Vikan - 05.10.1999, Blaðsíða 59
svarar læknirinn ?
Kæri Þorsteinn,
Ég er sextug kona, ein af þeim sem hef alltaf mik-
ið að gera og leiðist aldrei. Það er aðeins eitt sem pirrar mig og
það er hversu mjög svefnvenjur mínar hafa breyst. Það er ekki
góð breyting og mér finnst ég oft vera illa út hvíld. Áður fyrr gat
ég vakað á kvöldin og jafnvel fram á nætur en núna verð ég að
fara snemma að sofa. Og það er ekki nóg
með að ég sofni snemma, ég vakna
líka eldsnemma á morgnanna
og get ekki sofnað aftur.
Þetta pirrar mig mjög,
stundum vakna ég
jafnvel um fjögur-
eða fimmleitið og þá
langar mig mest að
sofna aftur um
I’orsteinn Njálsson heiinilislæknir
I innan sólar-
það leiti sem ég ætti að vera að fara á fætur. Hvað get ég gert? Mig
langar bara að geta farið að sofa um miðnættið og vaknað klukkan
sjö.
Sextug
Sæl
Þakka þér fyrir gott bréf. Það er ekki ofsögum sagt að það er
margt sem hrjáir okkur mennina og ekki alltaf auðvelt að finna úr-
lausnir. Svefnvandamál eru algeng og eru úrlausnir þeirra margar
og einstaklingsbundnar. Iðin og kappsöm kona eins og þú ert nátt-
úrulega einungis að hlýða kalli líkama, hugar og sálar eftir anna-
saman dag og sofnar snemma á kvöldin. Á sama hátt vaknar þú
líkast til þegar líkami, hugur og sál hafa hvflst nægjanlega, stundum
mjög snemma morguns, sem getur passað illa inn í okkar daglega
líf en sumir segja að morgunstund gefi gull í mund. E.t.v. er spurn-
ingin hér hvernig getur þú fært svefntíma þinn
hringsins.
Það þarf náttúrulega ekki að segja þér það, en segi
það hér meira fyrir hina, að með aldrinum breytumst við
öll. Líkami okkar breytist, við þyngjumst oft, úthald
okkar breytist og svefnvenjur okkar breytast oftar en
ekki í þá veru að við sofum léttar, eigum erfiðara
með að sofna og að festa svefn. Allur sá fjöldi ein-
staklinga sem tekur svefnlyf í dag segir okkur heilmikið um
það hversu illa fólki gengur að aðlagast breytingum á svefni
með árunum. Við gerum kröfur um að allt sé eins og var í
stað þess að leita leiða til að aðlagast breytingunum sem
fylgja óumflýjanlega aldri. Jafnvel að vera andvaka nótt og
nótt getur verið eðlilegur hlutur með árunum. Þetta
er vissulega mikið að segja, en rjúkum ekki upp
til handa og fóta þegar breytingar verða á svefni
okkar heldur leitum leiða til að ná jafnvægi. Ég
mæli með því við fólk þegar það stendur
frammi fyrir verulegum breytingum á svefni
að fara í læknisskoðun þar sem farið er yfir
helstu þætti sem hafa áhrif á svefn og jafn-
vel teknar blóðprufur. Við læknisskoðunina
má ekki gleyma að skoða þau lyf sem
fólk kann að vera að taka því aukaverk-
anir lyfja eru algengar og oft talsvert
flókið mál fyrir lækna að hafa yfirsýn ýfir
þær. Ef allir þessir þættir eru í lagi er margí
hægt að gera annað en að taka lyf til að bæta
svefn. Ég ráðlegg fólki að skoða sérstakar ráð-
leggingar við svefnvanda sem má finna í bókum
eins og Lækningabók heimilanna og almennar ráðlegg-
ingar á lífsstfl eins og í bókinni Lækningamáttur líkamans.
Varðandi þitt vandamál, sérstaklega, vildi ég ráðleggja
þér, eftir að þú hefur farið yfir þessi mál með lækni þín-
um og að því gefnu að allt hafi verið eðlilegt, að prófa
að taka þér stund um miðjan daginn þar sem þú hvílir
líkama, hug og sál. Þetta getur þú gert með því að
leggja þig, loka augunum og tæma hugann í 20-30
mínútur, eða með stuttri slökun eða hugleiðslu sem
margir ná auðveldlega tökum á en líka er hægt að læra
víða. Jóga er mjög góð aðferð bæði til líkamsþjálfunar og til
að ná innri ró og hvíld. Finna má leiðbeiningar um hugleiðslu í
bókunum sem ég nefndi hér að ofan. Þá er til mikið af segulbands-
spólum með slökunarleiðbeiningum í mörgum verslunum. Þú
verður að gera þetta skipulega og ætla þér tíma á hverjum degi til
slökunar eða hugleiðslu. Þú ættir síðan að
geta fært svefntíma þinn smám saman nær
þeim tíma sem þú óskar þér, því að líkami
þinn, hugur og sál eru þá síður þreytt eða
útkeyrð þegar fer að kvölda. Það er
möguleiki að þú þurfir að endurtaka eða
gefa þér sérstaklega tíma til slökunar eftir
að fer að kvölda til að ná enn betri tökum
á svefntíma þínum.
Gangi þér vel,
Þorsteinn
Spurningar má
senda til „Hverju
svarar læknirínn?“
Vikan, Seljavegi 2,
101 Reykjavík.
Farið er með öll
bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.