Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 7
„Eg hugsa að streita sem
tengist einhverjum
imynduðum verðmætum,
sem eru kannski einskis
virði. sé algeng hér á
landi, bæði hja foreldrum
og börnunum. Hér er
mikið af lyklabörnum og
ég held að streitan hjá
bornum tengist því líka
að þau þurfa að nugsa
svo mikið um sig sjalf.“
Námserfiðleikar og
hegðunarvandamál
„Eyrnabólgur eru einnig
algengar hér hjá börnum
fyrstu árin. Hér er oft mikill
kuldi og hvassviðri og vot-
viðrasamt og það gæti verið
skýringin á því að hér er
mikið um eyrnabólgur og
kvefpestir og ef til vill líka
það að ungabörn eru oft
lengi í gæslu þar sem báðir
foreldrar eru iðulega úti-
vinnandi og vinna oft langan
vinnudag. Það er mikilvægt
að reyna að forðast trekk
því sumir eru þannig úr
garði gerðir að þeir eru við-
kvæmir fyrir köldu lofti. Ég
mæli heldur ekki með því að
foreldrar séu að fara með
kornabörn í Kringluna, sér-
staklega ekki á veturna.
Börnin eru auðvitað eins
og fullorðnir misviðkvæm
fyrir sýkingum og pestum,
en þegar börn eldast fækkar
iðulega læknisheimsóknun-
um. Þau koma langmest
fyrstu tvö til þrjú árin. Þá
eru foreldrarnir að kynnast
börnunum, vita ekki alveg
hvernig þau veikjast og fara
með þau til læknis af
minnsta tilefni. Þegar börnin
eldast koma fram aðrir sjúk-
dómar til dæmis kviðverkir
og ýmsir erfiðleikar sem
tengjast skólagöngunni svo
sem einbeitingarleysi, náms-
erfiðleikar eins og dyslexia
og hegðunarvandamál.“
Nú er eins og æ fleiri börn
á skólaaldri greinist ofvirk
eða misþroska. Hvað veldur
því?
„Þegar börn komast á
skólaaldur getur maður far-
ið að skilgreina hegðunar-
vandamálin betur. Það er
erfitt að skilgreina þau hjá
litlu barni, það er erfitt að
segja hvað er óþekkt og
hvað er bara frjálslegt barn,
erfitt eða ofvirkt. Þegar
barn eldist getur maður úti
lokað svo margt. Það hefur
lengi verið vitað um ýmis
hegðunarvandkvæði hjá
„Börn geta verið alveg yndislega
skemmtilegir siúklingar og koma oft
með gullkorn. Sem dæmi má nefna
drenginn sem kom í læknisskoðun
var beðinn um að reka út úr sér tuna-
una. Hann svaraði alvarlegur í bragoi:
Eg get það ekki, Hún er föst aftan
Vikan