Vikan


Vikan - 17.08.1999, Blaðsíða 62

Vikan - 17.08.1999, Blaðsíða 62
Ekki missa af ... kryddjurtum í eldhúsglugganum . Tilraunastarfssemi meö ræktun kryddplantna er mjög skemmtileg og kryddjurtir bragöast yfirleitt best ferskar. Vissulega má rækta þær í garði eða á svölum en þær þrífast einnig vel í glugga- kistunni. Þá er líka fljótlegt að grípa til þeirra þegar verið er að matbúa. Það verður fyrst og fremst að gæta þess að kryddþlöntur fái mikla þirtu. Einnig er nauðsynlegt að jurtirn- ar séu hafðar í gljúpri og hæfilega næringarríkri mold og það þarf að vökva jurtirnar nokkuð oft. Kryddjurtir sem heppilegt er að rækta í eld- húsglugganum eru t.d. smátómatar, marjoram, rósmarín, steinselja, tímían og franskt estra- gon. Bókin Krydd og Nytjaplöntur, í þýðingu Fríðu Björnsdóttur í þókaflokknum „Allt um inniplöntur", er full af fróðleik um þessi efni. ... berjatínslu. Nú fer senn í hönd sá árstími að ber verða fullþroskuð og ættu því allir sem vettlingi geta valdið að drífa sig í berjamó. Slíkar ferðir eru mjög skemmti- legar og geta verið hreinasta ævintýri fyrir börnin. Klæðist þykkum peysum, takið með ykkur nesti og rúmgóð ílát fyrir berin. Það þarf ekki að fara langt til að finna nóg af berjum; Þingvellir eru sígildur kostur fyrir berjatínslufólk. . Allure frá Chanel, Þetta ilmvatn er hreint út sagt ómót- stæðilegt. Næst þegar þú átt erindi í snyrtivöruverslun óskaðu eftir að fá að prófa það. Þú munt örugglega fá lof- samleg viðbrögð frá fólkinu sem þú umgengst þann daginn! ... Nivea solarvorn. Sólargeislarnir á íslandi eru Íi óvenju sterkir vegna þess i loftið er hreinna og tær- 'a en í flestum löndum. >ess vegna er sérstaklega nikilvægtfyrir íslendinga að vernda sig fyrir skað- legum geislum sólarinn- ar allan ársins hring. ... íslenskum gjafavörum handa vin- um sem búa erlendis. Það er alltaf gaman að senda gjafir til vina og ættingja sem búa erlendis til að minna á okkur og ís- land. Ýmsar verslanir selja íslenska hönnun á leirmunum, skartgripum og ullarvörum. Lopapeysurnar okkar eru ávallt vin- sælar og það er með sanni hægt að segja að þær séu hlýleg gjöf. Nú þegar skólarnir fara að hefjast er tilvalið að festa kaup á stórri og góðri lopapeysu í haustlitunum eða jafnvel í bleikum og gráum tónum sem eru í tísku um þessar mundir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.