Vikan


Vikan - 20.07.1999, Qupperneq 47

Vikan - 20.07.1999, Qupperneq 47
Á kaffihúsi. Mér líst ekki á þetta, Rósalía. Ég er farin, mamma. Hvort sem þér líkar betur eða verr. Hún opnaði dyrnar og þar stóð frú Mills og reyndi að stöðva hana. Ekki skrökva, Rósalía, sagði hún. Þú ert ekki að fara í boð. Skiptu þér ekki af því sem þér kemur ekki við! Hún ýtti henni til hliðar, hljóp út úr húsinu og yfir götuna. Boðið var heima hjá Millý. Það var uppáhalds- staðurinn hennar. Það voru svo margir góðir felustaðir í garðinum og þaðan gat hún séð allt sem fram fór. Hún heyrði einhvern gráta. Hún lyfti brúðunni og þrýsti henni að sér. Ekki gráta, hvíslaði hún. Gerðu það fyrir mig. En hvað var þetta? Tárin runnu niður kinnarnar á henni sjálfri, ekki brúðunni! Halló. Carol? Þetta er Rae. Carol andvarpaði fegin. Ég ætlaði ekki að hræða þig. Rusty sagði mér frá hringingunum. Þetta er allt í lagi. Ég var að koma inn og mér brá svo- lítið þegar ég heyrði símann hringja. Ég veit að það er orðið framorðið, en ég þarf að tala við Rusty. Bíddu aðeins, ég skal vekja hann. Nei, ekki gera það. Leyfðu honum að sofa. Ertu viss? Hann tekur því örugglega ekki illa þótt ég veki hann. Ég veit það, en ég tala bara við hann á morgun. Rae lagði á og lygndi aftur augunum. Hún hafði skoðað bremsukerfið og séð að það var búið að stinga mörg göt á kassann með bremsu- svökvanum. Einhver hafði gert það af ásettu ráði. En hún varð að taka sig saman í andlitinu. Hlutirnir yrðu enn verri ef hún leyfði sér að gefa sig hræðslunni á vald. Rusty, það er síminn til þín, sagði Carol og hristi hann. Hann glaðvaknaði og sett- ist upp. Er ég búinn að sofa yfir mig? Slakaðu á. Klukkan er bara átta. Hún rétti honum símann. Þetta er mamma hennar Penelope. Rusty hrukkaði ennið og tók símann. Já? Þetta er Hazel Burns, mamma Penelope. Mér þyk- ir leitt að trufla þig svona snemma morguns. Ekkert mál, ég þurfti hvort sem er að vakna, sagði Rusty. Hvað get ég gert fyrir þig? Ég veit að þið Penelope hittist ekki oft þessa dagana en ég er alveg miður mín. Ég er búin að hringja í alla vini hennar og svo mundi ég eftir þér. Hvað er að? Penelope fór á fund hjá hjónabandsmiðlun á fimmtudagskvöldið og... Penelope, sagði hann hissa. Hjónabandsmiðlun? Ég er sammála þér að það hljómar undarlega. Pen- elope fannst það sjálfri svo- lítið út í hött, en hún fór nú samt. Hún ætlaði að taka strætó og hún er ekki komin til baka. Hvað með þessa hjóna- bandsmiðlun? Rusty fann hræðsluna læsast um sig. Hvað heitir hún? Það eina sem ég veit er að hún er einhvers staðar hérna í bænum. Svona starfsemi er í tísku núna, sagði Rusty, en ég hef aldrei heyrt talað um hjóna- bandsmiðlun hér í Bradley. Ertu búin að tala við Elaine? Já, en hún kom alveg af fjöllum. Hún hefur ekki séð Penelope síðan þær voru í boði hjá Genu í síðustu viku. Ég er líka búin að hringja í Genu en hún veit veit ekkert um Penelope. Ertu búin að hafa sam- band við lögregluna? Já. Hún andvarpaði. Þeir álíta sem svo að hún hafi stungið af með einhverjum karlmanni. En ég veit að Penelope hefði aldrei gert það. Ég skal hringja í nokkra sem ég þekki, sagði Rusty. En það er ekki víst að það beri nokkurn árangur. Carol horfði forviða á hann. Hvað var nú þetta? spurði hún. Þú heyrði það. Penelope er horfin. Hvers vegna sagðir þú mömmu hennar ekki frá Bobby? Rusty leit undrandi á hana. Hvers vegna hefði ég átt að gera það? Kannski er eitthvert sam- band þarna á milli. Ég get ekki séð það. Bobby og Penelope hafa lít- ið samband þótt þau hafi verið vinir hér áður fyrr þegar við vorum í menntó. Á þeim tírna voru allir meira og minna vinir. Vikan 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.