klósettið. Ég var á átta
manna stofu og fannst and-
styggilegt og niðurlægjandi að
þurfa að gera þarfir mínar í
bekken fyrir framan stofufé-
lagana og reyndi því að laum-
ast á klósettið þegar þörfin var
brýn. Þetta aflaði mér ekki
vinsælda meðal starfsfólksins
sem var farið að vakta mig og
skamma þegar til mín náðist.
Þetta endaði í miklu tilfinn-
ingauppnámi hjá mér og fæð-
ingin fór af stað.
I fyrstu gekk allt vel en þeg-
ar kom að því að fæða virtist
allt standa fast og ég gat ekki
komið barninu í heiminn. Þeg-
ar hríðarnar höfðu staðið yfir í
hátt á annan sólarhring var ég
orðin útkeyrð og svo aðfram-
komin að ég sá allt í móðu.
Hjúkrunarfólkið virtist mér
vera einhverjar svarthvítar,
óhugnanlegar verur á sveimi
um herbergið. Ég var með öðr-
um orðum hálf meðvitundar-
laus. Þá datt lækninum í hug að
mæla blóðþrýstinginn og í ljós
kom að hann var hættulega
hár. Hann dældi blóðþrýst-
ingslækkandi lyfi í æð á hand-
leggnum á mér og vakthafandi
sérfræðingur var kallaður til
að ná barninu sem fyrst með
sogklukku.
Hringvöðvarrtir nánast
lamaðir og
Þá byrjaði martröðin fyrst
fyrir alvöru. Ég var klippt al-
veg aftur í endaþarm, mér
fannst eins og sjóðheitur hníf-
ur færi gegnum holdið svo
mikill var sársaukinn. Mér var
sagt að ég ætti að vera svo dof-
in að ég gæti ekki fundið þetta
og sussað var á mig þegar ég
öskraði af sársauka. Það tók
síðan hálftíma að ná barninu
og allan tímann fannst mér
sem verið væri að reyna að
slíta líkama minn í tvennt með
handafli. Þegar ósköpunum
lauk og ég fékk son minn á
bringuna vorum við bæði svo
útkeyrð að ég gat einungis
klappað honum máttleysis-
lega á bakið og hann amraði
örlítið en grét ekki. Þetta olli
mér áhyggjum og ég spurði
hvort ekki væri allt í lagi með
barnið. Læknirinn svaraði því
þannig að barnið væri fílhraust
en hann hefði meiri áhyggjur
af mér. A tímabili í fæðingunni
hefði hann talið að þeir væru
að missa mig.
Þetta var mikið áfall. Ég var
ung og hraust og hafði fram að
þessu trúað að ég yrði eilíf. Það
hafði virst óhugsandi að líkami
minn gæti brugðist mér. Ég var
því gjörsamlega niðurbrotin
og fann strax á sjúkrahúsinu
vanmátt minn gagnvart þessu
litla barni og þeirri miklu
ábyrgð sem ég bar gagnvart
því. Þessi tilfinning jókst síðan
stöðugt eftir að heim var kom-
ið og á hverri nóttu fékk ég
martraðir. Einhver var að taka
af mér barnið eða elta okkur
mæðginin í þeim tilgangi að
gera okkur illt. Ég var einnig
stöðugt hrædd um að verið
væri að brjótast inn í húsið og
hrökk upp við minnsta hljóð.
Ég hef ekki tölu á þeim nótt-
um sem ég gekk um vopnuð
einhverju búsáhaldi til að leita
að ímynduðum þjófum. í
fyrsta skipti á ævinni hafði ég
stanslausar áhyggjur af heilsu
minni. Sennilega vegna þess
hversu hætt ég var komin.
Maðurinn minn var mikið að
heiman vegna vinnu sinnar og
ég var stöðugt hrædd um að
eitthvað kæmi fyrir mig og
barnið fyndist illa á sig komið
einhverjum dögum seinna yfir
meðvitundarlausri eða látinni
móður.
Það hljómar ef til vill fáran-
lega en það er svo innbyggt í
menningu okkar að hápunkt-
urinn í lífi hverrar konu sé fæð-
ing fyrsta barnsins að þegar
illa gengur finnst okkur flest-
um við hafa brugðist og við
vera síðri en hinar sem fara í
gegnum þetta eins og þær séu
að drekka vatn. Þetta eykur
enn á vanmetakenndina og
sektarkenndina yfir því að
þessi mikla hamingja og full-
nægja kveneðlisins láti á sér
standa eða sé í manns tilfelli
einfaldlega öfugsnúin.
Ég var auk þess mjög bólgin
að neðan lengi á eftir og hring-
vöðvarnir nánast lamaðir. Eg
þjáðist því ýmist af harðlífi eða
átti í vandræðum með að kom-
ast á klósett áður en eitthvað
hafði lekið í buxurnar. Ég varð
að ganga með bindi löngu eft-
ir að hreinsuninni lauk því
þvag átti til að leka frá mér al-
veg fyrirvaralaust.
Var viss um að hún vœri
afskrœmd að neðan og
þorði ekki að skoða
Eins og nærri má geta var
sambandið við manninn minn
ekki gott. Hann gat ekkert gert
svo mér líkaði og ég vildi lítil
samskipti eiga við hann. Ég
var sannfærð um að ég væri af-
skræmd af örum þarna niðri og
vildi ekki einu sinni skoða það
22