Vikan - 30.07.1999, Blaðsíða 50
Texti : Jóhanna Haröardóttir
Myndir: Jóhannes Long
Margir foreldrar kvíða þvi feikilega að fara
með börnin til tannlæknisins í fyrsta skipti.
Þeir hafa sumir slæma reynslu af tann-
læknisheimsóknum og vorkenna krökkun-
um þar sem þeir búast við að börnin hljóti
sömu reynslu. Margir foreldrar kvíða þvi
að þau verði hrædd og þar með séu fram-
tíðarsamskipti þeirra við tannlækna ráðin í
eitt skipti fyrir öll.
Og það er rétt, það skiptir öllu máli að
fyrsta heimsóknin til tannlæknisins sé á
jákvæðum nótum og það er í höndum for-
eldranna að svo sé.
Þórarinn Jónsson tannlæknir lét Vikunni i
té ómetanlegar leiðbeiningar til foreldra
sem standa frammi fyrir því að fara með
barnið til tannlæknis í fyrsta skipti.
2. A eigin
forsendum
Margir foreldrar gera
þá skyssu að lýsa
heimsókninni fyrir-
fram; segja barninu
hvað það muni sjá
og hvað muni ger-
ast á tannlækna-
stofunni. Barnið
hefur ekki for-
sendur til að skilja
þess háttar undir-
búning og ítarleg-
ar útskýringar
byggja aðeins
uþþ streitu hjá
barninu. Það er
mikils virði að
barnið meðtaki
tannlæknastof-
una á eigin for-
sendum og fái
ekki uþplýsingar sem ekki standast þegar á
hólminn er komið.
Börn sem hafa þegar slæma reynslu af lækn-
um (t.d. eyrnabólgubörn sem sum hafa þurft
að ganga í gegnum óþægilegar rannsóknir og
aðgerðir) eru sérstaklega viðkvæm fyrir og
þessi regla gildir ekki síður um þau.
1. Að kynnast tannlækninum
Það skiptir öllu máli að barnið fái að kynnast tannlæknastofunni og starfsfólk-
inu í fyrstu heimsókn. Þá er ekki markmiðið að hægt sé að skoða tennurnar,
heldur aðallega að ná sambandi við barnið, fá það til aðvera sátt við að vera
inni á stofunni og losna við óttann ef hann er fyrir hendi.
Þegar barnið er á aldrinum 1-2 ára er gott að koma með í fyrstu heimsóknina
til tannlæknisins. Barnið á að koma ,,með“ foreldrinu til tannlæknisins, en ekki
foreldrið með barninu. Þ.e.a.s heimsóknin til tannlæknisins á ekki
að snúast
um barnið. f"
3- Setíið ,
barnio ekki i
vamarstöou
Tannlæknastofan er
skrýtinn heimur og
ólíkur því sem barnið
þekkir og það fyllist
því oft óöryggi fyrst í
stað. Flestir foreldrar gera
þá skyssu að byrja á að
útskýra allt og hræða með ----
50 Vikan