Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 34
Þar sem hvert hráefni
er látið njóta sín til
fullnustu
Athugið! Allar uppskriftir eru fyrir
fjóra ef annað er ekki tekið fram.
Lambalundir (3-4 stk. á mann) grill-
aðar með hvítlauk og humar (1-2 stk.
á mann).
Krydd á lambalundir:
Hvítlaukur, salt (sjávarsalt) og pipar.
Kryddlögur:
1 msk. tómatmauk
1 dl. ólífuolía
1 msk. fersk steinselja
2 hvítlauksgeirar
aromat eftir smekk.
Hugmynd að meðlœti: Léttsoðið
brokkolí, bakaðar kartöflur og ferskar
gulrætur eru „nammigott“ með grill-
matnum.
Aðferð:
Setjið lundir í marineringu 1-2 klst.
fyrir steikingu.
Humarinn er skorin eftir endilöngu.
Undirbúið meðlæti í réttri röð, byrjið á
eldun á því sem tekur lengstan tíma að
elda, t.d. kartöflur. Forsjóðið græn-
meti með því að hita vatn að suðu og
skella grænmetinu ofan í pottinn u.þ.b.
30-60 sekúndur, kælið eða setjið til
hliðar.
Hápunktur matarundirbúningsins er
síðan þegar allir þættir matreiðslunnar
koma saman í lokin, vonandi í stór-
fenglegum lokatón.
Samsetning réttar:
Grillið er stillt á hámarkshita og það
haft vel heitt fyrir lundir og/eða humar,
kartöflurnar eru tilbúnar og vatnið far-
ið að sjóða fyrir grænmeti eða búið að
undirbúa það fyrir upphitun á grillinu.
Nú er komið að því lundirnar eru
settar á grillið og penslaðar með hvít-
laukssmjöri. Pær eru kryddaðar og
steiktar hæfilega; mér finnst best að
léttsteikja þær í 1-2 mínútur á hvorri
hlið. Á sama tíma þarf að grilla humar
eða pönnusteikja með hvítlaukssmjöri í
u.þ.b. mínútu á hvorri hlið. Gott er að
setja örlítið af sítrónusafa eða hvítvíni
á pönnu með hvítlaukssmjöri og
krydda smjörið ef með þarf.
Verði ykkur að góðu!
‘II
03
&>
(fi
V
0«
c.
O:
(fi
0
3
U
0«
c.
0«
(fl
(D
■o
</>
</)
o
3
V
&>;
5'
w
</>
o
3