Vikan - 20.07.1999, Side 59
því ljónslegt þar sem jarðlitir
og sólin er í hásæti. Ekki er
óalgengt að sjá Ljón kúra
framan við eld í arni sem það
hefur helst sjálft hlaðið úr
Drápuhlíðargrjóti eða ein-
hverju hliðstæðu. Híbýli
Ljónsins eru rúmgóð og björt,
þó vill það hafa skot útaf fyrir
sig þar sem það getur brýnt
klærnar og.snyrt þófana. Ljón-
ið er listrænt og menningar-
lega sinnað, það sækir í
spennu og velur því spilavíti,
kvikmyndir og leikhús til af-
þreyingar og til að létta á
spennunni. Það velur útskorna
muni, raunsæislegar högg-
myndir og uppstoppað dýr er
oft nálægt. Veiðihús Jóhann-
esar Jósepssonar á Hvítár-
bökkum er gott dæmi um
mann sem verið hefur dæmi-
gert Ljón.
vextinum og getur farið út í
oflæti og þráhyggju, fái Ljónið
litla ekki stuðning og leiðandi
hönd gegnum æskuna.
Foreldrar og
börn
Þú færð ekki betri móð-
ur en konu sem er Ljón,
hún mun bera þig á gull-
stóli um heiminn og sýna
þér allt það stórfenglega
sem maður og náttúra hafa
skapað, hún fræðir þig um allt
milli himins og jarðar á
skemmtilegan en ákveðinn
hátt. Sé faðir þinn ljón er
þessu líkt farið nema hvað
hann er kröfuharðari og óþol-
inmóðari en Ljónamamman.
Bæði gera þó miklar kröfur til
barna sinna og vilja sjá þau
ganga menntaveginn og stefna
hátt. Miklar kröfur geta haft
öfug áhrif svo Ljónin mættu
athuga sinn gang í þeim efn-
um. Ljónsunginn er snemma
horfinn úr vöggunni og farinn
að kanna heiminn, eldhús-
skápar verða að ævintýralönd-
um og pottar ná fram ótrúlega
mögnuðum þrumugný þegar
barist er gegnum frumskóginn
og barist við allskyns forynjur.
Leikurinn heldur áfram í upp-
Ytri áhrif
Ljónið er ábúðarmikið,
kröftugt og öruggt í fram-
göngu sinni og samskiptum
við aðra. En þar með er ekki
öll sagan sögð. Ýmsar ytri að-
stæður svo sem fæðingarstað-
ur, uppeldi og áföll í lífinu
geta gert það að erfiðum ein-
staklingi, því þrátt fyrir ákveð-
ið ytra yfirbragð er það við-
kvæmt og þarfnast mikillar
ástúðar og hlýju. Fái það
þessu ekki fullnægt getur það
orðið að fruntamenni, fallið í
fen deyfilyfja eða orðið
annarri fíkn að bráð, svo sem
spilafíkn. Ljón sem lenda í
þessu geta þó náð sér nokkuð
vel á strik vegna innbyggðs
„ég get“ orkuvita og
þeim tekst að
svamla gegn-
um lífið.
Það er
þó
Tvenn öfl
inætast í Ijón-
inu. Við það
skapast full-
komið jafn-
vægi og friður.
ekk-
ert líf og
ekki Ljóni
sæmandi.
Þessi duldi
veikleiki Ljóna
kemur einnig fram í
örlæti þeirra og gjafmildi,
þau mega ekkert aumt
sjá og gefa sína síðustu
krónu til að sjá
minni máttar ná
sér á strik
Enginn stenst Ljón í veiðihug,
það er mikil kynvera og ólofað
Ljón sækir í fjölbreytt ástalíf.
Þessu linnir nú og Ljónin ráð-
setja sig eitt af öðru, óbundin
sambönd tengd viðskiptum og
atvinnu verða naglfest og
Ljónið mun kemba hærurnar
með þeim hinum sömu. Ef eitt-
hvað er alvara, þá er það
ákvörðun Ljóns og það er trútt
sínum. Nú er tími uppgjöra og
Ljónin ættu að setja upp rós-
bleik gleraugu til að skanna
völlinn og sjá raunveruleikann
í réttu ljósi, þá greinast úlfarnir
frá lömbunum og hlutirnir taka
nýja stefnu. Ljón sem hafa
búið í risjóttri sambúð taka sig
á og leysa ýmsa hnúta, það
verður erfitt og Ljónunum
finnst þeim stillt upp við vegg
en laun erfiðisins er ham-
ingja. Þá verða Ljón al-
mennt mikið á ferð-
inni, að flytja
eða mála með
nýjum litum
og raða
innan-
stokks-
munum
upp á
nýtt.
Ferðir verða farnar til fram-
andi staða, hvort sem er á Is-
Iandi eða í útlöndum og Ljón
mun finna forna gröf. Júní-
mánuður hefur verið óvenju
annasamur og boð borist víða
að um að mæta í veislur, á sam-
komur eða fundi. Þarna hefur
Ljóninu gefist kjörið færi á að
treysta sambönd sín til fram-
tíðar. Og furðulegt nokk, því
meira sem Ljónið gefur af sér,
því meira fær það. Júlí og ágúst
verða ábatasamir og gleymd
fjárfesting kemur út með
gróða. í starfi verður upp-
sveifla hjá Ljóninu en þar sem
annarsstaðar þarf að gæta var-
úðar, Ljón sem stígur á þyrna
getur farið illa út úr því. Frá
september og til aldamóta er
mikilvægt að skoða vel alla
samninga sem gerðir eru, lesa
vel öll skjöl og kanna lög og
reglur út í hörgul áður en
klónni er dyfið í blek og skrif-
að undir.
Sumar,
haust og
vetur 1999
Árið er ár
óvæntra breyt-
inga og skyndi-
legra boðafalla.
Samantekt
Ofantaldir eiginleikar eiga
við hið dæmigerða Ljón en
uppeldi og önnur ytri áhrif
geta breytt þessari mynd mjög
enda eru ekki allir steyptir í
sama mót. Þá skipta aðrir
þættir máli svo sem fæðingar-
stund og lega plánetna á þá.
Hver þeirra er rísandi, hvar
tunglið situr og svo fram-
v vegis. Grunnurinn
stendur þó alltaf
óhaggaður og á hon-
um má ala upp
Ljón til mikilla
verka.
59