Vikan - 05.10.1999, Page 14
Texti: Hrund Hauksdóttir
iMíKvan
I e g a MWe i k k o n a n
Meg Ryan er ein vinsælasta
leikkonan í Hollywood og hefur
heillað kvikmyndahúsagesti um
allan heim með stelpulegu fasi
sínu, kátínu og sakleysislegum
svip. Hún hefur í gegnum tíð-
ina verið í hlutverki viðkunnan-
legu stúlkunnar sem öllum líkar
við og aðalsmerki hennartil
þessa hefur verið „snyrtilegur
kynþokki", ef svo má að orði
komast. Hún töfraði alla upp
upp úr skónum í kvikmyndun-
um Sleepless in Seattle, When
A Man Loves A Woman og
You've Got Mail. Milljónir ungra
kvenna mæta á hárgreiðslu-
stofur með mynd af leikkonunni
og óska eftir ,,Meg Ryan klipp-
ingu" því þær vilja líkjast þess-
r
l
"1
V
ari krúttlegu konu með
kankvísa brosið.
En Meg Ryan er sjálf orðin
leið á þessari sykursætu
ímynd. Hún er 38 ára gömul, á
að baki 26 kvikmyndir og er
ekki sátt við að vera föst í
sama hlutverkinu í hverri
myndinni á fætur annarri. Hún
er einfaldlega orðin að formúlu
sem selst. Hún hefur nýlega
látið þau orð falla að það sé
orðið löngu tímabært að breyta
ímynd sinni og takast á við
öðruvísi og meira krefjandi
hlutverk. Um þessar mundir
vinnur hún hörðum höndum að
því að breyta krúttímyndinni og
er á höttunum eftir annars kon-
ar hlutverkum. Það hafa birst
myndir af henni í ýmsum tíma-
ritum þar sem hún er ýmist fá-
klædd eða í kynæsandi og
ögrandi fatnaði.
Blessun eða bölvun?
Hlutverk Meg Ryan í róman-
tískum gamanmyndum hafa
verið hvoru tveggja f senn,
blessun og bölvun. Hún var ný-
lega spurð í viðtali hvers vegna
áhorfendur byndust henni svo
sterkum böndum, sem raun
ber vitni, og virðast vilja endur-
spegla sig í hlutverkum hennar
á hvíta tjaldinu en ieikkonan fór
í varnarstöðu: ,,Ég er ekkert
viss um að þeir tengist mér
neitt sérstaklega eða vilji end-
urspeglast í hlutverkum mín-
um. í myndunum er lögð meiri
áhersla á söguþráðinn en per-
sónusköpun. Mér fannst ég
ekki leika neinn sérstakan per-
sónuleika í Sleepless in Seattle
og You've Got Mail. Það er eig-
inlega frekar erfitt að flokka
svona kvikmyndir niður því þær
eru ekki bara drama og heldur
ekki bara kómedíur. Þær eru f
raun ævintýramyndir. Stundum
hef ég á tilfinningunni að þær
séu svo léttar að þær muni
hverfa og verða að engu. Mér
finnst líka mjög erfitt að horfa
sjálf á þær, það tekur á taug-
arnar og ég ætla að halda mig
frá leik f svona kvikmyndum á
næstunni."
Samstarfsfólk Meg Ryan í
kvikmyndaheiminum er mjög
hrifið af henni og segir margar
hliðar á þessari konu sem enn
hafi ekki fengið að njóta sín í
leiklistinni. Leikstjóranum Noru
Ephron finnst Meg Ryan vera
besta gamanleikkona okkar
tíma: ,,í myndinni When Harry
Met Sally var hún alltaf að
framkvæma eitthvað sem var
hvergi til staðar í handritinu,
eins og atriðið í bílnum með
Billy Crystal þegar hún tók upp
á því að úða bílinn með hár-
lakkinu sínu. Hin fræga full-
nægingarsena var hennar hug-
mynd. Það er leitun að eins
góðri og skapandi gaman-
leikkonu."
