Vikan


Vikan - 31.08.1999, Page 61

Vikan - 31.08.1999, Page 61
Kynbomban síunga Raquel Welch gekk í það heilaga í sumar. Sá heppni heitir Richard Palmer og á nokkra pizzustaði í Beverly Hills. Raquel er öllum hnútum kunnug í hjónabandinu því þetta er í fjórða sinn sem hún játast draumaprinsi. Brúðkaupið var _ haldið á heimili stjörnunnar í Beverly Hills og þar voru samankomnir 125 nánir vinir og vandamenn. Níu ár eru síðan Raquel skildi við þriðja eiginmann sinn og hún var orðin leið á að vera einstæð. Leikkonan verður 59 ára hinn 5. september en nýbakaður eigin- > maður er aðeins 44. Raquel segist g hafa verið varkár þegar hún kynntist Richie fyrst og leyfði honum ekki einu sinni að kyssa sig góöa nótt eftir fyrsta stefnumótið. „Ég verð að passa mig á strákum sem eru bara að leita sér að verðlauna- grip,“ segir kynbomban. Þrátt fyrir að fyrri hjóna- bönd hafi endað með skilnaði er hún fullviss um að þetta muni endast. „Ég hef loks- ins fundið stóru ást- ina.“ ALLTAFI KLAMINU Charlie Sheen er enn og aftur kominn í vandræði. Nýlega var hann kærður fyrir að láta lífvörð sinn lumbra á tveimur klámstjörnum sem heimsóttu leikarann. Þær kæra bæði Sheen og lífvörðinn, sem heitir Curtis „Zippy“ Hunt. Stúlk- urnar segjast hafa verið fastagestir á heimili Sheen undanfarið og telja sig „nánar“ vinkonur stjörnunnar. Lífvörður- inn nef- og kinnbeinsbraut aðra stúlk- una. Daginn eftir fengu þær morðhótun frá lífverðinum sem sagði þær feigar ef þær kjöftuðu frá árásinni. Sheen fær greinilega aldrei nóg af vandræðum. Það er kaldhæðnislegt að leikarinn ™ samþykkti fyrir skömmu að leika frægan klámkóng í bandarískri sjónvarpsmynd. Hann mun leika með bróður sínum, Emilio Estevez, í mynd um bræðurna Jim og Artie Mit- hchell sem voru klámkóngar í San Francisco. Silfurrefurinn Richard Gere verður fimmtugur hinn 31. ágúst og hann hefur ærna ástæðu til að fagna þessum merku tímamótum. Gere tilkynnti fyrir skömmu að hann væri að veröa pabbi í fyrsta sinn. Sambýliskona hans, Bond-gellan Carey Lowell, ber barn þeirra undir belti og Gere segir að hans fyrsta verk eftir að hann fékk fréttirn- ar hafi verið að hringja í fyrrum eiginkonu sína, fyrirsæt- una Cindy Crawford, og segja henni gleðitíðindin. Gere er allt í einu orðinn mjög fjölskyldusinnaður og til marks um þaö er hann hættur aö styðja Bill Clinton, forseta Banda- ríkjanna. Leikarinn var áður dyggur stuðningsmaður for- estans. „Ég er mjög argur út í hann því hann er bara eins og ég,“ segir Gere. „Hann hefur alla sömu gallana og ég. Ég veit vel að enginn er fullkominn en hversu oft gefst manni kostur á að vera forseti Bandaríkjanna? Þessi átta ár sem hægt er að sitja i því embætti gerir maður sitt besta. Hann hefði getaö verið þægur á meðan hann er forseti en snúið sér aftur að kynlífsruglinu eftir að hann hefur látið af embætti,“ segir Gere.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.