Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 59
Steingerður Steinarsdóttir
JBUI3
H°0 uBor|l
Hvað heitir þessi leikkona?
Hvers konar dýr er fjallakorpungur?
Hvaða ár hóf Stöð 2 útsendingar sínar?
Hver er höfundur bókarinnar Englar alheimsins?
í hvaða jökli er Síðujökull?
Hver hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1989?
Hversu mörg peð eru í upphafi tafls?
Hvað heitir fuglinn í kvikmyndinni um Aladdin?
Hvert er harðasta efni mannslíkamans?
10 Hvaða frægi þjóðhöfðingi var myrtur árið 1963?
11 Hvað nefnist sú lífvera sem lifir í eða á annarri lífveru og veldur henni skaða?
12 Hvaða þjóð framkvæmdi krufningar í fyrsta sinn?
13 Hver er höfundur skáldsögunnar Ástir samlyndra hjóna?
14 Hver var kallaður „óskabarn íslands, sómi þess, sverð og skjöldur"?
15 í hvaða landi var Prússland?
16 Hvað notaði Mary Poppins til að fljúga?
17 Af hverju eru fátækir í anda sælir, í fjallræðu Jesú?
18 Hvað heitir höfuðborg El Salvador?
19 Á hvaða hljóðfæri lék Duke Ellington?
20 Hvaða leikkona lék með SpencerTracy í níu kvikmyndum?
,
Til hamingju!41 hrópaði vinn-
ingshafinn í lesendaleik Vik-
unnar, Laufey Kristmundsdótt-
ir, þegar henni var tilkynnt að
hún hefði verið dregin úr hópnum. Blaðamaður
benti henni á að venjan væri sú að aðrir óskuðu vinn
ingshöfum til hamingju en Laufey svaraði:
„Eg veit það en þetta er bara svo frábært. Að
vinna í happdrættum er eitthvað sem er alls ekki
dæmigert fyrir mig og hefur aldrei komið fyrir mig
áður. Ég er mjög ánægð með Vikuna og kaupi hana
oft. Ég nýti mér bæði prjónauppskriftirnar og mat-
aruppskriftirnar mjög mikið. Blaðið er auk þess svo
efnismikið að þar er alltaf nóg að lesa. „
Laufey býr á Olafsvík en hún ætlaði að nálgast
hljómflutningstækin sem voru verðlaunin í lesenda-
leiknum næst þegar hún ætti leið í bæinn. Hún var á því að
fyrst heppnin var með henni í þetta sinn þá væri ekki
útilokað að hún tæki þátt í fleiri lesendaleikjum Vik-
unnar.
Vikan 59