Vikan - 14.09.1999, Page 19
þegar ég finn þig þá hendi ég
þér út og mér er alveg sama
þó að þú hafir keypt miða og
mér er alveg sama hvað verð-
ur um þig og mér er alveg
sama hvort þú lifir eða deyrð
- Ég hendi þér út með mestu
ánægju.“
Þögn á ný. Enginn gaf sig
fram.
„Que est-ce qu’est passé?“
spurði Frakkinn við hlið mér.
„Ég veit það ekki,“ sagði ég
og kláraði þar með frönsku-
forða minn. „Hann er
mjög...“ ég leitaði í huganum
að orðinu „reiður“ en fann
ekki og gafst upp. Það var
orðið brýnt að komast á kló-
sett.
Fleiri sveittir Frakkar fóru
að spyrja hver annan. Skvaldr-
ið hækkaði, svitinn bogaði.
„Þögn!“ orgaði Mustafa.
Ungur Israeli stóð á fætur
og fór að útskýra málið á
reiprennandi frönsku.
Mustafa skipaði honum að
setjast. Þegar hann settist í
miðri skýringu urðu Frakk-
arnir enn hávær-
ari. Eldri maður
sem sat framar-
lega rétti upp
hönd og spurði
kurteislega:
„Hvernig væri að
athuga vegabréf
þeirra sem eru
hér inni?“
„Það er enginn
tími til þess,“
sagði Mustafa.
„En við erum búin að sitja
hér í klukkutíma," sagði mað-
urinn.
„Mér er alveg sama hvað
þið sitjið hér lengi, þið megið
sitja hér í allan dag mín
vegna," urraði Mustafa eld-
rauður í framan. „Þetta er allt
Mr. Lehmann að kenna og
þegar hann finnst skal hann fá
að finna til tevatnsins og ef
þið viljið berja hann þá er mér
alveg sama.“
Farþegarnir sátu stjarfir.
Ekkert rauf þögnina nema
hvíslið í ísraelanum sem þýddi
þessi síðustu skilaboð fyrir ná-
læga Frakka. Þá var bankað á
hurð rútunnar og ung kona
leit inn. Hún sagði eitthvað
við Mustafa og bflstjórinn
flýtti sér að setja í gang. Ég
spratt á fætur til að komast á
klósettið en Mustafa ýtti mér
til baka og hvæsti: „Þú tefur
okkur ekki meir.“
Svo var ekið af stað.
Frakkinn við hlið mér laum-
aði hendinni á hné mér og
þrýsti. Ég sló á höndina.
Hann kreisti aftur. Ég kreppti
hnefann og lamdi manninn.
Hann færði höndina til baka.
Við tók löng ferð yfir eyði-
mörk, að Súes skurði, yfir
hann og áfram yfir eyðimörk.
Ég vissi aldrei hver Mr.
Lehmann var né af hverju
hann kom ekki. Og kannski
var Mustafa prins úr 1001
nótt, fararstjóri var hann að
minnsta kosti ekki nema að
nafninu til. Ég komst ekki á
klósett fyrr en í Kaíró. Mig
minnir að þetta hafi verið átta
tíma leið. Kannski var hún
eitthvað styttri en ferðin lifir í
minningunni sem ein mesta
þrautarför sem ég hef nokkru
sinni lent í.
Opnunartími okkar cr Jrákl. 17:30
Borðapantanir í síma: 551 5520
Sími/fax: 5Ó2 1485
Því cízhi að eiga ógleymanlega
Izvöldsiund í rómantísku umhvcrfi
á Jónatan Livingston Mávi fegar
j>ú hýður elskunni út að horða.
Matseðill okkar er fjölhreyttur og hjóðum við
upp á villihráð a 1!l árið um kring eins og
okkur einum er lagið, ásamt steikum
og hinum ýmsu fiskréttum. Þú upplifir
eftirminnilegar stundir fegar j>ú
sœkir Jónatan Livingston Máv heim.
Munið raframan 15% afslátt
V'*A tilallra Visa korthafa
Jónatan Livingfston Mávur * Tryggfvagfötu 4-6 * 101 Reykj avík