Vikan - 20.07.1999, Page 58
Texti og myndir: Kristján Frímann
(24.júlí - 23.ágúst
Frá örófi alda hefur
ljónið verið ímynd
fágunar og yfirvegunar.
Einkenni þess hafa verið sem
hins gullna eðalmálms, eilíft
og fagurt, næstum yfirnáttúru-
legt. Ljónið er annað elsta
tákn stjörnuhringsins ásamt
Nautinu og í árdaga var það
ekki karlkennt heldur ljónynja
sem fór um himinhvolfið tign-
arlegum hljóðlátum skrefum.
En um 4500 fyrir Krist tóku
karleiginleikarnir í taumana
og þessi þokkagyðja verður
karlmannleg og villtari. Ljónið
með sinn mikla makka, eld-
fimu orku og afgerandi mátt
verður að tákni ríkjandi stétta.
Konungar notuðu ljónið til að
undirstrika ímynd þeirra
sjálfra enda er ljónið „kon-
unglegt" ef svo má segja.
Ljónið er því bæði konungur
og drottning stjörnuhringsins
og það stýrir ferð
hinna merkjanna
og heldur þeim við
efnið.
og með honum færa þau fjöll-
in til Múhameðs. Dæmigert
Ljón er sjálfsöruggur einstak-
lingur með báða fæturna á
jörðinni og gefst ekki upp þótt
móti blási. Pað er því ekki óal-
gengt að sjá Ljón í erfiðum
hlutverkum lífsins þar sem
einurð, ósérhlífni og „ég
sigra“ eru einkunnarorðin.
Hugur og hjarta
Par sem sólin er áhrifavald-
ur merkisins leiðir það af
sjálfu sér að þau eru hjartahlý
og kunna að gefa af sér, þrátt
fyrir hugmyndir þeirra um að
vera nafli alheimsins og öllum
ómissandi. Sá sem eignast
Ljón að vini hefur fundið
gullpottinn við enda regnbog-
ans og mun aldrei skorta
stuðning, uppörvun og gleði í
lífinu. Sá sem þeirrar gæfu
nýtur að verða rnaki Ljónsins
Eldur er ein-
kenni Ljónsins og
geislandi kraftur
þess og lífsgleði fer
ekki framhjá nein-
um. Það er mið-
punktur alheimsins,
á samkomum, í
veislum eða hvar
sem það drepur
niður fæti, því það hefur unun
af að sýna sig og er yfirleitt
hrókur alls fagnaðar. Ljónið
er einnig þeim eiginleikum
gætt að geta verið hógvært á
starfsvettvangi en samt áber-
andi, því til eru þau Ljón sem
eru feimin þótt þau vilji hafa
heiminn í hendi sér. Ljónin
eru áköf í gerðum sínum,
viljasterk og þau geta áorkað
ótrúlegustu hlutum enda er
vilji eitt aðalsmerkja Ljónsins
Ljónið spennir bogann hátt í fjölskyldu-,
félags,- og atvinnumálum.
er og verður borinn á gullstóli
gegnum lífið því þegar ljónið
elskar, þá Elskar það með
stórum stöfum. Þetta getur þó
leitt til þess að Ljónið kæfi
maka sinn en það er undan-
tekning. Hið stóra hjarta
Ljónsins rúmar mikla hiýju
sem börn þess fá ómældan
skerf af. Ljónið er ótrúlega
þolinmótt þegar barn þess á í
hlut en jafn óþolinmótt getur
það orðið þegar því finnst
hlutirnir ekki ganga nógu
hratt og hugmyndir þess ekki
verða ekki nógu fljótt að veru-
leika.
Áhugamál og störf
Lognmollu finnur þú ekki í
nálægð Ljónsins. Það hefur
brennandi áhuga á öllu sem
það tekur sér fyrir hendur og
spennir bogann hátt. Ljón eru
kjörin til stórra hluta og mik-
illa verka og þeim hentar vel
að vera í hlutverki þjóðhöfð-
ingja. Starfið sem Ljónið velur
sér tengist yfirleitt fram-
kvæmdum af einhverju tagi,
það vill að ferðir og flug sé
innifalið í pakkanum ásamt
því að sjá og heyra. Ljón ger-
ast leikarar, rekstraraðilar
skemmtigarða, auglýsinga-
frömuðir, listamenn, kennarar,
leiðsögumenn, umsjónarmenn
sjónvarpsþátta, kvikmynda-
gerðarmenn, uppistandsfólk,
verktakar og íþróttamenn svo
nokkur dæmi séu tekin.
Áhugamálin blandast atvinnu-
þátttöku og leikgleðin skilar
sér þegar þau með vinum sín-
um, fara í veggbolta, tennis,
badminton eða þau gleyma
sér í öðrum leikjum sem
byggja á hreyfingu og útiveru.
Ljóninu er einnig í blóð borin
veiðiþrá og það unir sér í æv-
intýraferðum um þau svæði
þar sem fisk er að hafa, fugl
eða ferfætling að góma.
Þar sem Ljónið er í eðli sínu
sólríkt og skapandi, litast hug-
myndir þess um útlit af þeirn
öflum bæði í klæðaburði og
smekk. Ljónin eru tignarleg í
framkomu og bera vel öll
klæði, hvort sem það er trosn-
aður listamannsbúningur eða
einkennisföt konungs. Þau eru
fáguð í litavali og kunna að
setja saman réttu efnin og
blanda stílbrigðum í eina
heild. Þar sem þau eru í eðli
sínu „konungleg“ velja þau
dýr merki og fágaða hönnuði
og fara oft ótroðnar slóðir í
þeim efnum og skapa „trend“
ef svo ber undir. Ljónin eru
veik fyrir „stjörnum“ og því
sem er „inn“. Þetta skilar sér í
hugmyndum þeirra um útlit
hestöfl og bíla, arkitektúr
húsa, veitingastaði sem skal
sækja og svo framvegis. Ljón-
ið dettur stundum í gryfju
snobbsins en sér fljótt að sér
og snýr við blaðinu. Þannig
gæti virst að ásókn þess í há-
gæða hönnun og töff fólk sé
snobb en hún á sér ósköp ein-
faldar skýringar, þeim er þetta
eðlilegt.
Líkami og heílsa
Þegar litið er til heilsunnar
endurspeglast hún af þróttleg-
um anda Ljónsins og líkam-
legu þreki sem er eins og
geislar sólarinnar. Ljón eru al-
mennt hraust, geðgóð og fá
sjaldan kvef. Einn er þó brot-
inn hlekkur í þessari sterku
keðju og það er hjartað, þetta
stóra milda og gefandi hjarta
sem á það til að gefa sig um og
upp úr miðjum aldri. Því þótt
ljónið sé síungt, orkumikið og
geti látið vaða á súðum í það
óendanlega verður það að
staldra við í seinni hálfleik og
hugsa sinn gang. Ljón, sem
annað fólk, eldast og tíminn
dregur úr manni kraft, þetta
ættu rosknu ljónin að íhuga
næst þegar lagt er í heimsreisu
eða yfir Fimmvörðuháls.
Heimili, listir og
menning
Ljón eru ekki gefin fyrir
glingur og því eru heimili
þeirra yfirleitt laus við prjál
þótt markið sé sett hátt varð-
andi efni og gæði. En Ljón eru
ráðrík, eigingjörn og frek ef
svo ber undir og vilja ráða út-
liti þess bústaðar sem þau
kjósa sér. Umhverfið verður
58 Vikan