Vikan - 17.08.1999, Page 57
Vikunnar
Þriðji og síðasti hluti Sumarleiks Vikunnar. Það er til mikils að vinna.
Taktu þátt í frábærum Sumar-
leik Vikunnar og hver veit nema
þú hafir heppnina með þér!
Kanaríeyjar
Gran Canaria er þriöja stærsta
eyjan í Kanaríeyjaklasanum. Eyj-
an er mörgum (slendingum góð-
kunn þar sem sólarþyrstir íslend-
ingar hafa heimsótt hana til fjölda
ára. Suðlæg lega eyjanna auk
Kanaríeyjastraumsins, sem er
angi af Golfstraumnum,
gera það að verkum að
loftslagið er afar þægi-
legt árið um kring. Hita-
stigið fer sjaldan niður
fyrir 20 gráður eða yfir
30 og loftið er frekar
þurrt. Menningin erfjöl-
breytt enda skipar hafið
stóran sess í lífi íbúa
eyjarinnar.
Enska ströndin á
suðurhluta Gran Can-
aria er mjög vinsæl. Þar
er frískandi hafgola
sem heldur hitastiginu
þægilegu yfirdaginn.Á
kvöldin iðar stöndin af
mannlífi. Þar má finna
fjölda kaffihúsa, bari og
veitingastaði. Enska
ströndin hentar bæði
ungum sem öldnum því
þar er hægt að finna
diskótek og skemmti-
staði fyrir fólk á öllum aldri.
Á Ensku ströndinni má sjá
verslanir hvert sem litið er og
víða eru verslunarmiðstöðvar.
Prúttið er verslunarmáti inn-
fæddra og því getur verið
skemmtilegt að prófa að prútta
hjá götusölum.
Fráflugvellinum og yfirá
Ensku ströndina er tæplega hálf-
tíma akstur en svo tekur ekki
nema fimm mínútur að aka niður
á Maspaloms-svæðið sem er
sambyggt Ensku ströndinni að
vestanverðu. Þar eru garðar með
lágreistum smáhúsaþyrþingum
og sundlaugum. Á þessu svæði
er minni ys og þys en á Ensku
ströndinni og því upplagt fyrir þá
sem vilja vera í algjöru næði að
dvelja á þessu
svæði.
Samgöngur
yfir á Ensku
ströndina eru
greiðar með leigubílum og stræt-
isvögnum.
Það er óþarfi að láta sér leiðast
á Gran Canaria. Fyrir
börnin eru margir
skemmtilegir staðir. Þar
má helst nefna Sioux-
city sem er eftirlíking af
vilta vestrinu. Þar takast
á indíánar og kúrekar
innan um dansmeyjar
og veitingastaði.
Vatnsrennibrautar-
garðarnir Ocean Park og
Aqua Sur eru frábær
skemmtun og svo má
finna stóran Tívolígarð
sem ber heitið Tivoli
holiday world.
Golfáhugamenn geta
svo sannarlega sinnt
áhugamáli sínu í sólinni.
Golfvöllurinn Camopo
de golf er örstutt frá öll-
um gististöðum Úrvals-
Útsýnar.
Verðlaunahafinn í
Sumarleik Vikunnar og
Úrvals-Útsýnar hlýtur að launum
ferð fyrirtvo og hótelgistingu á
Las Camelias. Hótelið er vel stað-
sett íbúðarhótel á Ensku strönd-
inni, nánar tiltekið við Tirajan-
breiðgötuna sem er ein fjölfarn-
asta gata strandarinnar. Einungis
eru 800 m að ströndinni og ör-
stutt að skreppa í verslunarmið-
stöðvar.
Til að eiga möguleika á Kanarí-
eyjaferð er nauðsynlegt að lesa
textann vel, svara spurningunum
og senda svörin til okkar fyrir 30.
ágúst nk.
Sendið þau til Vikunnar
merkt: Vikan - Sumarleikur
Vikunnar, Seljavegi 2,101
Reykjavik.
1 Hvað licitir þriðja stærsta
eyjan í Kanaríeyjakiasan-
um?
ZHvaða stóri golfvöllur er
örstutt frá ölliini gisti-
stöðuni Urvals-Útsýnar?
OHvað heitir ein fjölfarn-
asta breiðgatan á Ensku
ströndinni?
ÚRVAHÍTSÝN
Vikan 57