Vikan


Vikan - 20.07.1999, Síða 7

Vikan - 20.07.1999, Síða 7
verkjum enda átti hennar barn ekki að fæðast fyrr en 19. febrúar samkvæmt sónar. Stuttu eftir símtalið missti Guðlín vatnið. Hún hringdi á fæðingardeildina og henni var sagt að koma. Hún var ekkert að flýta sér en fór á fæðingar- deildina klukkan þrjú. Þar hitti hún systur sína sem hafði beðið allan daginn en var án verkja. Systurnar glöddust að vonum að hittast á fæðingar- deildinni og fengu að vera tvær saman á einni fæðingar- stofu. Þegar líða tók á kvöldið fór þeim að líða verr og greinilegt að biðin eftir börnunum var að styttast. Ljósmóðirin, Mar- grét I. Hallgrímsson, hafði lof- að systrunum að taka á móti börnunum, en hún er gift frænda systranna. Margrét hafði í nógu að snúast þar sem þær voru alltaf á nákvæmlega sama stigi fæðingarferlisins. Seinna um kvöldið fengu þær sitt hvora fæðingarstofuna en baðherbergi skildi stofurnar að. Margrét gat því hlaupið á milli og þær gátu líka kallast á og kvatt hvor aðra áfram. Að lokum varð Margrét að fá aðra ljósmóður með sér þegar hún sá að allt stefndi í að börnin myndu fæðast á svip- uðum tíma. Aðalumræðuefni kvöldsins hjá systrunum og væntanleg- um feðrum, þeim Erlingi Huga Kristvinssyni og Bene- dikt Elfar, var hvort börnin myndu fæðast á sitt hvorum deginum eða ná að fæðast sama daginn þegar klukkan nálgaðist miðnætti. Þegar klukkan hafði slegið tólf var farið að færast fjör í leikinn og fimm mínútum seinna heyrðist kallað „komin stelpa" í báðum stofum. Ljós- mæðurnar og læknirinn báru saman bækur sínar og allir voru jafn hissa. Systrunum hafði tekist að fæða á sömu mínútunni klukkan 00:05. Það voru þreyttar en ham- ingjusamar konur sem fóru niður á sængurkvennagang síðar um nóttina. Morguninn eftir hafði fréttin, um afrek systranna, borist inn á borð tii dagblaða og fréttastofa og því var fyrsti dagurinn í lífi frænknanna fremur annasam- ur. Litlu stúlkurnar voru skírð- ar á sjúkrahúsinu og fengu nöfnin Aðalheiður Anna og Alexandra Björk. Stjörnukortið skoðað Miðað við fæðingartímann og stjörnuspekina ættu frænkurnar að vera líkari í eðli sínu en tvíburar sem fæð- ast á sitt hvorri mínútunni. Að sjálfsögðu hafa fleiri þættir áhrif á persónuleikann svo sem erfðir og uppeldi. Aðal- heiður Anna er elst þriggja systra en Alexandra elst upp með tveimur bræðrum og er miðjubarnið. Við brugðum aðeins á leik og fengum Stjörnuspekistöð- ina til að útbúa stjörnukort fyrir einstakling fæddan þann 8. febrúar 1991 klukkan 00:05. Miðað við stjörnukortið ættu þær að vera mjög líkir per- sónuleikar þar sem sama kort- ið gildir fyrir þær báðar. Guð- lín og Viktoría þekkja báðar stúlkurnar mjög vel, þar sem mikill samgangur er á milli systranna og barna þeirra. Mæðurnar skoðuðu stjörnu- kortið og sáu margt sem gat átt við persónuleika dætra sinna. Guðlín, að hvaða leyti eru þær líkar? „Þær geta báðar verið of- boðslega dramatískar, þær eru líka fjörkálfar og hvorug þeirra má neitt aumt sjá.“ Viktoría, hvað finnst þér . líkt með þeim? „Þær hafa báðar mjög fjörugt ímyndunarafl og eru ósköp ljúfar í lund og búa yfir miklu jafnaðargeði.“ í stjörnukortinu stendur: Tilfinningar þínar eru líflegar og þú ert yfirleitt jákvæð og glaðlynd. Tilfinningalega ertu léttlynd og jákvæð að upplagi. Þú ert yfirleitt glöð í bragði, afslöppuð og þægileg í um- gengni og bregst við umhverf- isáreiti á snöggan, hlýlegan og hiklausan máta. Framkoma þín er því oft ljúf og yfirveguð eða til þess fallin að ná til ann- arra og vinna með fólki. Á hvaða hátt eru þær ólík- ar? Viktoría: „I rauninni er Al- exandra miklu meiri strákur í sér en Aðalheiður. Þeim er best lýst með því að önnur er prakkarinn og hin er prinsess- an. Aðalheiður er mikill dundari og sekkur sér niður í Barbie-leik á meðan Alex- andra er eins og ein af strák- unum.“ Guðlín: „Já, Alexandra er miklu meiri gaur en Aðalheið- ur og þorir að taka meiri áhættu.“ Um leið og Guðlín sagði „áhættu“ ætlaði Viktoría að segja sama orðið. Systurnar hugsa augljóslega líkt. í stjörnukortinu stendur ennfremur: Þú ert raunsæ og hugsar stórt sem þýðir að þú vilt hafa yfirsýn yfir það sem vekur at- hygli þína. Kannist þið við þennan þátt í fari dætra ykkar? Viktoría: „Þetta er mjög ríkjandi í fari Aðalheiðar. Hún þarf að hugsa sig vel um Alexandra t.v. og Aðalheiður t.h. 3ja ára, prakkarasvipurinn leynir sér ekki. „Þegar klukkan hafði slegið tólf á mið- nætti var farið að færast fjör í leikinn og fimm mínútum seinna heyrðist kallað „komin stelpa“ í báðum stofum.“ Vikan 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.