Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 63
mmt ... sumarlegu
§■ ávaxtaskálunum
■ sem fást í Habitat.
§f Skálarnar eru í skærum og björt-
W um tónum sem minna óneitan-
ip'1 lega á sumar, sól og suöræna
staði. Þær má nota undir ýmislegt
r annað en ávexti, eins og grænmeti
eða ýmis konar nasl. Einnig getur verið
skemmtilegt að fylla þær til hálfs af vatni
og láta sprittkerti fljóta ofan á.
r\dIIII lUoUI iUI 11 þarsem
gaman er að tylla sér niður og fá sér góð-
an bolla af kaffi með ástmanni sínum og
eiga innilegar samræður. Láttu það ekki
hindra þig að kíkja á kaffihús þótt þú sért
ein á ferð. Þaö getur veriö mjög notalegt
að sitja ein á kaffihúsi yfir lestri áhuga-
verðra tímarita eða nota tímann til bréfa-
skrifta. Svo er alltaf spennandi fólk á ferli
á kaffihúsunum sem þú getur stúderað!
Margrét Edda Stefánsdóttir er 23 ára
og er í rafmagnshjólastól. Það aftrar
henni þó alls ekki frá því að taka virk-
an þátt í lífinu, því hún hefur fjölmörg áhuga-
mál og hefur ganran af að prófa nýja og spenn-
andi hluti. Fyrir nokkrum árum fór hún í sjóinn
í flotgalla ásanrt félögum í Halaleikhópnum og
á næstunni ætlar liún að geysast um á Harley
Davidson mótorhjóli.
Margrét Edda er að læra leiklist og einnig
æfir hún íþrótt sem heitir Boccia. Hún er í sam-
búð og hafa þau hjónaleysin nýlega fest kaup á
íbúð.
Áttu uppáhaldsbók?
Já, það er Dagbókin mín, eftir
Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur.
Hvers konar matur finnst þér bestur?
Austurlenskur og svo ítalskur rnatur
sem ég bý til sjálf.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera?
Fara í gönguferðir, vera með fjölskyldunni og
vinum mínum. Svo finnst mér mjög garnan að
eiga ánægjulega kvöldstund með kærastanum
mínum.
Hver er eftirlætis stjórnmáiamaðurínn
þinn?
Guð hjálpi þeim nú öllum!
Hver er besta kvikmyndin sem þú hefur
séð?
My left foot.
Hvert ætiar þú í sumarfríinu?
Ég fer til Danmerkur í tæpar þrjár vikur.
Hvað finnst þér erfiðast að pola í farí
annarra?
Þegar fólk segir eitt og meinar annað. Einnig
þegar komið er franr við mig eins og ég sé
þroskaheft.
Áttu þér framtíðardraum?
Já, að keyra upp Esjuna í hjólastólnum
mínum og fá tækifæri til þess að leika í
kvikmynd.
Amtsbókasafnið á Akureyri
llllllllllllllllllllll
03 591 160