Vikan


Vikan - 20.07.1999, Blaðsíða 50

Vikan - 20.07.1999, Blaðsíða 50
Texti: Stefán Gíslason Mynd: Hreinn Hreinsson Umhverfið Biíarj lausagangi ogSO ■j lauða frystur ið af kar 9 matur kartöflum legri orku, nefnilega raforku frá vatnsafls- og gufuvirkjun- um. Þess vegna ætti að vera auðvelt að nota rafhitara í stað bílvélarinnar til að velgja sætin í morgunsárið. Þá erum við að minnsta kosti ekki að ganga á olíubirgðir jarðarinnar, því að vissulega munu þær ganga til þurrðar með tímanum. Og við erum heldur ekki að losa koltvísýr- ing og aðrar gróðurhúsaloft- tegundir út í andrúmsloftið, að ógleymdum öllum hinum efnasamböndunum sem leynast bæði í bensínreyk og díselreyk og sum hver geta valdið krabbameini. Og svo slítum við ekki vélinni að óþörfu. Víða erlendis er mönnum bannað að hafa bílana sína í lausagangi í lengri tíma en hálfa til eina mínútu. Það er ástæðulaust að drepa á bflun- um við umferðarljós en ef dvölin er lengri er tímabært að huga að umhverfisáhrif- unum. Þá eiga menn að drepa á bflunum og leggja þannig sitt af mörkum til að tryggja aðgang að auðlindun- um eldsneyti og hreinu lofti lengur en ella. Það er góð hugmynd að láta matinn úr frystikistunni þiðna í ísskápnum fyrir notk- un í stað þess að láta hann liggja í eldhúsvaskinum. Þannig sparast tvennt. í fyrsta lagi sparast orka í ís- skápnum því að frosni mat- urinn hjálpar til við kæling- una þar á meðan hann er að þiðna. í öðru lagi komumst við hjá því að maturinn taki til sín sinn skerf af hitanum í eldhúsinu. Við komumst sem sagt af með aðeins minni kyndingu. Og svo var það soðið af kartöflunum. Hvað gerum við við það þegar búið er að sjóða kartöflurnar? Líklega hella flestir því í vaskinn. Hvernig væri að taka upp nýja siði hvað þetta varðar? Því ekki að geyma soðið í pottinum með lokinu á þang- að til það er orðið sæmilega kalt? Á meðan gegnir pott- urinn hlutverki pínulítils ofns, sem búið er að borga fyrir upphitun á. Síðan get- um við hellt soðinu, en samt ekki í vaskinn, heldur í flát sem við notuð þegar við vökvum blómin okkar. í kartöflusoðinu er nefnilega töluvert af efnum sem nýtast stofuplöntunum. Það er ástæðulaust að henda þess- um efnum í niðurfallið - og kaupa svo blómaáburð úti í búð. (Þeir sem sjóða kartöfl- urnar í söltu vatni ættu þó ekki að fara að þessum ráð- um). Við getum öll lagt okkar af mörkum til að hlífa umhverf- inu. Flest eru þessi atriði smá en margt smátt gerir eitt stórt, bæði í heimilisbókhald- inu og í umhverfismálunum. Bflar í lausagangi, frystur matur og soð afkartöflum. Þessir þættir eiga ekki margt sam- eiginlegt við fyrstu sýn, en allt snýst þetta þó um áhrif auka endingu vélanna eða kannski er þetta nauðsynlegt til að geta notið til fulls lága verðsins á olíunni. E.t.v. gera menn þetta bara til að halda bflunum heitum. Síð- mannsins á umhverfið. Þess- ir þættir eru meðal þess sem íslenskar fjölskyldur geta beint sjónum sínum að ef þær vilja draga úr neikvæð- um áhrifum sínum á um- hverfið. Það hefur löngum þótt sjálfsagt á Islandi að skilja bíla eftir í gangi. Þetta á sér- staklega við um dísilbíla, sem gjarnan eru skildir eftir í gangi tímunum saman. Til- gangurinn hefur alltaf verið mér hulinn. E.t.v. á þetta að astnefnda skýringin á alla vega best við þegar um er að ræða bensínbfla. Nú eru menn jafnvel farnir að kaupa fjarstýrðan búnað til að setja bflana í gang á morgnana góðri stund áður en ekið er af stað. Það er svo ósköp þægilegt að setjast út í heitan bflinn á köldum vetrar- morgni. En við höfum val. Ef við viljum hita bílinn upp áður en við setjumst í hann, þá er vert að minnast þess að Island er ríkt af endurnýjan- 50 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.