Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 31
getur þú alla
vega litið út fyrir að h a f a grennst.
skyldi bera á efst við kinn-
beinið.
Viðhorf
Það er hægt að vera glæsi-
legur og líta vel út þótt mað-
ur sé ekki tágrannur. Að-
dráttarafl og sjarmur
kvenna er huglægs eðlis og
þar af leiðandi sálrænn þátt-
ur. Ef þú hefur örugga og
frjálslega framkomu þá get-
ur þú bókað að lítilvæg at-
riði á borð við nokkur
aukakíló hverfa eins og
dögg fyrir sólu. Þú getur
breytt útliti þínu til betri
vegar með því að bera þig
vel og skiptir þá engu hvað
blessuð vigtin hefur um mál-
ið að segja. Stattu bein í
baki, færðu herðablöðin nær
hvort öðru, lyftu upp brjóst-
kassanum og þú munt sjá
virkilegan mun. Maginn
dregst þá frekar inn á við og
brjóstin virka stinnari. Með
því að vera stolt af líkama
þínum og bera þig með reisn
er engu líkara en þú hafir
misst alla vega fimm kfló.
Að auki mun þér sjálfri líða
miklu betur.
Að missa fimm kíió af
raunverulegri líkams-
þyngd
Jólasveinninn er ekki til.
Það er heldur ekki
hægt að missa
fimm kfló á einum
degi. Fólk ætti
ekki að missa
meira en 1% af
líkamsfitu sinni á
viku. Flér koma
nokkur ráð til að
hafa á bak við
eyrað:
Borðaðu minna
en þú ert vön af
fitu og kolvetnum,
sterkju og sykri en
þú ert vön. Fáðu
þér ávöxt í staðinn
fyrir súkkulaði eða
smáköku. Fáðu
þér frekar lax í
kvöldmatinn en
pasta. Notaðu
ólífuolíu þegar þú
ert að matbúa en
slepptu alveg
smjöri og smjör-
líki.
Borðaðu meira af græn-
meti. Grænmeti er hitaein-
ingasnauð fæða og stútfullt
af næringarefnum.
Þjálfaðu líkamann reglu-
lega. Ef þú æfir nú þegar þá
skaltu smám
saman gera
æfingarnar
erfiðari en
ekkiauka
tímann sem
fer í æfing-
arnar.
Lyftu lóð-
um. Vöðvar
brenna fleiri
hitaeiningum
en fita!
Vertu
raunsæ, sér-
staklega
gagnvart lær-
unum sem
virðist vera
eins konar
fitugeymsla
hjá konum.
Lærafitu er
oft erfitt að
losna við og
það tekur
bæði tíma og
þolinmæði að losna við þann
vanda.
Varúð
Þetta ættu allir að vita en
sakar ekki að minna á:
Reyndu ekki að grennast.
of hratt. Þá ruglar þú
brennslukerfi líkamans og
hættir fljótlega að léttast.
Ekki borða undir 20
grömmum af fitu á dag. Lík-
aminn verður að fá ein-
hverja fitu. Þú skalt heldur
ekki fara niður fyrir 1200
hitaeiningar.
Ekki stóla á megrunarpill-
ur, megrunardrykki og aðrar
álíka gáfulegar töfralausnir.
Margt af þessu inniheldur
mikið magn af koffíni sem
getur gert þig pirraða í skapi
og hækkað blóðþrýstinginn.
Það sama gildir um
„megrunarte“ sem oft inni-
halda hægðalosandi efni. Þú
átt þá á hættu að fá óþægi-
lega magaverki og niður-
gang.
Borðaðu alla vega tvær
máltíðir á dag og ekki
sleppa morgunmatnum.
Léttur morgunverður, mat-
armikill hádegisverður og
léttur kvöldverður er besta
uppskriftin ef þú vilt léttast.
Svartur litur grennir konur
mest og er mun sterkari
leikur en glannaleg tísku-
föt í skærum litum.
ÞÚ GETUR KENNT HONUM AÐ BRJÓTA SAMAN
ÞVOTTINN MEÐAN HANN HORFIR Á SJÓNVARPIÐ!
Hagar karlmaðurinn á
heimilinu sér eins og
álfur út úr hól þegar
þú biður hann um að taka að
sér hluta heimilisstarfanna?
Ekki vera fúl út í hann. Það
getur vel verið að hann reyni
að leggja sig allan fram en
kunni einfaldlega ekki til
verka. Það er staðreynd að
heilastarfsemi karla og
kvenna er að mörgu leyti
mjög ólík og heili elskunnar
þinnar er þróaður til þess að
gera og skilja einn hlut í einu.
Ellen Sue Stern, höfundur
bókarinnar He Just Doesn't
Get It. segir að við konurnar
getum beitt smá kænsku til
þess að gera okkur sjáanleg-
ar, heyranlegar og skiljanleg-
ar og kennt körlunum til
verka.
Vertu ákveðin
Óþarfa málalengingar
rugla hann í ríminu. Gefðu
honum gagnorð og nákvæm
fyrirmæli.
Eitt verkefni í einu
Sumar konur gefa eigin-
mönnum sínum langa lista
yfir allt það sem þarf að
gera. Stern segir slíka lista af
hinu illa og þeir séu til þess
eins fallnir að karlmannin-
um fallist hendur. Gefðu
honum þess í stað eitt verk-
efni í einu. Mundu eftir að
hrósa honum fyrir það sem
vel er gert.
Sýndu honum hvar
hlutirnir eru geymdir
Ef þú biður hann að
hreinsa baðkarið er ólíklegt
að hann geti fundið réttu
hjálparmeðölin og gefist
einfaldlega upp áður en
hann byrjar. Hann hefur
enga afsökun ef þú byrjar á
því að sýna honum hvar
hlutina er að finna.
Veldu rétta tímann
Ekki tala um neitt sem
rnáli skiptir þegar hann er að
horfa á fótboltann í sjónvarp-
inu, það er ólíklegt að hann
heyri til þín. Gættu þess líka
að ná athygli hans óskiptri
áður þú biður hann t.d. að ná
í fötin þín í hreinsun.
Vikan 31