Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 20
Þórarinn Sveinsson, Lyngmóuni
i, Garðabæ, datt í lukkupottinn
þegar dregið var í Sumarleik
Vikunnar og Úrvals-Útsýnar.
Vinningshafinn í þetta
skiptið var alveg einstak-
lega heppinn. Hann vissi
ekki af því að hann væri þátttak-
andi í Sumarleiknum!
Þórarinn Sveinsson, Lyngmó-
um 1, Garðabœ, datt í lukku-
pottinn þegar dregið var í Sum-
arleik Vikunnar og Úrvals-Út-
sýnar.
Þegar hringt var í Þórarin
þvertók fyrir að hafa tekið þátt í
Sumarleik Vikunnar. Hann vildi
ekki kannast við að geta verið
vinningshafi í fyrrnefndum leik.
„Og hvað er í verðlaun?“ varð
Þórarni að orði eftir að búið var
að sannfæra hann um að hann
væri sigurvegari. Hann varð orð-
laus í smástund og svo heyrðist
bara: „Frábært! Ég bara trúi
þessu alls ekki.“
Eftir smá umhugsunarfrest
kom í ljós að eiginkona Þóarins,
Líney Sveinsdóttir, hafði sent
nafnið hans í Sumarleikinn. Það
er því óhætt að fullyrða að vinn-
ingurinn hafi komið honum
verulega á óvart.
Þórarinn og Líney hafa hvor-
ugt komið til Portúgals og þess
meiri ástæða fyrir þau að drífa
sig sem allra fyrst.
Þau eiga tvö ung börn og fjöl-
skyldan hefur ekki tekið sér
sumarfrí í ár en nú verður breyt-
ing þar á.
Það er líklegt að Þórarinn og
fjölskylda muni spóka sig innan
skamms á fallegri Algarve-
ströndinni í Portúgal, busla í
sjónum og njóta sólarinnar.
Við á Vikunni óskum Þórarni
og eiginkonu hans, sem á drjúg-
an þátt í vinningnum, innilega til
hamingju og vonum að þau eigi
frábært frí í sólinni.
Góða ferð!!!
Sumarleik
artt
íar
Það var virkilega gaman að sjá hversu margir lesendur Vikunnar ætluðu
sér að skreppa til Portúgals í boði Vikunnar og Úrvals-Útsýnar. Svarbréf-
in í Sumarleik Vikunnar fylltu
tvo stóra pappakassa en því miður gát-
um við einungis glatt einn lesanda í þetta skiptið.
En munið að enn er von, því þriðji og síðasti hluti
Sumarleiks Vikunnar er eftir. í næstu Viku kyiinum
við nýjan áfangastað Úrvals-Útsýnar og Sumar-
leikurinn heldur áfram. Verðlaunin geta komið sér
vel fyrir alla þá sem vilja komast í sól og sælu.
20 Vikan
ÚRVAL'ÚTSÝN