En Meg Ryan langar að gefa
gamanleikkonuhlutverkinu
langt leyfi frá störfum, takast á
við alvarlegri hlutverk og einnig
hefur hún áhuga á leikstjórn. Á
meðal þess sem hún er að fást
við þessa dagana eru hlutverk
í kvikmynd um hjónaskilnað
eftir breska höfundinn Frederic
Raphael og í annarri mynd
sem fjallar um þrjár systur sem
ná aftur saman eftir lát föður
þeirra, sem var alkóhólisti. Di-
ane Keaton og Lisa Kudrow
leika með henni í þeirri mynd.
Einnig er í vinnslu kvikmynd
um ævi skáldkonunnar Sylviu
Plath og Meg Ryan er að von-
ast til að hreppa aðalhlutverkið
en það hefur vakið úlfúð innan
raða feminista. „Hugmyndin er
hræðileg," sagði Camille Pagl-
ia nýlega í viðtali í bresku dag-
blaði, en hún er virtur feministi
og gagnrýnandi. "Þessi sykur-
sæta fyrirmynd sem Meg Ryan
er hefur fleygt baráttu kvenna
20 ár aftur f tímann og nú ætlar
hún að taka að sér að túlka al-
vöru konu sem með verkum
sínum hjálpaði okkur að ná
enn lengra í jafnréttismálum.
Það er alls ekki viðeigandi."
Meg Ryan hefur hins vegar
ekki látið þess orð á sig fá og
heldur ótrauð áfram við að
breyta ímynd sinni.
Hver er Meg Ryan?
Hún var skírð Peggy Hyra og
lagði stund á blaðamennsku
við New York University í nokk-
ur ár. Á meðan á náminu stóð
fékk hún lítið hlutverk í sápuóp-
eru og lék einnig í auglýsingum
til þess að kosta nám sitt. Móð-
ir hennar vann hjá leikaraum-
boðsskrifstofu og útvegaði
dóttur sinni umboðsmann. Meg
Ryan var búin að leika í 10
kvikmyndum þegar hún fór að
velta fyrir sér hvert hún vildi
eiginlega stefna í lífinu. Hún
ákvað að hætta í náminu og
halda sínu striki innan leiklist-
arinnar.
Hún er gift leikaranum Denn-
is Quaid og saman eiga þau
ungan son. Þau búa í Santa
Monica í Kaliforníu en eiga líka
stóran búgarð í Montana þar
sem þau eyða sumarfríum sín-
um. Hjónin halda sig fjarri
sviðsljósinu og vilja hafa sitt
einkalíf út af fyrir sig. Þau hafa
verið blessunarlega laus við
slúður og sögusagnir sem
óneitanlega fylgir oft starfsstétt
þeirra en það vissu hins vegar
nær allir að Dennis Quaid var
kókaínneytandi þegar hann
kynntist Meg Ryan. Hún var þá
nýlega hætt með leikaranum
Anthony Edwards (sem leikur
Green lækni í Bráðavaktinni)
en þau höfðu búið saman í þrjú
ár eftir að hafa kynnst við tökur
á Top Gun árið 1986. Dennis
Quaid og Meg Ryan þurftu að
fresta brúðkaupi sínu þar sem
Quaid var svo djúpt sokkinn í
neyslu og varð að fara í með-
ferð. Hann náði tökum á fíkni-
efnavanda sínum og parið gifti
sig á Valentínusardaginn árið
1991. ,,Ég var mjög fordóma-
full gagnvart alkóhól- og fíkni-
efnaneyslu," sagði Meg Ryan í
nýlegu viðtali „ og það er alveg
dæmigert fyrir mig að verða
svo ástfangin af manni sem var
að berjast við slíkt vandamál.
Þetta var mjög erfitt og á tíma-
bili hélt ég að þetta samband
gæti aldrei gengið. En okkur
tókst að vinna úr þessum mál-
um og erum afskaplega ham-
ingjusöm."