Vikan


Vikan - 05.10.1999, Blaðsíða 29

Vikan - 05.10.1999, Blaðsíða 29
þess, en kvöldið sem hann smitaðist hefðu þau bæði verið mjög drukkin og hreinlega ekki haft rænu á því. Hann sagðist skilja mig vel og að honum dytti ekki í hug að ég gæti nokkurn tíma fyrirgefið sér. Þetta var það sniðugasta sem hann gat sagt, ég fyrirgaf einu sinni enn og nokkrum vikum seinna var hann fluttur inn og við vorum aftur orðin yf- irmáta hamingjusöm. Hann sagði mér að þessi lífs- reynsla hefði verið sér svo dýrkeypt að hann myndi aldrei láta sér detta þetta í hug aftur. Nú liðu enn nokkrir mán- uðir og hann vék nánast ekki út af heimilinu þegar hann var í landi. Það lá við að mér finndist nóg um. Við áttum að mínu viti dásam- legar samverustundir, jafnt tvö ein sem með öðrum, og mér fannst því í rauninni allt í lagi þegar hann sagði mér að strákarnir væru farnir að gera grín að sér fyrir að vilja aldrei vera með á pöbba- rölti. Eg sagði honum því að mér væri alveg sama þótt hann skryppi út meðan hann kæmi beint heim í bólið til mín. Og ég fann ekki betur en að ég væri eina konan í lífi hans. Að minnsta kosti varð ég aldrei vör við neitt áhugaleysi gagnvart mér kynferðislega. Nokkru seinna fóru fjár- málin að íþyngja okkur. Allt í einu fóru víxlar að falla og reikningarnir fóru að hlað- ast upp. Kortareikningurinn hans fór að hverfa (ég hafði séð um alla reikninga eins og flestar aðrar sjómanns- konur) og það sama mátti segja um símareikningana. Þegar ég spurði um þá sagð- ist hann vera að reyna að hirða eitthvað af þessu og grynnka á skuldunum og hann ætlaði bara að láta taka kortagreiðslur beint af laununum. Mér fannst þetta samt óþægilegt og ákvað að fylgjast vel með reikningum til að læra af reynslunni og gá hvort ekki væri hægt að draga eitthvað úr útgjöld- unum. Svo kom símreikn- ingur upp á rúmlega 50 þús- und krónur. Að vísu höfðum við alltaf haft frekar háa símreikninga vegna símtala okkar milli landa, en þetta var samt algerlega út í hött. Ég hringdi strax í Landssím- ann og staðhæfði að þetta gæti ekki staðist, reikningur- inn minn hlyti að vera á annað númer. Mér var sagt að þetta væri alveg hárréttur reikningur og ef ég ætti erfitt með að trúa þessum tölum ætti ég að fá útskrift á reikningnum. Mér var einnig bent á að hægt væri að láta læsa símanúmerum sem byrjuðu á 9 og margir sem ættu unglinga gerðu það til að koma í veg fyrir notkun á símatorgum. Nú brá mér verulega því þetta hafði mér aldrei dottið í hug, ég gerði mér nánast samstundis grein fyrir hvað var að gerast heima hjá mér. Það voru ekki krakkarnir sem voru að nota símann, það var pabbi þeirra! Ég bað um útskrift næst og einmitt um það leiti sem sá reikningur skilaði sér var allur sannleikurinn að ljúkast upp fyrir mér. Mað- urinn minn var klámfíkill. Ég fór að njósna um manninn minn. Með þessari eftirgrennslan minni jókst stöðugt reiði mín. Og ég varð honum ekki bara reið, heldur sjálfri mér líka fyrir að hafa látið þetta allt fram- hjá mér fara svona lengi. Mér fannst ég niðurlægð og svikin. Ég sveiflaðist milli haturs og vorkunnar með þessum aumingja sem ég var gift, því í mínum huga var hann ekkert annað en aum- ingi. Það er ekki hægt að lýsa þessum ferli hans án þess að fá klígju. Hann hafði sæng- að hjá fjölda vændiskvenna erlendis og að öllum líkind- um hér heima líka, sótt klámbúllur erlendis og eftir að klámiðnaðurinn hér fór í gang hafði hann notað sér símatorg og nú síðast nekt- ardansstaði. Ég mátti senni- lega þakka fyrir að hafa ekki smitast af einhverju al- varlegra en lekanda. Ég sótti strax um skilnað sem gekk í gegn með hraði, enda viðurkenndi hann allan við- bjóðinn eins og skot. Ég hélt gamla húsinu okkar og hef forræði fyrir börnunum, því allir sáu að svona maður hefur ekkert að gera með að ala upp börn. Verst þótti mér hvernig hann var búinn að rústa fjárhag okkar sem var mjög góður áður fyrr. Ég sit uppi með hluta af skuld- unum og svo gæti farið að ég þurfi að selja litla, gamla húsið og kaupa eitthvað minna til að forðast stór áföll. Ég er að vísu komin í ágæta vinnu, en krakkarnir okkar eru orðnir unglingar Það læddist að mér illur grunur og ég pantaði strax tíma hjá kvensjúkdómalækni. Þar fékk ég þær ömurlegu fréttir að ég væri smituð af lekanda. og eru að verða nokkuð dýr í reksti. Ég reikna ekki með að njóta mikils stuðnings af hans hálfu héðan í frá. Ég hef ekki mikið af þess- um fyrrverandi manni mín- um að segja lengur. Krakk- arnir fara að heimsækja hann þegar hann er í landi, en ég hitti hann aldrei. Ég tala ekki einu sinni við hann í síma síðan ég hætti að þurfa þess vegna skipta á eignum. Ég óska honum svo sem einskis ills, mér er orðið nákvæmlega sama núna, hann er bara aumingi sem virðist ekki skilja hvað það er sem er einhvers virði í líf- inu. Lesandi segir Jóhönnu Harðardóttur sögu sína Vilt þú deila sögu þinni meö okkur? Er eitthvað sem hefur haft mikil áhrif á þig, jafnvel breytt lífi þínu? Pér er velkomið að skrifa eða hringja til okk- ar. Við gætum fyllstu nafnleyndar. I Iirimilisfanj*in er: Vikan - „Lífsreynslusaga**, Scljavcgur 2, 101 Itcykjavik, Nell'ane: vikan@frolli.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.