Vikan - 20.07.1999, Blaðsíða 11
Litríkir og fjölbreyttir munir Oddrún-
ar, Bryndísar og Margrétar í einföld-
um og ljósum innréttingum Skrautlu.
þar þegar þeir eru búnir til
og brotum raðað saman.
Bryndís segir líka að svo sé
og til að byrja með hafi þær
alltaf verið að finna flísar
áður en þær komu sér upp
bráðabirgðaaðstöðu til
verksins. En í Skrautlu er
flísunum ekki fyrir að fara,
þar eru í hillum og á veggj-
um fallegir munir í vel inn-
réttuðu húsnæði gallerísins.
Skipta með sér verkum
Þegar Oddrún og Bryndís
byrjuðu að vinna mósaík hér
á landi fluttu þær sjálfar inn
glerflísar til verksins. Odd-
rún kom í eitt skiptið með
flísar í kassa heim frá Italíu
og viðurkennir hún að sá
farangur hafi verið ansi
þungur. í dag kaupa þær
nánast allar flísar hérlendis
og vita hvar á að nálgast
rétta efnið í mósaíkverkin.
En ríkir samkeppni á milli
systranna í þessum geira þar
sem þær eru með sömu
menntunina og virðast gera
svipaða muni?
Þær segja svo
ekki vera, án
þess að hika.
Frekar séu þær
duglegar að
hjálpa hvor
annarri. Hlut-
irnir þeirra séu
keimlíkir hvað
varðar liti og
mynstur en
þeir séu alls
ekki eins. Það
sé auðvelt að
segja hvor
þeirra geri
hvaða hluti og þær hafi
skapað sín sérkenni, sbr. það
að Bryndís geri alfarið
krossana og Oddrún sjái
meira um stærri hluti, vasa
og myndir. Einnig eru þær
að vinna að húsgögnum,
borðum og hillum, og hægt
er að sérpanta hjá þeim
muni. Oddrún og Bryndís
eru ekki með sameiginlega
vinnustofu fyrir gerð
mósaíkverka og þær tala um
Uppdekkað borðið með kransinum yfir
er miðpunktur Skrautlu. Borðið prýða
munir eftir frænkurnar og sýnir mögu-
leikana með muni þeirra.
það sem ákveðinn kost. Þá
sjái þær ekki hvað hin sé að
gera, stundum verði hlutirn-
ir að vera „leyndó". Þær
taka það þó fram að þeim
þyki skemmtilegt að vinna
saman og það geri þær oft
fram á rauða nótt og þá sé
glatt á hjalla hjá þeim.
Skrautla skrautlega
í vetur héldu systurnar
sína fyrstu sýningu á verkum
sínum á Kaffi Karólínu í
Listagilinu á Akureyri. Það
er óhætt að segja að viðtök-
urnar hafa verið mjög góðar
og þær viðurkenna að slík-
um viðtökum hafi þær ekki
búist við. Það hafi verið
mjög hvetjandi fyrir þær að
sýna á Karólínu og fengið
þær til að hugsa fyrir alvöru
um að koma upp galleríi
sem þær síðan létu verða af
ásamt Margréti Jónsdóttur
leirlistakonu, en hún er
frænka þeirra.
Þótt þær séu þrjár um
galleríið er ekki óeiningunni
fyrir að fara og ákvarðana-
taka gjarnan samhljóða. Svo
var um allar innréttingar í
Skrautlu, en frænkurnar hafi
allar svipaðan stíl og ein-
faldar innréttingar í Ijósum
litum, þar sem litríkir mun-
irnir njóta sín, komu einung-
is til greina. mmmmmmmmmmm
Stórt borð
með stór-
um kransi
yfir vekur
athygli en
það er í
miðju gall-
erísins, fal-
lega dúkað
og skreytt
með mun-
um eftir
Oddrúnu,
Bryndísi og
Margréti
og á að
sýna mögu-
leika hlut- •
anna og
fjölbreytni
þeirra.
Að lok-
um er ekki
annað hægt
en að upp-
lýsa það að
nafn gallerísins, Skrautla, er
gamalt, íslenskt orð og þýðir
skrautlegt.
Oddrún og
Bryndís vinna
stóra sem smáa
muni í mósaík.
Vikan 11