Vikan


Vikan - 17.08.1999, Page 47

Vikan - 17.08.1999, Page 47
Eftir Gloriu Murphy. Þórunn Stefánsdóttir þýddi. getað gert þetta, en enn sem komið var vissi enginn nema hún að Viktoría var í raun- inni Rósalía. Agnes hugsaði til þess þegar Alex var myrtur. Þá hafði lögreglan handtekið hana og lokað hana inni í fangaklefa. Hún hafði sagt Henry Kag- an, lögmanni sínum, að þetta hefði verið slys og haldið fast við þann fram- burð sinn. Hún hafði verið í vondum málum þar til Rósalía bar vitni. Kviðdóm- endurnir komust við þegar þeir heyrðu framburð litlu stúlkunnar. Agnes hafði grátbeðið Kagan að blanda barninu ekki í málið, en hann hafði ekki hlustað á hana. Segðu okkur hvað þú heitir, sagði Kagan. Rósalía Salino. Veist þú hvað það er að segja sannleikann, Rósalía? Það er að segja eitthvað ná- kvæmlega eins og það er. Lofar þú að segja okkur sannleikann í dag? Tíu fingur upp til guðs, svar- aði hún alvarleg. Manstu eftir kvöldinu sem pabbi þinn dó? Stór tár runnu niður kinnar hennar. Kviðdómendurnir óku sér í sætunum og dóm- arinn rétti henni vasaklút. Getur þú sagt okkur hvað gerðist þetta kvöld, Rósalía? Rósalía horfði á Agnesi og kinkaði kolli. Ég fór niður í kjallara til þess að bjóða pabba góða nótt og þá heyrði ég að þau voru að tala saman. Hverjir voru að tala saman? Auðvitað pabbi og Agnes frænka, asninn þinn! Hlátur hljómaði um réttar- salinn. Um hvað voru þau að tala, Rósalía? Um byssuna. Hvaða byssu? Auðvitað byssuna hans pabba! Byssuna sem Agnes frænka skaut pabba með. Kliður barst um áhorfenda- pallana. Segðu okkur frá því sem gerðist, Rósalía. Þau sátu saman í sófanum og pabbi var að sýna Agnesi frænku byssuna. Rósalía sneri sér að kviðdómendun- um. Pabbi er lögreglumaður, útskýrði hún fyrir þeim. Svo rétti pabbi Agnesi frænku byssuna og sagði henni að skjóta. Sagði henni að skjóta? Hún kinkaði kolli. Já, en hún þorði það ekki. Þá sagði pabbi að það væru engar kúlur í byssunni og henni væri alveg óhætt að miða á hann og skjóta vegna þess að það væri ekkert hættu- legt. Hún gerði það og þá kom í ljós að það höfðu víst verið kúlur í byssunni! Hún leit á hann stórum augum. Má Agnes frænka fara heim núna? Agnes frænka fékk að fara heim - til Rósalíu. En ekkert var eins og áður. Barnið fór að kalla hana „frú Mills“ og kom fram við hana eins og hún væri ókunnug mann- eskja. Frú Salino hélt loforð sitt; Agnes fékk að búa áfram í húsinu. En barnið fyrirgaf henni aldrei og aldrei aftur var minnst einu orði á föðurinn eða söguna sem Rósalía sagði í réttar- salnum. Agnes hrökk upp úr hugs- unum sínum og andvarpaði sáran. Hún hafði viljað vernda Rósalíu en á ein- hvern undarlegan hátt var það Rósalía sem hafði hald- ið verndarhendi yfir henni.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.