Vikan


Vikan - 17.08.1999, Blaðsíða 21

Vikan - 17.08.1999, Blaðsíða 21
Maðurinn sem ég elskaði hélt framhjá mér Þaö var sunnudagsmorgun í maí 1993. Maöurinn, sem ég hafði búiö með í rúm- lega tíu ár og verið gift í fjögur ár, fór út í búð og keypi mat sem nægði okkur tveimur í heila viku. Hann vakti mig með því að færa mér tebolla í rúmið; sagðist elska aðra og vilja búa með henni. Hann pakkaði niður fötunum sínum og hálftíma seinna var hann farinn. Enn þann dag í dag finnst mér ótrúlegt að mig hafi ekki grunað neitt. Ég er lærður sálfræðingur, ég tel mig vera góðan mannþekkjara og ég er næm á tilfinningar annarra. Samt hafði ég, sér- fræðingurinn sjálfur, ekki haft hugmynd um að maðurinn minn héldi framhjá mér. Þegar ég lít til baka til þessa dags sé ég að það var þetta sem ég átti erfiðast með að sætta mig við. Mitt í allri sorginni gat ég ekki annað en furðað mig á hve ég hafði verið blind. Ég hafði oft hneyklast á sögum um saklausar konur sem höfðu ekki hugmynd um að eiginmennirnir héldu framhjá þeim. Hún hlýtur að hafa vitað það, hafði ég hugsað yfirlætislega. Kona, sem situr sem fastast í hjónabandi með manni sem stöðugt heldur framhjá henni, hlýtur að vera í afneitun. Hjónabandið getur varla verið mjög náið. Ekki jafnnáið og mitt, hafði ég hugsað drjúg með mig. Nú veit ég betur. Mig hafði heldur ekki grunað neitt. Veröld mín hrundi þennan sunnudag þegar ég horfði á eftir honum aka í burtu í nýja sportbílnum sínum. Ég hringdi í Gunnu, bestu vinkonu mína, sem lofaði að koma til mín. Ég fór í bað, settist á rúmstokkinn og beið. Og kisa, -bara ef maður væri kisa-, kom og settist í fangið á mér. Ég vissi ekki af mér fyrr en ég heyrði í bílnum hennar Gunnu. Ég leit á klukkuna. Þrjár klukku- stundir voru liðnar. Ég mundi ekkert eftir þessum klukkustundum. Ég hafði greinilega hvorki hreyft legg né lið vegna þess að við kisa sátum ennþá kófsveittar í námvæmlega sömu stellingum á rúmstokknum. Ég veit það núna að ég sat allan þennan tíma og hugsað. Hann hafði sagt að samband- ið hefði staðið yfir í þrjá mánuði. Þegar ég heyrði það leið mér betur - og verr. Betur, vegna þess að það þýddi að hann hafði ekki farið á bak við mig í langan tíma. Verr, vegna þess að það þýddi að hann þurfti ekki lengri tíma til þess fórna tíu ára sambandi okkar. Ég gat ekki hætt að hugsa. Ég reyndi að kryfja til mergjar þessa síðustu þrjá mánuði. Það var líkt því að lesa síðustu blaðsíðurnar í spennusögu. Þú reynir að komast að því hver sé morðinginn og uppgötvar að lokum að höfundur- inn hefur leitt þig í gildru með röngum vísbend- ingum. Ég mundi eftir nokkrum vísbendingum. Eins og t.d. þegar ég fór á helgarnámskeið og hann sagði mér að kona sem ynni með honum hefði komi í heimsókn með son sinn. Nokkru seinna kom þessi sama kona til þess að keyra hann á fund. Hún vildi ekki koma inn og beið eftir honum úti í bíl. Hann hafði flýtt sér út og nú veit ég að það var sektar- svipur á andlitinu á honum þegar hann kvaddi mig. Auðvitað var „hin konan" þessi starfsfélagi hans. (Það hlaut að vera, við vorum alltaf saman þegar hann var ekki að vinna). Hann hafði komið því til leiðar að við hittumst öll og fengum okkur drykk. Ég hafði hugsað sem svo að það væri hið besta mál að hann vildi kynna mig fyrir starfsfé- lögum sínum. Eftir á að hyggja hefði ég átt að koma auga á tvær vísbendingar. í fyrsta lagi að konan, sem hann hafði sagt vera skemmtilega og gáfaða, sagði varla eitt einasta orð allt kvöld- ið. (öðru lagi að maðurinn minn, sem vill helst vera kominn í rúmið ekki seinna en á miðnætti, bauð henni heim með okkur seinna um kvöldið og sýndi engin merki þess að hann væri þreyttur. Seinna komst ég að því að það er algengt að sá sem heldur framhjá stilli elskendunum upp sam- an, hliðvið hlið. Úllen, dúllen doff.... Aðstæðurnar voru honum í hag. Þau voru saman daglega í vinnunni. Starfsins vegna þurftu þau oft að ferðast saman og það var hin fullkomna fjarvistarsönnun. Ég sat eins og Miss Marple á slæmum degi og fór í gegnum allar vísbendingarnar. Reyndi að átta mig á hvernig, hvenær og hvar glæpurinn hafði verið framinn. Gunna vinkona mín hjálpaði mér í gegnum þennan erfiða tíma. Ég bjó hjá henni í sex mán- uði. Ég sótti um skilnað og í nóvember vorum við endanlega skilin. Ég verð að viðurkenna að þetta var ekkert skyndiskot hjá honum. í dag eru þau gift og eiga tvö börn. Ég er líka gift aftur. Við seinni maðurinn minn eigum það sameiginlegt að hafa fengið reisupassann frá fyrrverandi mökum okkar á nákvæmlega sama hátt. Reynd- ar hafði hann legið í baðkarinu, ekki í rúminu. Og nei, hann hafði heldur ekki grunað neitt. Þegar ég lít til baka sé ég hvers vegna ég var svona grunlaus. Við sjáum eingöngu það sem við viljum sjá. Ég treysti manninum mínum fullkom- lega annars hefði ég ekki gifst honum. Og hon- um tókst snilldarlega vel að blekkja mig. Þegar við skildum sagði ein vinkona mín að hér eftir myndi ég aldrei treysta nokkrum manni. Ég varð öskureið. Hvílík fjarstæða! En vitið þið hvað? Nú eru liðin fjögur ár. Ég er hamingjusöm og reynsl- unni ríkari en innst inni veit ég að ég mun aldrei framar geta treyst nokkrum manni að fullu. Vikan 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.