Vikan


Vikan - 31.08.1999, Side 62

Vikan - 31.08.1999, Side 62
Ekki missa af... ... Gallerý Kjöti. Þessi frá- bæra verslun býður upp á úr- vals kjötvörur og fyrsta flokks þjónustu. Metnaðurinn á þess- um bæ liggur í því að gera við- skiptavinum sem allra mest til hæfis og öllum sérþörfum er sinnt af alúð. Verkun kjötsins miðast við að gera gott og sér- valið kjöt að gæðavöru. Starfs- fólkið veitir allar upplýsingar um steíkingu og meðferð kjöts- ins með bros á vör. Tilvalið er að fá Gallerý Kjöt til þess að senda úrvals kjöt til vina þinna og ættingja, hvort sem þeir búa innanlands eða utan. ... vettlingum. Nú þegar vetur er í nánd og loftið orðið kaldara ættu allir, sem vettlingi geta valdið, að fjárfesta í góðum vettlingum eða hönskum. Gott er að vera tilbúinn í slaginn þegar kuld- inn fer að gera vart við sig og verja húðina á höndunum. Tilvalið er að bera næringarríkt rakakrem á hendurn- ar bæði kvölds og morgna og gæta þess að halda hita á þeim til að koma í veg fyrir þurrk í húðinni, sprungur og jafnvel exem sem get- ur orsakast af kulda. ... gömlum bókum. Það eralltaf gaman að glugga í gamlar skræður og hverfa á vit fortíðarinnar. Að auki eru gamlar, snjáðar bækur hreinasta stofustáss. Það er fallegt að raða þeim á hillu eða stafla þeim upp og einnig getur þykkur doðrantur ver- ið hentugur undir smáhluti eins og blómavasa, styttur eða kertastjaka. Gamlar bæk- ur fá á sig enn dulúðugri blæ ef lifandi kertaljós er nærri þeim. 0 F L T E R S T A ffltlá MU.-HM Intemetaðgangur tíl □ I.D 1.2000 á aðeins kr. 2000/ 3ffl ^lnnifalið i ofangreindu verði er uppsetningarhugbúnaður, innhringiaðgangur, eitt póstfang, 3Mb heimasíðusvœði, 160Mb gagnaflutningur/mán. til 01.01.2000 Tæknigaröl - Duntuiga 5-107 Reykþmk Síml: 525 4468 - Fax: 552 8801 - lnfo@vortexJs

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.