Vikan


Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 44

Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 44
Framhaldssagan HÆTTULEGUR LEIKUR Leiknum lauk síðar en Mac átti von á og hann ók hratt að Valley Road númer sautján. Hann lagði bílnum í inn- keyrslunni, hljóp upp tröpp- urnar og hringdi dyrabjöll- unni. Gena var örugglega orðin öskureið! Hann brosti til konunnar sem opnaði dyrnar. Ég heiti Mac McDermott. Konan mín er víst hérna. Ég heiti Viktoría Louisa. Gakktu í bæinn. Hann gekk á eftir henni inn ganginn og inn í stofu. Hvar er hún? Hún er niðri. Hún er enn- þá að skoða bækurnar. Má bjóða þér drykk meðan þú bíður? Hún hellti rauðum vökva í glas og rétti að honum. Nei takk, ég drekk aldrei púns. Hann fór fram á gang- inn og að kjallaradyrunum. Það er kominn tími til að við Gena komum okkur heim. Það lítur út fyrir að þú rat- ir hér í húsinu? sagði Vikt- oría. Hann leit undrandi í kringum sig. Já, þú segir nokkuð. Farðu bara á undan, sagði Viktoría. Hún var alveg á hælunum á honum og þegar hann var kominn alla leið niður mið- aði hún á hann byssunni. Hún skipaði honum að leggjast á grúfu. Svo lyfti hún kylfunni sem hún hélt á í hinni hendinni og sló hann í höfuðið eins fast og hún gat. Hvert þó í heitasta! Rusty hafði þá rétt fyrir sér eftir allt saman, hugsaði Mac með sjálfum sér áður en hann missti meðvitund. Þrátt fyrir að það væri sunnudagur var Rusty mætt- ur heim til Viktoríu klukkan níu um morguninn og vann til klukkan hálffjögur. Þá fór hann beint heim til Rae. Ertu búinn að kanna allan listann? spurði hún. Hann tók blað upp úr vas- anum. Paul Winger rekur bar í Fíladelfíu. Stanley Freemont er eiturlyfjaneyt- andi og þjófur og er um þessar mundir í fangelsi. Malcolm er giftur og á fjög- ur börn og býr á bóndabæ í Vermont. Þá getum við útilokað þau, sagði Rae. Og Nicholas Stillano er trúboði hjá sértrúarsöfnuði og kallar sig nú „faðir Stilla- no“. Hvernig fórstu að því að grafa þetta upp? Ég talaði við Brad Kagan. Hann er nýútskrifaður lög- fræðingur og vinnur á lög- mannsstofu frænda síns. Það er víst fátt sem hann getur ekki komist að. En eiginlega erum við engu nær. Rae hikaði og Rusty leit á hana. Um hvað ertu að hugsa? Hún andvarpaði. Rósalíu Salino. Þið vinirnir gerðuð henni víst lífið leitt. Rusty hristi höfuðið. Hvernig ætti hún að geta ráðið við Bobby? Eða kraftakarl eins og Sam? Nei, hún kemur ekki til greina. Þú hefur líklega rétt fyrir þér, tautaði Rae. En þú ættir nú að hringja aftur í Brad og spyrja hann hvort hann geti komist að því hvar hún heldur sig. Brad? Þetta er ég aftur. Má ég kvabba svolítið meira á þér? Að hverjum leitar þú nú? Rósalíu Salino. Hún var með okkur í skóla. Ég man eftir henni. Okk- ur var einu sinni boðið heim til hennar. Þú heldur þó ekki að hún ... nei, það getur ekki verið, sagði hann og hló. Hvað veit maður? Alla vega væri gott að vita hvar hún býr núna. Veist þú hvort hún er eitt- hvað skyld Theresu og Alex Salino? Ég hef ekki hugmynd um það. Kannski þau séu for- eldrar hennar? Þá sting ég upp á því að þú talir við Agnesi Mills. Hún fær nefnilega ávísun mánaðarlega úr einhverju sem heitir Salino-sjóðurinn. Ég get eflaust komist að ein- hverju fleiru á skrifstofunni á morgun, en þú getur byrj- að á því að tala við Agnesi. Rusty lagði á og teygði úr sér. Auðvitað vissi Agnes Mills hvar Rósalía var niður- komin. Að hann skyldi ekki hafa látið sér detta það í hug! Agnes Mills hataði sunnu- daga. Ekki það að aðrir dag- ar vikunnar væru eitthvað spennandi, en sunnudagarn- ir virkuðu sérstaklega langir og einmanalegir. Venjulega fór hún í göngutúr á sunnu- dögum en annars gerði hún lítið annað en að sitja við gluggann og fylgjast með húsinu á móti, í þeirri von að koma auga á Rósalíu. Það kæmi eflaust að því að Rósalía þyrfti á huggun að halda og þá kæmi hún vafalaust til Agnesar. Allt í einu hringdi dyra- bjallan. Þetta skyldi þó ekki vera Rósalía? Agnes flýtti sér til dyra. Fyrir utan stóð Rusty Erlich og með honum var hugguleg, ung kona. Megum við trufla þig að- eins? spurði Rusty. Þetta er vinkona mín, Rae Lemkin. Konan brosti til hennar og Agnes kinkaði kolli. Komið þið inn. Rae og Rusty settust í sófann og Agnes settist á stól við gluggann. Okkur langar til að spyrja þig um Rósalíu Salino, sagði Rusty. Veist þú hvar við get- um haft uppi á henni? Ég held að hún búi í New York. Ég hef ekki verið í sambandi við hana síðan hún flutti að heiman. Ég leigði bara herbergi í húsinu og hafði ekki svo mikið af henni að segja. Við þekkt- umst varla. Svo þú veist þá ekki hvort hún er væntanleg hingað á næstunni? Agnes dæsti. Hún hefði varla farið að selja húsið ef hún ætlaði sér að koma aft- ur? Nei, líklega ekki. Má ég spyrja hvers vegna þið þurfið að ná sambandi 44 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.