Vikan


Vikan - 17.08.1999, Side 25

Vikan - 17.08.1999, Side 25
 Þegar vinur er í sjálfsmorðshugleiðingum Það er ekki til sérstök sjálfsvígsmanngerð Flest ungt fólk sem sviptir sig lífi er félagslega einangrað og ein- mana. Sumir eru börn fráskildra foreldra eða hafa búið við áfengis- misnotkun á æskuárum sínum. Öðrum gengur erfiðlega í námi og hafa vanmáttarkennd. Sumt ungt fólk í menntaskóla- eða háskóla- námi er haldið fullkomnunar- áráttu, er sjálfsgagnrýnið og mjög vel gefið. Þunglyndissjúklingurinn eygir enga von og einblínir á skuggahliðar lífsins. Vikan 25 Taktu alvarlega öllum hótunum um sjálfsvíg Margir aðhafast ekkert þegar vinur talar um að hann ætli að svipta sig lífi og er sú afstaða byggð á því að viðkomandi hefur ekki trú á að vininum sé alvara. „Hann gerir það ekki núna,“ er algeng hugsun. Raunveruleikinn er hins vegar sá að flest sjálfsvíg eiga sér stað þegar einstaklingur stendur frammi fyrir miklum erf- iðleikum. Löngun til þess að fremja sjálfsmorð dofn- ar ef hann kemst nokkurn veginn út úr erfiðleikum sínum. Það er einnig algeng- ur misskilningur að ef vinur er að tala um að binda endi á líf sitt þá sé honum ekki alvara. Það er hins vegar rangt. Fáir fremja sjálfsmorð án þess að gefa til kynna hvað þeir hafi í huga. Fæstir sem eru í sjálfs- vígshugleiðingum óska eftir dauð- anum sem slíkum heldur sækjast þeir eftir létti frá hræðilegum sál- arkvölum. Að ræða þessar hugs- anir og ótta á opinskáan máta er fyrsta skrefið í því að hjálpa við- komandi og er mjög þýðingarmik- ið. Lærðu að þekkja hættumerkin Þunglyndur einstaklingur getur verið að íhuga sjálfsvfg ef hann eða hún hefur: Aður reynt sjálfsmorð. um er gjarnan talað um „þung- lyndi" með bros á vör. Þegar þunglyndiseinkenni verða svæsnari bætast við önnur einkenni. Sjálfsásakanir geta breyst í ranghugmyndir. Hugsana- gangur og athafnaleysi viðkom- andi verður enn meira áberandi. Sjálfsmorðshugleiðingar og dauðaóskir verða áleitnari. Samtök gegn sjalfsvigum Samtök gegn sjálfsvígum hafa verið starfrækt sfðan í september 1998 og á þeim tíma hafa þau haft afskipti af tugum fólks í sjálfsvígshugleiðingum og aðstandendum þeirra. Starfssemi samtakanna fer sí- fellt vaxandi og fjöldinn allur af bréfum og símtölum berast þeim. Margir eru hjálparþurfi en það sést greinilega í bréfum og símtölum sem öll eru ör- væntingarfullt kall á hjálp. Um þessar mundir er að fara í gang símaþjónusta sem hægt verður að notast við allan sólarhring- inn en það krefst mikils undir- búnings. Samtökin hafa fram að þessu verið starfrækt á Selfossi og f heimahúsi Steindórs Halldórs- sonar sem er formaður samtak- anna og nú er svo komið að þau geta ekki lengur búið við þenn- an þrönga kost. Samtök gegn sjálfsvígum standa því frammi fyrir húsnæðisvanda og allur kraftur aðstandenda þeirra fer nú í að leysa þann vanda og fá sálfræðing til starfa hjá félaginu. Samtök gegn sjálfsvígum ákváðu að nota tæknina í þágu góðs málefnis og líknarmála sem snerta okkur öll. Á fáein- um mínútum er hægt að fara inn á heimasíðuna: http://www.islandia.is/~steind- or/pontun.htm og fylla út styrktarform, hvort sem er fyrir fyrirtæki eða einstaklinga. Allir sem styrkja fyrir 1900,- krónur eða meira fá senda bókina Gullmol- ar en hún hefur að geyma rúm- lega fjögur hund- ruð málshætti, spakmæli og setn-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.