Vikan


Vikan - 31.08.1999, Síða 41

Vikan - 31.08.1999, Síða 41
Fléttaðir basthattar eru tilvalið föndurefni og hægt að skreyta þá að vild. Hægt er að skreyta þá hvort heldur er að utan eða innan og hengja þá síðan upp til skrauts hvar sem er í húsinu. Það er hægt að nota margs konar efní til skreytinganna, en náttúrlegt efni fer best og þurrkuð blóm og borðar eru nauðsynlegir til að hattarnir líkist fyrir- mynd sinni sem eru auðvitað hattar hefðarkvenna. Upp á síðkastið hafa litlir trémunir bæst við og þá má setja í eða á hattana. Þessir smekklegu litlu trémunír eru ýmist handunnir eoa keyptir tilbúnir. Hér á síðunum eru hugmyndir að auðveldum skreytingum úr fléttuðum basthöttum og við látum fylgja lýsingu að gerð einnar þeirra. Það sem þú þarft: • Stráhattur af þeirri stærð sem þú kýst • mosi • lítill fugl úr tré • lítið fuglahús úr tré • skilti úr tré (ef vill) • þurrkuð blóm • svampur • límbyssa • akrýl föndurmálning • penslar Aðferð: Málið fuglahúsið, fuglinn og skiltið með akrýl föndur- málningu. Látið þorna. Pússið hlutina með sandpappír númer 120. Pússið vel kantana svo hlutirnir fái „gamalt útlit". Vætið svampinn í vatni og kreistið rakann úr honum. Bæsið hlutina með svampinum og strjúkið yfir með hrein- um klút. Bæsinn situr þá eftir í sprungum og rifum. Ýtið kúlunni á hattinum varlega inn. Þá verður auðveld- ara að hengja hann upp. Límið mosann inn í hattinn með límbyssunni. Límið að- eins litla búta í einu til að ná góðri festu. (Ef þið viljið hafa ilmolíur í hattinum er snjallt að líma svampræmur undir mosann til að taka við olíunni). Límið húsið niður í mosann. Klippið þurrkuðu blómin niður og setjið örlítið lím á endann á stönglinum. Stingið blómunum á víð og dreif í mosann. Límið fuglinn fremst á hattinn. Borið göt í skiltið og skrifið á það þann texta sem hentar ykkur. Bindið skiltið í hattinn. Gangi ykkur vel! Föndur í boði Föndurkofans, Brautarholti 22. Sími 552- 2258 unninn. Stór basthatt- ur í forstofuna, Fugl og fugla- hús úr tré, skilti og mikið af þurrkuðum jurtum. ATH! Hér á síðunum er að finna einfalda lýsingu á því hvernig hatturinn er Tveir hattar sem skreyttir hafa ver- ið að utan. Annar Jjeirra er með fléttuðum borða. I borðann er dreypt ilmolíu og því ilmar hattur- inn þægilega. Hinn hatturinn er skreyttur með þurrkuðum blómum og borða, dæmigerður sumarhatt- ur sveitastúlkunnar.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.