Vikan


Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 18

Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 18
Þetta eru eðlileg og lífsnauðsynleg viðbrögð þegar við þurfum á þeim að halda. Þau eiga hins vegar að fjara út um leið og hættan er liðin hjá, en ef þau eru viðvarnandi geta þau haft mjög alvarlegar afleiðingar s.s. hjarta- sjúkdóma, krónískar meltingartruflan- ir, ofnæmi af ýmsum toga, asma og fleira. Auk alls þessa verðum við við- kvæm fyrir alls kyns sýkingum þar sem ónæmiskerfi okkar þolir slíkt álag ekki til lengdar. Sem sagt; streitan getur lagt heilsu okkar í rúst ef við bregðumst ekki við henni á réttan hátt. Við getum ekki alltaf stjórnað því áreiti sem við verðurn fyrir, en við get- um stjórnað viðbrögðum okkar. Við þurfum sem sé að ná tökum á sjálfum okkur, þ.e. að læra að telja líkamanum trú um að við munum ekki gefast upp undan álaginu, heldur ná tökum á því. Við þurfum að slaka á þeg- ar við finnum fyrir einkenn- um streitunnar, reyna að af- greiða þann hluta sem við ráðum við, en sætta okkur við það sem við ráðum ekki við. Þegar við höfum lokið verkefnunum sem við getum klárað eigum við að sætla okkur við að rneira verði ekki gert að þessu sinni og að nú þurfi bæði sál og líkami hvíld til að við getum haldið áfram að vinna að verkefnunum síðar. Nokkur góð ráð til að ná tökum á streitunni: Farðu út að ganga. Stutt ganga gefur þér jafn mikla orku og stórt súkkulaðistykki en er miklu hollari. Þú færð heilmikla orku úr kaffi og sætindum, en við það eykst streitan og orkan þverr jafn hratt og hún kom. Farðu með Vikuna í baðkarið og liggðu þar lengi og lestu lífs- reynslusögu, viðtal eða annað sem þú þarft að einbeita þér að. Við það mýkjast vöðvarnir, hugurinn tæmist og hjartslátturinn róast. Alger slökun. Hafðu róandi liti í kingum þig. Rauður litur virkar æsandi á fólk, en blár og grænn eru róandi. Lærðu einhvers konar slökun. Kauptu þér myndband með slök- unaræfingum eða farðu í jóga. Margar bækur eru til um slökunar- aðferðir og þú skalt skoða þær vel og velja þær sem henta þér best. Það er auðveldara að ná tökum á andlegri þreytu ef þú ert í góðu líkamlegu ástandi. Fimm mínútna leikfimi á dag eða hálftími tvisvar í viku gera kraftaverk. Veldu þér hreyfingu sem þér finnst skemmtileg. Sumir vilja ganga, aðrir synda, sumir vilja pallapúl og aðrir dans;- hvað hentar þér? Þeir sem vinna við skrifborð ættu að standa upp á klukkutíma fresti og ganga um gólf eða teygja sig. Kyrrseta hefur slæm áhrif á líkama og sál. í lok hverrar vinnuviku skaltu taka hálftíma í að ganga frá á vinnu- staðnum svo hann sé aðlaðandi í byrjun næstu vinnuviku. Streitan hleðst upp þegar þú mætirtil vinnu og pappírsfjöll og tómir kaffi- bollar taka á móti þér við skrifborðið. Mundu að þú ert ekki vél. Þú þarft ekki að vinna á sama hraða og tölvan þín! Veldu þér fatnað sem þrengir ekki að þér. Þröngur og óþægilegur fatnaður getur valdið líkamlegri vanlíðan sem bitar fyrr eða síðar á huga þínum. Gefðu þér góðan tíma til að ferðast á milli staða og farðu alltaf á salernið áður en þú leggur af stað. Þessi einföldu atriði eru lykilat- riði í því að þú komist heil(l) á húfi á ákvörðunarstað og sért tilbú- in(n) til að gefa og þiggja. Líttu á hlutina sem verkefni en ekki vandamál. Þar er mikill munur á. Ekki skemmta þér oftar en tvisvar í viku. Allt umfram það mun ör- ugglega koma niður á heilsu þinni jafnvel þótt þú drekkir í hófi og komirsnemma heim. Lærðu að segja nei! Ekki taka að þér meira en það sem þú ræður örugglega við. Borðaðu hollan mat og drekktu mikið vatn. - Já, þetta er gömul lumma, en hún er þess virði að fara eftir henni því fátt skilar betri árangri í leit að betri líðan. Skrifaðu niður allt það sem veldur þér hugarangri og ræddu það við einhvern sem þú treystir mjög vel. Þú munt sjá að flest þessi vandamál hverfa eins og dögg fyrir sólu þegar þau eru komin upp á yfirborðið. Gráttu ef þú þarft og sofnaðu á eftir. Tárin hreinsa sálina, létta á þér og opna streitunni leið út úr líkama þínum. Spilaðu þá tónlist sem þér finnst þú þurfa að hlusta á. Það er við- urkennd lækningaaðferð og skilar ótrúlegum árangri! Leggstu út í móa og þefaðu af jörðinni, það gerir líka ótrúlegt gagn. Verslaðu þegar lítið er að gera í búðunum. Ekki fara í búðina á leiðinni heim úr vinnu, farðu frekar á leiðinni í vinnuna. Þú verður helmingi fljótari og engin streita mun fylgja því. Spurðu þig sömu spurningarinnar á hverju kvöldi: Spennti ég bog- ann of hátt í dag? Ef svarið er játandi verður þú að gera betur á morgun. Gerðu það sem þú kemst yfir með góðu móti, en láttu hitt eiga sig. Þannig gerir þú þitt besta. 18 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.