Vikan


Vikan - 20.07.1999, Blaðsíða 8

Vikan - 20.07.1999, Blaðsíða 8
áður en hún tekur ákvörðun. Bara að velja sér súkkulaði- mola getur tekið dágóða stund, hún spáir í þá fram og til baka.“ Guðlín: „Já, ég þekki þetta úr fari Alexöndru. Hún getur átt mjög erfitt með að taka ákvarðanir.“ Þær þurfa mikið frelsi Stjörnukortið segir enn- fremur: Lífsstíll þinn þarf að ein- kennast af hreyfingu, fjöl- breytni og ferðalögum og þú þarft tilfinningalegt frjálsræði og svigrúm til athafna. Pér henta ekki stífar venjur og þú verður leið ef umhverfi þitt er ekki líflegt og gefur ekki kost á breytilegum viðfangsefnum. Hvað segið þið um þetta? Guðlín: „Alexandra þarf mikið frelsi, hún þolir illa að finna ef að henni er þrengt á einhvern hátt. Hún er líka mjög hugmyndarík." Viktoría: „Aðalheiður þarf mikið pláss í sinni tilveru og stundum þolir hún ekki áreiti. Pá vill hún bara fá að vera í friði.“ Þær eru báðar haldnar full- komnunaráráttu en bregðast við mistökum á ólíkan hátt. Guðlín: „Alexandra er fyrst til að koma á friði ef einhver er ósáttur. Hún tekur gjarnan sökina á sig, þótt hún hafi „Þeim er best lýst með því að segja að önnur sé prakk- arinn og hin prinsessan.“ hvergi komið nærri. Hún er tilbúin að gera allt fyrir frið- inn. Hún er mjög fljót að fyrir- gefa og gleymir öllum leiðind- um strax.“ Viktoría: „Aðalheiður verð- ur gjörsamlega miður sín ef hún hefur gert eitthvað rangt. Það tekur hana langan tíma að jafna sig. Hún fer gjarnan inn í herbergið sitt og situr þar lengi áður en hún er tilbúin að ræða málin eða fyrirgefa. Hún bíður gjarnan eftir því að aðrir komi til hennar og biðji hana fyrirgefningar ef hún hefur verið að rífast t.d. við systur sínar eða vinkonur." Við fæðingu var Alexandra 12 merkur og 47 sm en Aðal- heiður 14 merkur og 52 sm. Viktoría: „Þær hafa alltaf fylgst að, bæði í stærð og þroska“ „Líka í tanntöku" segja þær einróma. Það er með óh'kind- um hvað þær hugsa líkt. Guðlín: „Kannski hringdi önnur um morgunin og sagði að það væri komin tönn. Það var nánast bókað að hin gat hringt um kvöldið og tilkynnt að það væri líka komin tönn hjá sér, í skólanum virðast þær líka fylgjast að, eru með sömu einkunnir!“ Við erum prakkarar en ekki pæjur Frænkurnar Alexandra og Aðalheiður hafa setið rólegar og leikið við yngri systkini sín í sandkassanum á rneðan mæðurnar rifja upp þennan viðburðaríka fæðingardag. Frænkurnar eru alveg tilbún- ar að koma í stutt viðtal. Eruð þið góðar vinkonur? „Já, bestu vinkonur og frænkur“ svara þær einum rómi og skilja ekkert í spurning- unni. Rífist þið einhvern tímann? „Nei, eða jú. Einu sinni vorum við óvin- konur en þá vorum við bara fimm ára, við erum alveg hættar því. Núna föðmumst við bara“ svarar Alexandra að bragði. Haldið þið saman upp á afmælið ykkar? Aðalheiður: „Stundum. Við gerðum það oft þegar við vorum litlar en ekki núna þeg- ar við vorum átta ára. Við ætlum samt að halda saman upp á afmælið þegar við verðum níu ára.“ Hvað ætlið þið að verða þegar þið verðið stórar? Aðalheiður: „Ég ætla að verða kennari, svona venjulegur kenn ari sem kennir reikning og skrift. Mér finnst rosalega gam- an í skólanum og að reikna." Alexandra: „Ég ætla að verða leikari. Mér finnst svo skemmtilegt að sýna hvern- ig mér líður." Hvað finnst ykkur nú skemmtilegast að gera í skólanum? Aðalheiður: „Mér finnst gaman í leik- fimi, að reikna og skrifa um fugla á íslandi. Það er bara allt skemmtilegt. Alexandra: „Mér finnst skemmtilegast í skólaferðalögum og að reikna." Eigið þið einhverja uppáhaldshljóm- sveit? Alexandra: „ Mér finnst alla vega Spice Girls ekki vera skemmtileg hljómsveit en Selma Björnsdóttir er ágæt.“ Aðalheiður: „Mér finnst Selma líka skemmtileg en það er ein hljómsveit sem mér finnst mjög góð sem heitir Land og synir.“ Alexandra, getur þú lýst Aðalheiði fyrir mér; hvernig þér finnst hún vera? „Mér finnst hún sæt með falleg augu og fínt hár. Hún er líka rosalega skemmtileg og góð. Svo er hún líka pínulítill prakk- ari.“ Aðalheiður; getur þú lýst Al- exöndru fyrir mér? „Já, mér finnst hún líka vera sæt með falleg augu en rnikill prakkari.“ j Finnst ykkur flott að vera í pæjufötum? Alexandra: ,Nojh. Það er sko ekki flott. Ég vil alls ekki vera í þröng- um pæjufötum, bara svona víðum fötum eða gallabuxum. „ Aðalheiður: „Mér finnst svolítið flott að vera í pæjufötum en ekki gott að vera í þröngum buxum. Alexandra: „Við erum ekki pæjur bara prakkarar." Ætlið þið sjálfar að eignast börn þegar þið verðið fullorðnar? Aðalheiður: „Maður veit aldrei hvað maður gerir eða verður þegar maður er orðinn stór. Það verður bara að koma í ljós. Samt langar mig að verða kennari og eign- ast tvíbura.“ Alexandra: „Ef ég fæ mér mann þá ætla ég að eignast þrjú börn.“ Alexandra var farin að ókyrrast og fæturnir á henni farnir að rekast í borð og stóla. Ætlunin var að fara í hasarleik í góða veðrinu. Vinátttan er sterk og þær ætla alltaf að vera góðar vinkonur. Frænkurnar Aðalheiður og Alexandra eru greinilega mjög nánar og líkir einstaklingar að mörgu leyti. Hins vegar eru þær gott dæmi um hversu ólíkt fólk getur verið jafnvel þótt það sé fætt á sama stað og á sömu mínútu. «g) \ Frænkurnar sjö ára gamlar. Alexandra er í hvítum kjól en Aðalheiður í hvítri blússu og dökkum kjól. 8 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.