Vikan


Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 54

Vikan - 14.09.1999, Blaðsíða 54
Lífsreynslusaga Skál f 4P~ § • i fyrir væntanlegum nrúðhjónum inar fyrrum sambýlis- maður minn, er alkóhólisti. í átta ár barðist ég við að hjálpa honum að halda sér þurrum og þoldi drykkjuköstin hans þegar hann féll. Einar var yndis- legur og blíður drengur þeg- ar við kynntumst fyrst. Ég sá strax að honum hætti til að drekka of mikið þegar við fórum út saman en á móti kom að við sóttum sjaldan skemmtanir. Við byrjuðum eins og annað ungt fólk á að kaupa okkur íbúð. Ég vildi ekki eiga barn fyrr en ég hefði öruggt þak yfir höfuð- ið. Einar talaði oft um að sig langaði í barn en þótt freist- ingin væri mikil taldi ég hann á að láta skynsemina ráða. Nú þakka ég guði fyrir að ég gerði það. Fljótlega fór Einar drekka oftar. Hann keypti flösku fyrir hverja helgi og fékk sér í glas strax og hann kom heim á föstudögum. Ég tal- aði oft um að mér þætti þetta of mikið en hann dró úr því og sagði að honum þætti nauðsynlegt að slappa af um helgar eftir erfiða vinnuviku. Ekki leið á löngu þar til helgarnar hættu að duga. Hann þurfti líka að slappa af á kvöldin í miðri viku til að geta horfst í augu við næsta dag. Ég reyndi að mótmæla en það varð til þess eins að hann fór út og kom stundum ekki heim fyrr en næsta dag. Einar var aðlaðandi mað- ur og naut oft mikillar at- hygli annarra kvenna þegar við fórum út saman svo ég kvaldist af afbrýðisemi og áhyggjum þegar hann hvarf svona. Þess vegna hætti ég að rífast í honum og skipti mér ekkert af drykkjunni. Eftir þrjú ár og sívaxandi drykkju var jafnvel Einari orðið ljóst að þetta dygði ekki lengur. Hann var hætt- ur að mæta í vinnu nema endrum og sinnum og vinnuveitandi hans setti honum stólinn fyrir dyrnar. Hann sagði Einari að hann væri ágætur verkmaður sem gott væri að geta haldið í. Honum yrði hins vegar sagt upp ef hann færi ekki í með- ferð og tæki sig á. Einar fór í meðferð og stóð sig þokkalega í tæpt ár. Þegar ég segi þokkalega á ég við að hann drakk sjald- an en datt stundum í það um helgar en aldrei nema eitt kvöld. Ég leyndi drykkjunni enda vildi ég ekki að maður- inn missti vinnuna. Síðan sótti allt í sama farið. Vinnu- veitandinn fékk nóg og Ein- ari var sagt upp. Hann var atvinnulaus mánuðum sam- an, fékk aðeins stopula af- leysingavinnu en ekkert fast. Ég sá nánast ein fyrir heim- ilinu en launin mín hrukku tæplega fyrir nauðþurftum. Atvinnuleysisbætur Einars fóru nánast allar í vín. Það þarf því engan að undra að þegar mér bauðst betur launuð vinna þá tók ég því þótt ég þyrfti að vera fjar- verandi frá heimilinu nokkra daga í hverri viku. I þessu nýja starfi kynntist ég konu sem sjálf var gift alkóhólista og tók þátt í starfi AL-ANON. Ég fór að sækja fundi samtakanna og það rann upp fyrir mér að ég hafði verið meðvirk í drykkju Einars. Hildur, besta vinkona mín, til margra ára hafði oft bent mér á þetta en ég hlustaði ekki. Hún var ánægð með að ég væri farin að gera eitt- hvað í mínum málum og við fórum að umgangast hvor aðra sífellt meira. Hún var mikið inni á heimilinu næstu tvö árin en á því tímabili fór Einar í aðra meðferð en féll aftur. Ég hafði alltaf stutt hann, beðið eftir honum og verið til staðar þegar hann kom heim. Hildur hvatti mig til að hætta þessu. Setja honum úrslitakosti, annað hvort tæki hann sig á og hætti að drekka eða ég færi. Einar lofaði bót og betrun og stóð við loforðin um tíma en líkt og áður gat hann ekki hætt alveg. Ég tók þá ákvörðun með fulltingi Hildar, sem stapp- aði stöðugt í mig stálinu, að slíta sambandi okkar. Hann flutti út enda hafði ég ein greitt af íbúðinni árum sam- an og hún var á mínu nafni. Ég gaf honum fyllilega til kynna að ef hann stæði sig í meira en ár og sýndi að hann virkilega vildi og ætl- aði sér að hætta myndi ég taka við honum aftur. Fyrst yrði hann þó að sanna sig. Einar fór í enn eina með- ferðina eftir að hann flutti frá mér, svokallaða víkinga- meðferð. Hann hafði nokkrum sinnum samband eftir að hann útskrifaðist og bað mig að fara að búa með sér aftur. Ég neitaði á þeirri forsendu að ég yrði fyrst að sjá fram á að batinn yrði varanlegur í þetta sinn. Ég talaði stundum við hann í síma en harðneitaði að hitta hann, enda vissi ég að ef ég gerði það væri vafamál hvort ég stæðist hann. Ég vissi að hann fór reglulega á AA-fundi og Hildur hafði mikið samband við hann og færði mér fréttir af gangi mála. Hún gaf það alltaf í skyn að eina ástæðan fyrir því að hún talaði við Einar væri sú að hjálpa mér að fylgjast með. Það var því hræðilegt áfall þegar hún hringdi í mig og tilkynnti mér að hún og Einar væru byrjuð saman. Ég var svo lömuð að ég gat ekkert sagt. Að lokum stundi ég upp að ég sam- gleddist henni og síðan lagði ég á. í tvo daga fór ég ekki út úr húsi heldur lá uppi í rúmi og grét. Ég hélt satt að segja að ég myndi aldrei geta horfst í augu við lífið framar. Það var ekki bara það að hafa misst Einar, manninn sem ég elskaði þrátt fyrir allt, heldur voru svik þessarar vinkonu sem ég hafði trúað á og treyst 54 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.