Vikan - 10.09.1998, Blaðsíða 48
Þurrkuð blóm
Texti: Jóhanna G. Harðardóttir Myndir: Gísli Egill Hrafnsson o.fl
Símaskráin er ágætt tæki til að
þurrka blóm og best er að nota þá
innbundnu. Ef notuð er sú „lina“
þarf að setja spjöd við útsíðurnar
til að halda henni stífri meðan
blómin þurrkast. Hafið hvítan Ijós-
ritunarpappír beggja vegna jurt-
anna til að auðvelda það að ná
þeim heilum úr pressuninni
Margir hafa gaman af að
safna fallegum blöðum af
trjám og blómum og
þurrka. Sumir þurrka
jafnvel heilu blómin og
búa til listaverk úr þeim.
Blöð í haustlitunum eru
meðal glæsilegasta og
fjölbreytilegasta föndur-
efnis sem við fáum og
hér eru nokkrar hug-
myndir handa þeim sem
vilja prófa sig áfram með
þurrkaðar jurtir.
I margs nytsamleg
Falleg sem skraut
Þurrkuð blóm er hægt að
nota í ýmiss konar skraut. Þau
eru frábær til að punta með
smáöskjur, bréfsefni, borð-
skort og jólakort auk þess
sem þau má nota til að búa til
myndir.
Aðferðin
Þeir sem aldrei hafa reynt að
þurrka jurtir geta glatt sig við
að ýmsar aðferðir eru notaðar
og margar með góðum ár-
angri.
Algengast er að þurrka blöð
og þunn blóm í pappír, s.s. í
símaskrám eða öðrum efnis-
miklum doðröntum. Inn-
bundna símaskráin er einhver
ákjósanlegasti þurrkunarstað-
urinn sem völ er á, en ef nota
á þá linu verður að setja hart
pappaspjald innan við kápuna
48
til að halda síðunum stífum.
Best er að hafa u.þ.b. 100
síður milli plantnanna og
alltaf verður að hafa hvítt
blað undir og ofan á þeim.
Límlakk gerir föndrurum kleyft að
nota þurrkaðar jurtir til að
skreyta með öskjur.
Leggið jurtirnar fyrst neðst í
bókina, flettið síðan og leggið
næsta blaðaskammt þar á og
svo koll af kolli þar til bókin
er full. Lokið henni vel og
leggið hana flata á stað þar
sem hún fær að vera í friði.
Best er að setja ofan á síma-
skrána þungt farg, t.d. góðan
stafla af bókum.
Ef árangur á að nást er lang-
best að gleyma bókinni næstu
tvo til þrjá mánuðina eða svo.
Límlakk á pappír
Þægilegasta aðferðin til að
nýta þurrkuð blóm og blöð er
að nota límlakk. Límlakkið
fæst í föndurvöruverslunum
og sameinar bæði lím, sem
festir blöðin á flötinn, og lakk,
sem ver skreytinguna. Lím-
lakkið má nota á pappír, tré,
bast og ýmsan málm og það er
borið beint á flötinn. Þegar
límlakkið er komið á er blað-
ið lagt ofan í og lagað til eftir
því sem hægt er. Gætið þess
að blaðið liggi alveg flatt á
pappírnum áður en lakkað er
yfir. í föndurvöruverslunum
eru til sérstakir svamppenslar
sem henta mjög vel til að
lakka yfir viðkvæmar skreyt-
ingar. Tvær umferðir eru
nauðsynlegar til að lakkið
þekji blöðin örugglega en
varist samt að hafa þær fleiri
svo skreytingin verði ekki of
stíf og eigi á hættu að brotna.
Þurrkaðar jurtir eru tilvaldar í
kortagerð.