Vikan


Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 27

Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 27
frí frá hvort öðru, Þú og maki þinn sitjið upp í rúmi; þú að lesa, hann að ráða krossgátu. Þetta þýðir yfirleitt... a) að þið séuð bæði að njóta þess sem þið hafið gaman af, b) að þú sért leið yfir hversu upptekinn hann sé af öllu öðru en þér svo þú finnur þér eitthvað til að gera sem slær á sársaukann, c) að þögnin á milli ykkar sé þrungin reiði, Maki þinn lofaði þér að hann skyldi flísaleggja eld- húsgólfið og... a) þú veist að hann mun gera það um leið og hann getur. Hann myndi aldrei ganga á bak orða sinna, b) þú ert ekkert of bjartsýn. Það getur allt eins liðið annað árþúsund áður en hann tekur við sér, c) þú veist að hann ætlar svo sem að gera þetta en hef- ur tæplega trú á að það verði nokkurn tíma. Þú byrjar strax að spara fyrir launum iðnaðarmanns sem þú munt þurfa að fá til að vinna verkið, Kynlíf er eitthvað sem þú og maðurinn þinn... a) njótið reglulega og talið frjálslega saman um, b) gerið af og til en talið sem minnst um, c) gerið nánast aldrei og munduð aldrei nefna í hvors annars viðurvist, Styrkið böndin á milli ykkar. Hvað þyða svorin? Teldu hversu mörg a, b eða c svör þú hefur gef- ið og lestu svo það sem á við þig. Aðallega A. Hjónaband þitt er traust eins og klettur í hafinu. Þú og eiginmaðurinn elskið, virðið, njótið og þráið hvort annað og það sem meira er þið sýnið það stöðugt. Þið hafið sett hjónabandið fremst í forgangsröðina og ef þið haldið áfram á þessari braut munuð þið halda áfram að blómstra saman. Aðallega B. Þú og maki þinn eigið vel saman og margt er gott í sambandi ykkar. Þið látið þó streitu hversdagslífs- ins hafa of. mikil áhrif á samband ykkar og stundum er ástandið erfitt. Reynið að gefa hvort öðru meiri tíma og leggja rækt við það góða í sambandinu jafnvel þótt það þýði að þið verðið að hætta einhverju öðru í staðinn. Ef þið farið að þeim ráðum líður ekki á löngu þar til þið verðið aftur eins og nýgift. Aðallega C. Þið hafið látið eftir ykkur að festast í far- vegi neikvæðni og það eyðileggur alla ánægju í sambandi ykkar. Ykkur finnst báðum þið hafa fjarlægst hvort annað svo mjög að þið eigið tæpast nokkuð sameiginlegt lengur. Hafið ekki áhyggjur. Það er mögulegt að finna aftur hlýj- una og væntumþykjuna sem varð til þess að þið tókuð saman í upphafi. Byrjið á því hvort í sínu lagi að venja ykkur á að eyða minnst þremur mínútum á dag í að tala um það sem ykkur þykir jákvætt í sambandi ykkar og hrósið hvort öðru. Þið eigið eftir að sjá að ykkur mun báðum líða betur á eftir og þið hafið stigið stórt skref í áttina að bættum samskiptum. Hiónabandsráðgjafar gefa gjarnan þessi rað til að bæta samskipti milli hjóna: A. Lærið að meta hvort annað upp á nýtt. Hvort sem þið trúið því eða ekki sýna kannanir að ung hjón vita oft meira hvort um annað en þau sem hafa verið saman lengi. Það sýnir sig að í byrjun sambands leggur fólk sig meira fram um að komast að hvað gleður og hryggir hinn aðilann en síðar. Það gleymist nefnilega ótrúlega oft að fólk þroskast og breytist. Smekkur, verðmætamat og framtíðardraumar tví- tugrar manneskju eru aðrir en þeirrar sem náð hefur þrítugs- eða fertugsaldri. B. Lærðu að meta hversu ólík þið eruð. Það er sagt að ólíkt fólk dragist hvort að öðru en þegar það giftist ráðist það hvort á ann- að í orðum. Ef makinn heillaði þig vegna þess hversu ólíkur hann er þér hvers vegna snýrðu þér þá strax að því að breyta hon- um og reyna að samsama hann þínum persónu- leika? Mundu að það voru einmitt þessir eiginleikar hans sem gerðu það að verkum að þú veittir honum athygli. Hugsaðu heldur um hversu að- laðandi og aðdá- unarverðir þér þóttu þessir eig- inleikar í upp- hafi og minntu sjálfa þig á það oft á dag. C. Hlæið saman og gerið að gamni ykkar; leikið þið ykkur eins og krakkar. Skemmtilegar stundir með hvort öðru er sementið sem lagt er í grunn vináttunnar, sem er undirstaða góðs hjóna- bands. Það skiptir ekki máli hvort ykkur þykir gaman að fara saman í bíó, keilu, óp- eruna eða veltast um í koddaslag í rúminu. Allt sem þið getið kallað góðar samveru- stundir styrkja samband ykkar. D. Lokið ykkur frá umheiminum af og til. Takið ykkur u.þ.b. hálftíma á hverjum degi til að njóta samveru. Slökkvið á sím- anum, sjónvarpinu, tölvunni og útvarpinu. Kennið börnunum um leið og þau eru orð- in nægilega stálpuð að skilja það að þetta er hvíldarstund mömmu og pabba og að þau eigi ekki að trufla. E. Sýnið ástúð. Faðmlag, þakklæti fyrir það sem vel er gert, blómvöndur, vinaleg e- mail skilaboð eða morgunverður í rúmið um helgar. Þetta eru allt smáviðvik fyrir þann sem framkvæmir en sýna hversu vænt viðkomandi þykir um makann og hversu mikils hann er metinn. F. Þróið með ykkur aðferð við að leysa ágreining. Karlmenn reyna oft að koma sér undan því að ræða vandamálin svo reynið að koma ykkur upp samskiptaregl- um þegar ágreinings verður vart. Þið getið t.d. einsett ykkur að hlusta hvort á annað, að annar aðilinn haldi ekki ræðu yfir hin- um heldur fái báðir að tala og ef skaphit- inn verður of mikill þá sé best að fara í sitt hvora áttina, láta sér renna reiðina og tala síðan saman æsingalaust. Takist ykkur að finna leið sem vel hentar til að taka á vandamálum eruð þið skrefi nær því að leysa þau. Þið getið einnig varað hvort annað við ef þið viljið ræða eitthvað sem fyrirfram er vitað að sé erfitt að tala um. Segðu makanum það t.d. með sólarhrings fyrirvara að þú viljir tala út um ákveðið mál og ef hann á erfitt með að tjá sig þá gefur það honum tíma til undirbúnings. G> Ekki gefast upp. Haldið alltaf áfram að reyna aftur og aftur þótt illa gangi í fyrstu að fara eftir þessum ráðum. Flest hjón telja upp að minnsta kosti tíu ágreinings- efni sem árekstrar verða endurtekið út af. Það er eins og aldrei takist fyllilega að leysa þessi vandamál og þau eru því stöðugt þrándur í götu fólks. Hjón sem eru ákaflega náin eru engu nær því að leysa slík vandamál í sínum samskiptum en önn- ur, munurinn felst í því að þau gefast ekki upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.