Vikan - 30.07.1999, Qupperneq 4
Kœri lesandi...
er sœla
Tg nýt þess fram í fingurgóma
að vera íslendingur. Hugsið
þið ykkur bara hvað það er
dásamlegt að vera ein afhamingju-
sömustu manneskjum heims sam-
kvœmt opinberum tölum!
Eg vakna á hverjum morgni uppfull
afsœlu og bíð spennt eftir því að
draga gluggatjöldin frá til að njóta
morgunsins og komast að því hvort
sé mikil eða lítil rigning þann daginn.
Mamma sagði oft: „Lítið gleður ve-
sœlan“ og ég skildiþetta þannig að
það vœri fátt sem gleddi hanti og
hann væri í sjálfu sér hinn mesti fýlu-
púki. Ég er búin að komast að því að
ég misskildi þennan vísdóm. Petta
þýðir að það þurfi lítið til að gleðja
þann vesœla og að hann sé glaðlyndur og nægju-
samur að eðlisfari. Pegar ég uppgötvaði þetta
skildi ég líka strax hvers vegna við Islendingar
erum svona hamingjusamir, við erum einfaldega
svo nœgjusöm hvað varðar andleg gœði.
Hvað gerir það til þótt sumarið sé kalt? Við losn-
um við allar vondu, Ijótu pöddurnar í staðinn.
Og hvað gerir til þótt rigni stanslaust? Það er svo
gottfyrir orkubúskapinn.
Ég er alveg dœmigerður Islendingur og er hœstá-
nœgð með rigninguna. Ég brá nefnilega á það
ráð að kaupa mér nýja regnkápu á dögunum og
síðan hlakka ég óstjórnlega til hvers rigningar-
dags. Guð láti rigna sem allra mest!
En verslunarmannahelgin er að koma og maður
má víst ekki hugsa svona. Það er tilfólk sem vill
frekar hafa þurrt, sérstaklega um þessa helgi. Ég
er svo mikill Islendingur að ég get vel unnt því
þess. Nú, en efþað klikkar þá verða menn bara
að lesa Vikuna sína inni, annað hvort í tjaldinu
eða heima hjá sér. Hún hentar jafn vel á báðum
stöðum.
Og það er ekki hœgt annað en að finna eitthvað
sem maður hefur gaman afað lesa í blaðinu. Par
má m.a. finna viðtal við Nínu Björk Árnadóttur
rithöfund þar sem hún gerir upp viðburðaríkt líf
sitt undanfarin ár og Sigríði K. Guðmundsdóttur
sem greindist með krabbamein fyrir 47 árum og
berst hetjulegri baráttu með eiginmann sinn sér
við hlið. Við bjóðum líka upp á tvœr lífsreynslu-
sögur og umfjöllun um mörg forvitnileg mál s.s.
streitu og hvernig bregðast megi við henni,
áfengissýki meðal kvenna og pilluna. Hér má
einnig læra hvernig er hœgt að losa sig við 5 kíló
í hvelli, fara með barnið til tannlœknis í fyrsta
skipti ogfleira ogfleira.
Ég sé ekki að það sé yfir nokkru að kvarta!
Góða helgi og njóttu Vikunnar!
Jóhanna Harðardóttir
Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði
Seljavegur 2, Simi: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal-
ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Simi: 515 5515
Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Simi: 515
5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími:
515 5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V. i;
Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristin Guðmunds- }
dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is f
Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein- ji
grimsson Verð í lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef ;!
greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef !
greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið i !
Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi j
efni og myndir
Steingerður Hrund Margrét V. Kristín Anna B.
Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Guðmunds- Þorsteins-
dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir
blaðamaður auglýsinga- auglýsinga-
stjóri stjóri
Guðmundur
Ragnar
Steingrímsson
Grafískur
hönnuður