Vikan - 14.09.1999, Side 10
Karen er Þórshafnarbúi sem lætur sér annt um velferð heimabyggðarinnar. Hún opnaði
gistiheimili á Þórshöfn í vor ásamt unnusta sínum. Undanfarið ár hefur hún verið for-
maður verkalýðsfélags staðarins og hún er í fullu starfi á Hafnarbarnum, veitingastað
og bar, sem foreldrar hennar eiga og reka.
aren er fædd og
uppalin á Þórshöfn.
Hún er stúdent frá
Verkmenntaskólan-
um á Akureyri og
ákvað eftir stúdentspróf að
snúa heim til Þórshafnar og
setjast að þar sem nóg væri
fyrir hana að gera. Hún fór að
vinna á Hafnarbarnum, sem
hún stofnaði ásamt foreldrum
sínum 1994, og segir staðinn
hafa verið mikla menningar-
bót fyrir Þórshafnarbúa. Veit-
ingastað og bar hafi sárlega
vantað á Þórshöfn.
Sérstaklega tekur Karen
fram að Hafnarbarinn hafi
komið sér vel fyrir ferðamenn,
en þeim hafi fjölgað mikið á
Þórshöfn frá því sem verið hef-
ur undanfarin sumur. Ástæð-
una segir hún vera betra veður
i ar en var í fyrra og glæsilega
iþrottamiðstöð sem
menn, jafnframt því sem gef-
inn hafi verið út bæklingur um
bæinn með helstu upplýsing-
um sem hjálpað hafi til við að
kynna Þórshöfn. En hver
skyldi hafa verið í frumkvöðull
að því að slíkt kynningarrit
var gefið út? Að sjálfsögðu
Karen, en hún tók að sér að
vera í forsvari fyrir hags-
munaaðila í bænum og gefa
út bæklinginn.
Þetta gerði Karen samhliða
því að vera að koma upp
glæsilegu gistiheimili en hún
og unnusti hennar. Ólafur
Birgir Vigfússon, eignuðust
draumahúsið sitt fyrr á árinu
og gerðu það upp. Það var
hús ömmu hennar og
afa
Karen hafði alltaf langað til að
eignast. Þar sem húsið er á
tveimur hæðum sá Karen
þann möguleika í stöðunni að
búa á neðri hæðinni og nýta
risið undir gistiheimili. Hún
hafði nefnilega frá því hún
flutti aftur til Þórshafnar, fund-
ið þörfina á meira gistirými í
bænum og því að koma upp
góðri aðstöðu fyrir ferðamenn
sem og aðra sem gista á
Þórshöfn.
Karen sér ein um rekstur
gistiheimilisins, en því stjórn-
ar hún að mestu frá Hafnar-
barnum þar sem hún er í fullri
vinnu. Ólafur BirgTr unnusti
hennar kemur lítið nálægt
rekstrinum, nema á kvöldin
þegar hann kemur heim, en
hann er bóndi á Syðra Álandi.
Þau sjást því ekki mikið yfir
daginn nema þegar þau
bregða sér úr bæn
umeðaþegar
Karen hjálpar til við bústörfin.
Fyrir utan gistiheimilisrekst-
ur og rekstur á veitingastað
og bar hefur Karen verið for-
maður Verkaiýðsfélags Þórs-
hafnar undanfarið ár. Það
starf kom óvart upp í hend-
urnar á henni þegar fráfarandi
formaður hætti og farið var í
að breytingar á starfsemi
þess. Karen tók starfið að sér
til bráðabirgða, eða þar til ein-
hver annar væri tilbúinn að
taka við. Það hefur ekki gerst
ennþá en hún segir beðið
næsta aðalfundar.
.LUiíi-'L
Karen er sennilega yngsti
verkalýösforingi á landinu, en
hún stjórnar félagi með yfir
300 meðlimum. Aðspurð um
það hvemig henni líki starfið
er hún hreinskilin og segir
það allt í lagi. „Það var rosa
lega mikið að gera í vetur
varðandi
:
m'
m
&
1 ■
WM
m
i* J
y