Vikan


Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 55

Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 55
um. Hún vissi fullvel hvers vegna ég hafði rekið manninn út. Eg sýndi samstarfskonu minni bréfið og hún hvatti mig til að fara. Hún taldi Hildi ill- kvittna og eina þeirra kvenna sem vilja ekki menn nema aðr- ar elski þá. í raun stjórnist þessar kon- ur af þörf til að sýna kynsystrum sínum að þær hafi yfirburði yfir þær frekar en af ást á karlmönnum. „Farðu og vertu nógu helvíti köld,“ sagði hún og ég ákvað að fara að hennar ráðum. í veislunni var að- allega fólk sem Einar hafði kynnst á AA- fundum og í síðustu meðferð. Margt af því þekkti mig ekki. Eg fékk mér gosglas og tók sérstaklega eftir að ekkert áfengi var á boðstólum. Einar var þá að minnsta kosti þurr enn. Þegar líða tók á kvöldið vék sér að mér maður sem hafði meira en ég gat afborið. Eg hugsaði oft til baka þessa erfiðu daga og nætur og ýmis smá atvik rifjuðust upp fyrir mér. Hvernig Hild- ur hafði alltaf verið brosandi og elskuleg við Einar þótt hún rakkaði hann niður og ætti ekki nógu sterk lýsing- arorð til að lýsa eigingirni hans þegar hún talaði við mig eina. Hvernig hún hafði eindregið hvatt mig til að slíta sambandinu og fært fyr- ir því ótal rök að það væri eina ráðið sem ég hefði ekki reynt og það eina sem dygði. „Þú verður að sýna að þér sé full alvara í þetta sinn,“ var það sem hún tönnlaðist á í tíma og ótíma þar til ákvörðunin var tekin. Að kvöldi seinna dagsins hringdi samstarfskona mín í mig, sú sem gift var alkó- hólista og spurði hvað væri að, hvort ég væri virkilega veik eða hvort þetta tengdist alkóhólistanum á heimilinu. Eg sagði henni alla sólarsög- una og hún kom til mín og var mér mikil stoð og stytta þetta kvöld og næstu daga. Fyrir hennar tilstilli dreif ég mig í vinnuna og allt gekk vel í nokkra mánuði. Mér hafði næstum því tekist að gleyma að þau Einar og Hildur væru til. Þá barst mér boðskort frá Hildi í pósti. í því stóð að hún og Einar hefðu keypt sér íbúð saman og ætluðu að gifta sig bráð- um og til að halda upp á það kæmu til þeirra nokkrir vinir í grillveislu. Þeim væri um- hugað um að sættast við mig enda þætti þeim báðum vænt um mig. Ég hefði gefist upp á Einari og rekið hann út þannig að varla gætu ver- ið mikil sárindi af minni hálfu. Ég trúði varla eigin aug- verið í meðferð með Einari og við fórum að spjalla. Hann átti ekki orð yfir hversu yndislegt og ást- fangið par þau Einar og Hildur væru og að hún hefði bókstaflega bjargað honum frá drykkjunni. Hann spurði mig hvort ég væri vinkona Hildar og hvort ég þekkti Einar. Ég svaraði því til að það mætti segja að ég hefði kynnt þau tvö. Hann greip þá um axlir mínar, sló í glas- ið sitt og sagði „Heyrið þið krakkar! Hér er hvorki meira né minna manneskjan sem er ábyrg fyrir því að parið okkar náði saman.“ Ég sá að þeir sem þekktu mig á staðnum fölnuðu og urðu vandræðalegir. Það var greinilegt að flestir óskuðu sér lengst í burtu. Ég minnt- ist orða vinkonu minnar og tók á öllu mínu, lyfti glasinu og sagði hátt og skýrt: „Já, skál fyrir væntanlegum brúðhjónum, þau eiga hvort annað skilið.“ Allir hlógu og eftir litla stund ákvað ég að laumast heim. Þegar Lesandi segir Steingerði Steinarsdóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni með okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig. jafnvel breytt lífi þínu? Þér er velkomið að skrifa eða hringja til okkar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. ég var að klæða mig í kápuna kom Hildur til mín og sagði „Fyrirgefðu að þú skyldir þurfa að ganga í gegnum þetta þarna inni. Mér hefði aldrei dottið í hug að neitt þessu líkt gerðist. Ég leit á hana ísköld og ró- leg og svaraði: „Blessuð hafðu ekki áhyggjur. Ég meinti hvert orð beint frá hjartanu." Hún stóð eftir klumsa þegar ég gekk út og lokaði rólega hurðinni á eft- ir mér. HcimilisfungiA cr: N'ikun ,.Lífsrcynslusugu*\ Scljuvegur 2. 101 Kcvkjuvík. Netfang: vikun@frodi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.