Vikan - 05.10.1999, Blaðsíða 37
r
Vikan 37
Hráefni:
6-8 bollar
1 msk.
4 stk.
2 tsk
pastastrimlar, tagliatelle
gráðostur
tómatar
fersk steinselja
Krydd:
aromat og svartur pipar
Aðferð:
1. Sjóðið pastastrimla samkvæmt leiðbeining-
um á pakka. Pastað er sett út í sjóðandi vatn með
nokkrum dropum af matarolíu
og örlitlu salti. Soðið í réttan
tíma og sett saman við tómat-
maukið eða kælt með köldu
vatni, mikilvægt er að hella
vatninu af og setja pastað í ís-
skápinn. Ef soðið pasta er látið
liggja í vatni, hvort sem um
heitt eða kalt vatn er að ræða,
bólgnar pastað út og verður
ólystugt.
2. Þennan lið má framkvæma
á undan 1. lið þ.e. ef nota á
pasta beint eftir suðu í réttinn
og því næst framreiða. Gerum
ráð fyrir að búið sé að sjóða pa-
stað og kæla, pastað sé tilbúið í
ísskápnum. Þá eru tómatar
maukaðir í matvinnsluvél, settir
á pönnu og soðnir niður ásamt
gráðosti, hluta af kryddi og
helmingi af steinseljunni. Því
næst er pastanu bætt út í og hit-
að. Sett á disk og framreitt með
brauði, t.d. hvítlauksbrauði.
Gott er að strá örlitlum parmes-
j an osti yfir ásamt steinselju.
Hvítlauksbrauð er gott að
búa til, t.d. með því að skera
snittubrauð í sneiðar og smyrja
með hvítlaukssmjöri.
Verði ykkur að góðu!