Vikan - 10.09.1998, Qupperneq 19
N/lega var hafinn innflutningur á BODYpHASE ilmolíum sem eru byggðar á
nýrri tækni sem Robert Wulff þróaði. Tvær gerðir ilmolta eru blandaðar raka-
gefandi húðolíu í flösku en geymdar í sviflausn þannig að notandinn þarf að
hrista flöskurnar til að virkja olíurnar sem síðan skiljast aftur að eftir notkun.
slaka og róa eða til að auka unað
ástarlífsins. Ilmolíur hafa einnig
stundum verið notaðar á þann
hátt að olíunni er hellt í skál og
hún hituð; kerti gjarnan haft und-
ir skálinni. Til eru sérstakar skálar
ætlaðar til þessara nota. Ilmurinn
stígur upp þegar skálin hitnar og
sá sem meðferðarinnar nýtur ligg-
ur og andar að sér ilminum. Pað
má einnig setja nokkra dropa af
hreinni olíu í skál með sjóðheitu
vatni og anda að sér gufunum. Þá
er best að setja handklæði yfir
skálina og anda að sér gufunum í
eins þéttu formi og hægt er. Það
er mikilvægt að muna, þegar
ilmolíumeðferðar er notið, að
ilmurinn er fljótur að dofna og til
Ilmolíurnar má einnig setja í
bómullarhnoðra á ofn en hitinn
eykur lyktina sem berst um íbúð-
ina og veitir íbúum hugarró, orku
og gleði. Hreina ilmolíu má svo
blanda í vatn, setja í úðabrúsa og
sprauta víða um íbúðina til að fá
híbýlailm sem einnig er líknandi
og gefandi.
Ilmolíumeðferð er notuð við
þunglyndi og streitu, til að örva
og fríska eða til að slaka á vöðv-
um sem eru spenntir vegna
vöðvabólgu eða gigtarvandamála.
Einnig eru til bólgu- og bakteríu-
drepandi ilmolíur, ilmolíur sem
hreinsa húð og draga úr unglinga-
bólum. Ilmolíur eru góðar við ein-
beitingarskorti, svefnleysi, fyrir-
Til er BODYpHASE ilmolíulíkams-
úði, olíur til að styrkja neglur og
mýkja naglabönd og sturtugel. I
sturtugelinu eru ilmolíur i litlum
perlum sem springa þegar gelið er
borið á líkamann og ilmurinn stíg-
ur upp ómengaður og hefur sín
áhrif.
að halda honum sterkum sem
lengst er ráð að loka að sér, draga
sturtuhengi vel fyrir baðið eða
sturtuna og loka gluggum og dyr-
um. Þegar ilmolíur eru notaðar í
bað eykst gagnsemin því hún felst
þá jafnt í því að anda að sér guf-
unum og að taka olíuna inn um
húðina.
tíðarspennu, bakverkjum, háls-
bólgu, kvefi og sveppasýkingum.
Ilmolíum er oft blandað saman
en ekki þykir æskilegt að nota
fleiri en tvær eða þrjár saman í
senn. Olíurnar eru mjög sterkar
og því oftast nær blandaðar öðr-
um olíum áður en þær eru bornar
á líkamann.
Ilmolíumeðferð gagnast við:
•þunglyndi og kvíða
•streitu
•vöðva- og gigtarverkjum
•meltingarkvillum
•fyrirtíðarspennu, tíðahvörfum og
•sjúkdómum eftir fæðingar
•húðkvillum
•ófullnægjandi ástarlífi
Gott að muna þegar ilmolíur eru notaðar:
Til að ihnurinn og gufurnar nýtist sem best er gott
að loka vel að sér meðan olían er notuð. Ekki nota
þær óblandaðar. Þær má aldrei taka inn. Ilmolíur
eru ekki æskilegar fyrstu þrjá mánuði meðgöngu og
ekki cf meðganga er erfið, nema í samráði við
lækni. Ýmsar upplýsingar um ilmolíumeðferð er að
finna í bókinni Heilsubók fjölskyldunnar sem kom
út hjá Vöku-Helgafelli fyrir skömmu.
Nokkrar jurtir og virkni ilmolía þeirra:
Ylang ylang er slakandi og hjálpar gegn streitu- og
kvíðatengdum vandamálum. Jasmína er slakandi,
einkum góð við þunglyndi og er kynörvandi. Rós
örvar tilfinningarnar og vekur unaðskennd, vinnur
einnig gegn ennisholubólgum, blóðrásarvandamál-
um, svefnleysi, fyrirtíðaspennu o.fl. Lofnarblóm
róar og slakar, gagnast við höfuðverk og öðrum
verkjum, góð á sár og marbletti, við sýkingum,
skordýrabiti o.fl. Kamilla er róandi og góð fyrir
þurra húð, við fyrirtíðaspennu, tíðaverkjum, melt-
ingartruflunum, ofnæmi, heymæði, gelgjubólum og
exemi frankincense; hefur hlýjan, róandi ilm og er
verkjastillandi t.d. góð við bakverkjum. Bergamot
(tré af sítrónuætt) er frískandi og örvandi, vinnur
gegn þynglyndi og örvar blóðrásina. Rósmarín örv-
ar skynfærin og eykur einbeitingarhæfileikann,
vinnur gegn gleymsku og andlegri þreytu, góð við
öndunarfæravandamálum, verkjum eftir erflði,
harðsperrum og einnig góð við feitu hári. Sandal-
viður er sýklaeyðandi og virkar á þurra og sprungna
húð, góður við gelgjubólum, virkar vel við íhugun
og er kynörvandi. Mánabrúður er og góð á sár, við
sveppasýkingum, sem skordýrafæla, góð við húð-
vandamálum, exemi og marblettum, er lítillega þva-
görvandi, góð gegn vökvasöfnun, og einnig við geð-
deyfð eða depurð.
Ilmolíur má nota á eftitfarandi hátt:
•blandaðar vatni í úðabrúsa sem híbýlailm
•hitaðar í skál og notandinn liggur og andar að sér
gufunum
•þær má bera á líkamann eða á ákveðna næma
bletti
•setja olíuna í bómull sem er síðan sett á ofn svo
ilmurinn stígi upp og berist um herbergið
•það má hella þeim í baðvatnið
•bera á neglur til að styrkja þær og mýkja nagla-
böndin
•til eru nuddolíur sem blandaðar eru ilmolíum og
auka þannig jákvæð áhrif nuddsins.