Vikan - 05.10.1999, Side 26
mbandsslita
Tueimur vikum eftir pioinipm, vinnnnm T-Tnnn
0
Tveimur vikum eftir
sambandsslitin:
□ Þú notar golfkylfurnar
hans til þess að losa
stífluna í klósettinu og færð
útrás með því að kveikja í
nærbuxunum sem hann
gleymdi hjá þér.
Þú hefur aldrei áður
hlustað svona mikið á
Celine Dion.
BÞú mætir strák úti á
götu sem er í Levi's
gallabuxum og þú brestur í
grát. Þinn fyrrverandi var
nefnilega svo oft í gallabux-
um.
□ Þú lætur þig dreyma
um að hann komi til
þín skríðandi á hnjánum og
grátbiðji þig um að byrja
aftur með sér. Stundum seg-
irðu já. Stundum nei.
0Þú reynir að hressa þig
við með því að kaupa
þér ný föt en kaupir bara
allt í svörtum lit.
SÞú stendur sjálfa þig
að því að vera stöðugt
að keyra „óvart" framhjá
húsinu hans.
Tveimur mánuðum eftir
sambandsslitin:
□ Þegar þú fréttir að vin-
kona þín hafi óvænt
rekist á hann, þá snertir það
þig ekki. Ekki mikið.
BO.k. Jú, það snertir þig
aðeins. En þér leið
miklu betur þegar hún sagði
þér að hann hefði litið mjög
illa út.
01 hvert sinn sem þú
ferð í bæinn eða átt
leið um hverfið hans, þá
ferðu í fínustu fötin þín og
málar þig vandlega. Þú gerir
það að sjálfsögðu bara fyrir
sjálfa þig en ekki hann. Jæja,
svona að mestu leyti.
r I Þú ert á fullu við að
■á-i tryggja þér einkarétt á
uppáhaldsskemmtistaðnum
ykkar og aðganginn að sam-
eiginlegu vinunum. Hann
hlýtur að geta reddað sér
sjálfur, fyrst hann er svona
rosalega sjálfstæður.
Þú telur dagana þang-
að til „lagiðykkar"
hættir að tröllríða útvarp-
stöðvum.
Það var ömurlegt að
rekast á hann í partíi
með nýju kærustuna upp á
arminn eða þangað til þú
fattaðir að hún var nákvæm
eftirlíking af þér. Bara með
miklu stærri rass og hræði-
lega illa litað hár.
Tveimur árum eftir
sambandsslitin:
Þú heilsar honum og
jafnvel faðmar hann
þegar þú rekst á hann úti á
götu en hefur lúmskt gaman
af því hvað hann er orðinn
þunnhærður.
0Þegar þú færð tölvu-
póst frá honum, þá
þarftu ekki samstundis að
hendast fram á klósett.
Þú ert svo innilega
komin yfir hann að
það væri minnsta mál í
heimi að kynna hann fyrir
nýju, sætu stelpunni í vinn-
unni.
Þegar þú ert að gera
hreint heima hjá þér,
þá hikar þú ekki við að
fleygja öllum hallærislegu
geisladiskunum sem hann
gaf þér.
0Einu skiptin sem þér
dettur hann í hug er
þegar þú ert að hugsa um
hversu frábær nýi kærastinn
þinn sé. Það er sama tilfinn-
ing og að skipta út Trabant
fyrir Benz.
HÞegar ykkur er báðum
boðið í sama brúð-
kaupið, þá þarftu ekki að
vera með einhvern myndar-
legan frænda þinn upp á
arminn; þú þarft ekki lengur
að sanna neitt.