Vikan


Vikan - 31.08.1999, Síða 58

Vikan - 31.08.1999, Síða 58
Texti: Steingerdur Steinarsdóttir „Ströndin var hvít og sandurinn mjúkur og heitur. Sjórinn var svo blár að hann rann saman við himininn á stundum. Pálma- trén sveigðust í eftirmiðdagsgolunni og hæðirnar voru gróðri vaxnar svo langt sem augað eygði. fllls staðar spruttu blóm. Stórar ilmandi blómkrónur teygðu sig inn á göngustíginn við hótelið mitt og oft stansaði maður til þess eins að lykta af blómunum. Ég varð ástfangin af staðnum löngu áður en ég hitti Mike. Hann kenndi gestum hótelsins á vatnaskíði og ég þarf varla að taka fram að ég varð ákaflega leikin á vatna- skíðum fljótlega eftir ég kom. Hann hefur sjálfsagt skynjað að áhugi minn var ekki bara á íþróttinni því í einum tímanum fór hann upp á skíðið með mér, hélt utan um mig og við skiðuðum og stóðum þétt upp við hvort annað. Eg hafði meiri áhuga á kennaran- um en faginu sem hann kenndi Þegar tímanum lauk bauð hann mér út og við áttum yndislega daga og nætur þar til ég varð að fara heim aftur. Við skrif- uðumst á í nokkurn tíma og það stóð til að hann kæmi hingað í heimsókn en svo hitti ég manninn sem nú er eiginmaður minn og þá voru allir aðrir gleymdir." Troddu þér nú inn í tjaldið hjá mér Þessi kona er áreiðanlega ekki sú eina sem á minningu um eldheita sumarást. Sum- arnætur í íslenskri sveit hafa ekki síður verið eftirminnilegar mörgum. Þórs- merkurævintýri Maríu var meitl- að í ljóð sem ófá- ir Islendingar kyrja meðan lagður er grunn- ur að þeirra eigin rómantík. Fæst slík ævintýri end- ast þótt þess séu vissulega dæmi en hvers vegna skyldi sumarást vera svo eftir- minnileg sem raun ber vitni? í fyrsta lagi er fólk yfirleitt í fríi og hefur því tíma til að sinna hvort öðru og leggja rækt við smáat- riði eins og að liggja fram- eftir á morgnana, færa hvort öðru morgunverð í rúmið eða ganga langtímum saman um fallega staði og njóta þeirra í samein- ingu. I öðru lagi gefur áhugi einhvers af hinu kyninu aukið sjálfstraust og ef sumarást stendur undir nafni baðar parið hvert ann- að í umhyggju og aðdáun. Ahrif þessa geta varað lengi og gefið fólki nýjan ljóma sem síðan skilar sér athygli annarra eftir að hversdags- lífið tekur aftur við. I þriðja lagi er fólk yfir- leitt betur upplagt þegar birtan er meiri og sólin skín. Það er opnara fyrir ástinni; þreyta og streita vetrarins eru víðsfjarri. I fjórða lagi gefur sú stað- reynd að fæstir reikna með að sumarást endist mönnum færi á að gefa sér örlítið lausari tauminn og jafnvel að sýna á sér nýjar hliðar. Spennandi, dularfull kona, dökkbrún í hvítum kjól stendur uppi við suðrænan bar með skreytt kokkteilglas í annarri hendi eða lopa- peysugæinn sem á ekki í nokkrum erfiðleikum með að hemja fjörugan hest. Sú hvítklædda vinnur á barna- heimili og klæðist venjulega teygðum bómullarbol sem er allur útataður eftir litlar, mishreinar hendur. Hrossa- temjarinn vinnur byggingar- vinnu hversdaglega og stendur uppi undir rjáfri á nýbyggingu með hamarinn í rassvasanum og buxnaset- una niður undir hnésbótum. Ég fór í frí með besta vini mínum „Fyrir nokkrum árum vann ég ferð fyrir tvo til Spánar. Ég var búin að panta ferðina og sækja miðana þegar slett- ist upp á vinskapinn milli mín og kærastans og ég vísaði honum á dyr stuttu áður en við áttum að stíga upp í flug- vélina og halda út. Nú voru góð ráð dýr og ég byrjaði á að hringja í vinkonurnar til að athuga hvort einhver þeirra hefði tök á að koma með. Engin var á lausu og ég sá fram á að annar miðinn yrði mér ónýtur og að ég þyrfti að hanga ein í hálfan mánuð á Spánarströnd. Þá bankaði óvænt upp á æskufélagi minn og vinur. Hann bjó í næsta húsi þegar ég var barn og við lékum okkur saman þegar við vorum minni. Á unglingsárunum hættum við að geta látið nokkurn sjá að okkur líkaði vel við hvort annað svo sambandið minnkaði. Hann bjó úti á landi en hafði alltaf samband af og til og ég kom við hjá honum þegar ég átti leið um þar sem hann bjó. Hann var á leið í frí en hafði ekki ákveðið neitt sérstakt sem hann vildi gera. Ég greip hann auðvitað á tröppunum og bauð honum með. Á Spáni uppgötvaði ég svo fljótlega hversu fallegur og skemmtilegur hann var. Eitt kvöldið eftir mat fengum við okk- ur göngu á strönd- inni og hann tók í höndina á mér og leiddi mig. Ég hallaði mér þá að honum og hann faðmaði mig og kyssti. Síðan hefur hann ekki faðmað aðrar konur en mig.“

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.