Vikan


Vikan - 31.08.1999, Page 47

Vikan - 31.08.1999, Page 47
þar frá því í vor. Hann var reyndar á tónleikaferðalagi í júlí og ágúst en hún er búin að vera hér allan tímann. Hvað heitir konan hans? Hún heitir Francesca. Francesca Ferrare. Raddblær- inn gaf til kynna að frú Minstrell hafði ekki mikið álit á konunni sem Kaiser fannst svo heillandi. Elise, systir Juli- ans, býr hjá þeim, hélt hún áfram. Hún er mjög undarleg í háttum og tilbiður bróður sinn. Vesalings maðurinn þarf á þeirri aðdáun að halda, eins og konan hans kemur fram við hann! Vesalings maðurinn, þarna kom það aftur. Hvað er að konunni hans? Frú Minstrell hristi höfuðið. Fólk segir að hún sé geðveik. Hún þurrkaði sér um hend- urnar og tók fram prjónana sína. Hún virtist alveg eðlileg fyrst eftir að þau komu hing- að. Mjög notaleg kona. Hún gaf sér alltaf tíma til þess að spjalla og okkur Fred líkaði sérstaklega vel við hana. En nú aftur á móti... Hvað gerðist? spurði Kaiser forvitinn. Stjúpfaðir hennar dó. Frú Minstrell þagnaði og hugsaði sig um. Ég man vel eftir deg- inum þegar hann kom hingað. Ég var í eldhúsinu að baka fyrir kirkjubasarinn og það var steikjandi hiti. Allt of heitt til þess að standa yfir ofnin- um. Ég var nýfarin út til þess að fá mér frískt loft þegar bfll stansaði við hliðið og huggu- legur, eldri maður spurði mig hvort ég vissi hvar Ferrare- fjölskyldan byggi. Ég benti honum á húsið við hliðina. Hann kynnti sig og sagðist heita Gustav Stahlberg, stjúp- faðir Francescu. Meðan við stóðum þarna kom Francesca í dyrnar. Hún var í miklu upp- námi og kallaði til hans að hann yrði að koma strax. Og hvað svo? Klukkutíma seinna fékk hann hjartaáfall og var borinn út á líkbörum. Sagan segir að hann hafi lengi verið hjart- veikur en við vitum ekki hvort það er rétt. Ferrare- fjölskyld- an hefur ekki látið hafa neitt eftir sér. Julian kom til þess að hjálpa Francescu við að undir- búa útförina og síðan fór öll fjölskyldan frá eyjunni. Þau sögðu upp þjónustufólkinu eins og þau ætluðu sér aldrei að koma hingað aftur. En þau komu aftur, sagði Kaiser. Frú Minstrell kinkaði kolli. Ó já, tveimur vikum seinna. Og þá var Elise með þeim til þess að gæta Francescu. Þau réðu til sín þjónustufólk, en enginn býr í húsinu nema fjöl- skyldan. Til þess að gæta Francescu? Ég er ekki dómhörð kona, sagði frú Minstrell ákveðin. En suma hluti er einfaldlega ekki hægt að réttlæta. Kvöldið sem þau fóru héðan reyndi Francesca að fremja sjálfs- morð. Og ekki nóg með það. Hún reyndi líka að drepa sak- laus börnin sín! Þau tóku ferj- una héðan og þegar ferjan var komin úr augsýn henti hún börnunum fyrir borð og stökk svo sjálf á eftir þeim. Þú getur rétt ímyndað þér hversu hræðileg reynsla þetta var fyr- ir börnin. Læknarnir vildu leggja hana inn á geðsjúkra- hús en Julian mátti ekki heyra á það minnst. Hún leit á Kaiser. Julian til- biður konuna sína og þess vegna er hún hér á eyjunni og felur sig í húsinu í stað þess að vera á geðsjúkrahúsi þar sem hún á svo sannarlega heima. Frú Minstrell var orðið heitt í hamsi en undir öllu málæð- inu mátti greina hræðslu. Það er svolítið taugatrekkjandi að eiga svona nágranna. Þótt tón- leikaferðalaginu hafi lokið í ágúst er Julian á stöðugu flakki um allan heim. Og kon- an hans svona fárveik! Aum- ingja Elise er skilin eftir með alla ábyrgðina. Þjónustufólkið segir að Francesca sé eins og hún sé út úr heiminum þegar Julian er að heiman, en það er líklega vegna þess að Elise gætir þess að hún taki geðlyf- in. Lyfsalinn segir að Francesca sé á svo sterkum lyfjum að hann þurfi að panta þau sérstaklega. Hún fórnaði höndum. Það er ekkert skrýtið að litli strák- urinn sé yfirspenntur. Það er brjálæði að láta lítið barn alast upp við þessar aðstæður! Þú sagðir að þau ættu tvö börn? Hvar er hitt barnið? Hildy? Hún býr þarna líka en Julian tekur hana með sér þegar hann ferðast. Hann seg- ir það þátt í tónlistarkennslu hennar. Stundum sitjum við Fred í garðinum og hlustum á hana spila. Hún er bara ellefu ára, en þvílíkir hæfileikar! En ég skil ekki hvers vegna Christian er skilinn eftir heima hjá konu sem reyndi að drepa hann! Kaiser hefði gjarnan vilja heyra meira en allt í einu heyrðist þrusk frá garðinum. Þetta er örugglega bara kött- ur, sagði frú Minstrell. Þau litu út um bakdyrnar en sáu ekkert fyrir svartri þokunni. Lágur grátur heyrð- ist í fjarska. Hver skyldi vera að gráta? spurði Kaiser lágri röddu. Frú Minstrell yppti öxlum. Ekki spyrja mig. En eitt get ég sagt þér: Flestir í þessari fjöl- skyldu hafa góða og gilda ástæðu til þess að gráta!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.